Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

31. janúar 2008

Þjónustufulltrúi trúnaðarmanna

SFR leitar að öflugum einstaklingi til að taka að sér starf Þjónustufulltrúa trúnaðarmanna SFR - stéttarfélags. Starfið mun fela í sér enn frekari uppbyggingu og styrkingu á starfi trúnaðarmanna félagsins og þjónustu við þá. SFR leitar að einstaklingi með góða samskiptahæfileika, jákvætt viðhorf, frumkvæði, góða skipulagshæfileika og vinnubrögð, og almenna tölvukunnáttu...

31. janúar 2008

Orlofshús um páska - Kaupmannahöfn gleymdist

Í nýútkomnu tölublaði SFR blaðsins er umsóknareyðublað fyrir páskaúthlutun. Hægt er að sækja um íbúðina í Kaupmannahöfn þrátt fyrir að hennar sé ekki getið á eyðublaðinu og biðjum við félagsmenn að bæta henni inn, ef þeir skila inn umsókn á pappír. Vikan í Kaupmannahöfn kostar 40.000 kr. Einnig er hægt að sækja um HÉR.

30. janúar 2008

SFR blaðið, janúar 2008

SFRblad_1tbl2008Í 1. tölublaði SFR blaðsins á þessu ári er fjallað um úthýsingu læknaritunar. Umsóknarfyrirkomulag fyrir páskaúthlutun er kynnt og námskeið á vorönn. Þá skrifar Ragnar Ingimundarson, hagfræðingur hjá BSRB, um efnahagshorfur við upphaf kjarasamninga og sagt er frá störfum launamálaráðs. Einnig er sagt frá frá því að SFR mun aftur standa að könnun á ánægju, starfsskilyrðum og líðan fólks á vinnustað undir heitinu Stofnun ársins og að samhliða þeirri könnun munu félagsmenn SFR öðru sinni taka þátt í launakönnun. 

28. janúar 2008

SFR hafnar einkavæðingu viðkvæmra persónuupplýsinga

Trúnaðarmannaráð SFR tekur eindregna afstöðu gegn einkavæðingu á heilsufarsupplýsingum félagsmanna.

25. janúar 2008

Nýtt skráningarkerfi fyrir Gott að vita námskeiðin

Gott-að-vita-vor-08Á vef SFR er komið upp nýtt skráningarkerfi fyrir Gott að vita námskeiðin sem félagið hefur haldið í samstarfi við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar undanfarin ár. Kerfið gerir allt utanumhald námskeiða einfaldara fyrir umsjónarmenn og auðveldar aðgengi félagsmanna. Á vorönn eru áfram í boði sígild námskeið eins og Ljósmyndun, Hvort ég get, ekki málið (sjálfsímynd og samskipti) og Skapandi skrif, en einnig eitthvað nýtt í bland.  Fyrstu námskeiðin hefjast 29. jan. Dagskrá og skráning HÉR.

18. janúar 2008

Sólarstrandatilboð - panta draumaferðina sem fyrst

Félagsmönnum sem fengu úthlutað sólarstrandagjafabréfi er ráðlagt að panta og greiða sem fyrst á netinu ef þeir hafa fundið draumaferðina. Eftir að ferðin hefur verið greidd sendir félagsmaður gjafabréfið á viðkomandi ferðaskrifstofu ásamt bankaupplýsingum og fær þá 30.000 krónur inn á bankareikning sinn.

15. janúar 2008

Einkavæðingin á Landspítalanum

Ogmundur_JonassonÖgmundur Jónasson og Árni Stefán Jónsson fjalla um störf læknaritara í Morgunblaðinu í dag og þar segir meðal annars: "Læknaritarastarfið er eitt af lykilstörfum í heilbrigðiskerfinu. Persónuverndarsjónarmið og krafa um góða fagmennsku eru þar grundvallaratriði.    ArniStJonsson_2006_a  

14. janúar 2008

Íslenska fyrir útlendinga

Skráning er hafin hjá Framvegis - miðstöð um símenntun á námskeið fyrir starfsmenn af erlendum uppruna. Námskeiðin heita Íslenska fyrir útlendinga og hefjast í janúar. Um er að íslensku á þremur stigum og fer kennsla fram í húsnæði BSRB, Grettisgötu 89. Skráning fer fram á skraning@framvegis.is eða í s. 581-4914 á milli kl. 10 og 12.

12. janúar 2008

Vaktavinnumálin í hnút - slitnað upp úr viðræðum.

Í gær slitnaði upp úr viðræðum um málefni vaktavinnufólks milli BSRB og BHM annars vegar og ríkis og sveitarfélaga hins vegar. Þessar viðræður hafa staðið allar götur frá síðustu kjarasamningum en þá var gerð bókun þess efnis að farið yrði í saumana á málefnum vaktavinnufólks og leitað leiða til að gera vaktavinnu eftirsóknarverðari.

11. janúar 2008

Stofnun ársins 2008 og launakönnun SFR

Stofnun_arsins_1saetiÁ næstu vikum mun árleg launakönnun SFR verða gerð og samhliða verður Stofnun ársins valin. Þetta er viðamesta könnun á vinnuumhverfi í íslenskum stofnunum. Niðurstöðurnar eru stjórnendum mikilvægur mælikvarði á það hvað vel er gert og hvað má betur fara og starfsmenn stofnana fá tækifæri til að segja stjórnendum hvað þeim finnst um vinnustaðinn. Upplýsingar úr launakönnun eru síðan öflugt tæki fyrir félagsmenn til að hafa sem viðmiðun í launaviðtölum. Þetta er í þriðja sinn sem val á Stofnun ársins fer fram og annað sinn sem launakönnun er framkvæmd meðal SFR félagsmanna.

9. janúar 2008

Læknaritarar uggandi um stöðu sína

LaeknaritararBekkurinn var þéttsetinn á fundi á Landspítalanum (LSH) í gær þar sem kynnt var útvistun á störfum læknaritara. Að sögn Þuríðar Þórðardóttur, talsmanns Samtaka læknaritara á LSH , var mikill hiti og reiði í læknariturum sem eru uggandi um stöðu sína.  En ekkert samráð hefur verið haft við þær í þessu ferli. SFR mun skoða réttarstöðu þessara félagsmanna en á annað hundrað læknaritara starfa á spítalanum.

3. janúar 2008

Sólarstrandatilboð slær í gegn

Strond_kokoshnetaÍ byrjun desember var auglýst sú nýbreytni að félagsmönnum bauðst að sækja um gjafabréf, sem hægt er að nota sem greiðslu inn á sólarstrandaferð, í stað sumarhúsa á Spáni. Í boði eru 100 gjafabréf og skemmst er frá því að segja að þetta sló í gegn en um 300 umsóknir bárust. Umsóknarfrestur rann út 21. desember og er nú unnið að úthlutun. 

2. janúar 2008

Jólagleði á Hótel Sögu

Jolaball2Hátt í 300 manns mættu á jólaball SFR og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sem haldið var í Súlnasal Hótel Sögu á milli jóla og nýárs. Hljómsveit hússins stýrði fjörinu og naut dyggrar aðstoðar frískra barna sem sungu og dönsuðu af krafti.

Slóðin þín:

Fréttir