Fréttir
23. desember 2008
Átt ţú von á barni?
Sú breyting verður nú um áramótin að Styrktar- og sjúkrasjóður SFR greiðir út styrk til félagsmanna sinna vegna fæðingar barns sem Fjölskyldu- og styrktarsjóður BSRB hefur séð um fram til þessa. Um er að ræða fæðingarstyrki til foreldra og eru styrkirnir jafnháir til karla og kvenna en hliðsjón höfð af starfshlutfalli.
19. desember 2008
Afnemum forréttindiin
Alþýðusamband Íslands og Bandalag starfsmanna ríkis og bæja lýsa yfir algerri andstöðu við þær tillögur sem forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa sett fram um breytingar á eftirlaunum ráðamanna. Eftirlaunafrumvarpið olli miklu ósætti og djúpstæðri reiði meðal íslensku þjóðarinnar þegar það var sett fram árið 2003. ASÍ og BSRB krefjast þess að Alþingi afnemi þegar forréttindi ráðherra, alþingismanna og æðstu embættismanna í lífeyrismálum og að sett verði lög um að þau verði þau sömu og hjá öðrum opinberum starfsmönnum.
17. desember 2008
Jólablađ SFR blađsins er á leiđinni ásamt vinnutímabók
Jólablað SFR blaðsins er í pökkun þessa stundina þar sem vinnutímabók fylgir með að venju, en blaðið verður sent út jafnóðum og það er tilbúið og ætti að berast í þessari viku. Í blaðinu fjallar Árni St. Jónsson, formaður SFR, um kjarabaráttuna framundan og samstarf aðila vinnu-markaðarins. Einnig er grein eftir Einar Árnason um skattamál og Þorbjörn Broddason skrifar um stöðu fjölmiðla. Þá er bóka- og hljómdiskaumfjöllun og sagt frá úrslitum í smásögusamkeppninni svo eitthvað sé nefnt.
16. desember 2008
Sagan Í rökkrinu sigrađi í smásögusamkeppni SFR
SFR stóð fyrir smásögusamkeppni meðal félags-manna nú á haustdögum sem auglýst var í SFR blaðinu. Alls bárust 18 sögur í samkeppnina en það var samdóma álit dómnefndar að 1. sætið hlyti sagan Í rökkrinu, sem Þorgerður Mattía Kristiansen, starfsmaður Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra í Reykjavík, skrifaði. Þá ákvað dómnefndin að sagan Þessar hendur, eftir Kristínu R. Gunnarsdóttur, starfsmann Fangelsismálastofnunar, skyldi hljóta 2. sætið.
16. desember 2008
Launamálaráđ SFR fundađi um samráđ verkalýđshreyfingarinnar
Launamálaráð hittist 10. desember sl. til að fara yfir stöðu mála varðandi kjarasamninga. Árni St. Jónsson, formaður SFR, fór yfir helstu forsendur þess að nú er kallað eftir samráði verkalýðs-hreyfingarinnar um þjóðarsátt. Margir tóku til máls þegar að umræðum kom.
12. desember 2008
Atvinnuleysistryggingasjóđur tćmist nćsta haust
Atvinnuleysistryggingasjóður tæmist í október á næsta ári gangi spár Vinnumálastofnunar eftir. Þetta kom fram í erindi Gissurar Péturssonar forstjóra Vinnumálastofnunar á opnum fundi sem BSRB hélt í gær. Auk Gissurar flutti Gylfi Dalmann dósent við Háskóla Íslands erindi um íslenska vinnumarkaðinn.
10. desember 2008
Vinnumarkađurinn og atvinnuhorfur framundan
8. desember 2008
Jafnrétti í kreppu og kjarasamningar á fundi trúnađarmanna
Á fund trúnaðarmannaráðs SFR, 4. des. sl., mætti Silja Bára Ómarsdóttir og fjallaði um jafnrétti í kreppu. Þá var einnig til umfjöllunar nýleg skýrsla um skattbyrði, tengslanet trúnaðarmanna og þeir kjarasamningar sem framundan eru.
5. desember 2008
Hvert stefnir í efnahagsmálum ţjóđarinnar?
Opinn fundur BSRB um framtíðarþróun efnahagsmála á Íslandi var afar fróðlegur. Gylfi Zoëga prófessor við Háskóla Íslands og Jón Þór Sturluson aðstoðarmaður viðskiptaráðherra ræddu aðdraganda kreppunnar og þá kosti sem væru í stöðunni til að vinna sig út úr henni en þar skiptir peningastefnan höfuðmáli.
3. desember 2008
Framtíđin - međ eđa án krónu
1. desember 2008
Hádegisfróđleikur - Gildi samfélagsins og orđspor
1. desember 2008
SFR skrifađi undir samkomulag viđ Reykjavíkurborg
28. nóvember 2008
Blásiđ til Ţjóđfundar 1. desember
28. nóvember 2008
Mćđrastyrksnefnd styrkt
- Styrkur frá SFR, BSRB og Félagi umsjónarmanna
Árni St. Jónsson afhenti í dag Ragnhildi Guðmundsdóttur, formanni Mæðrastyrks-nefndar, og Margréti K. Sigurðardóttur, fjármálastjóra nefndarinnar, styrk sem stjórn SFR samþykkti að veita nefndinni. Einnig afhenti Ögmundur Jónasson styrk frá BSRB og Sigurður Ingi Georgsson styrk frá Félagi umsjónarmanna hjá ríkisstofnunum.
27. nóvember 2008
Fróđlegur og upplýsandi fundur
Fundur BSRB með fulltrúum viðskiptabankanna var mjög fróðlegur og upplýsandi um það hvernig bankarnir hyggjast bregðast við greiðsluvanda viðskiptavina sinna vegna efnahagsástandsins í landinu. Yfirskrift fundarins var „Hvað gerir bankinn fyrir þig?" og bentu frummælendur á þau úrræði sem í boði eru og fyrirhuguð eru á næstunni.
26. nóvember 2008
Laus orlofshús um helgina
Vakin er athygli á því að laust er í Vaðnesi núna um helgina og einnig í Hamratúni á Akureyri. Þá er húsið í Kjarnabyggð á Akureyri laust um næstu helgi.
26. nóvember 2008
Félagsskírteini og afsláttarhefti verđur endurnýjađ
Verið var að senda nýjum félagsmönnum frá því í nóvember og þeim sem sérstaklega hafa óskað eftir því félagsskírteini og afsláttarhefti SFR. Hvoru tveggja rennur út um áramótin en ákveðið var að senda það samt út til að hægt væri að nýta afslættina nú í desember. Jafnframt hefur verið ákveðið að endurnýja afsláttarheftið og félagsskírteinið þar sem skoðanakönnun meðal félagsmanna sýnir að tæpur helmingur félagsmanna nýtir sér afsláttarheftið.
25. nóvember 2008
Hvađ gerir bankinn fyrir ţig? - Opinn fundur á morgun
Opinn fundur verður á vegum BSRB á morgun mið. 26. nóv. kl. 16:30-18 í BSRB húsinu. Á fundinum munu fulltrúar viðskiptabankanna kynna úrræði sem þeir bjóða viðskipta-vinum sínum upp á til að mæta áföllum heimilanna vegna efnahagsástandsins.
25. nóvember 2008
Fjölmenni á velheppnuđum útifundi á Ingólfstorgi
Fjölmenni sótti útifund BSRB, Félags eldri borgara í Reykjavík, Landssamtakanna Þroska-hjálpar og Öryrkjabandalags Íslands, á Ingólfs-torgi síðdegis í gær. Á fundinum var samþykkt ályktun þar sem skorað er á stjórnvöld að beita öllum tiltækum ráðum til að verja velferðarkerfið sem byggt hefur verið upp af almenningi á undanförnum áratugum. Þegar kreppi að í samfélaginu sé mikilvægt að beita velferðarkerf-inu til jöfnunar. Áralangri baráttu fyrir réttlátu þjóðfélagi megi ekki kasta á glæ.
21. nóvember 2008
BSRB mótmćlir ađför ađ velferđarţjónustunni
21. nóvember 2008
BSRB vill vaxtalćkkun og endurskođun á vísitölugrunni
21. nóvember 2008
Líflegur fundur um kosti og galla verđtryggingar
Opinn fundur BSRB um kosti og galla verðtryggingar var vel sóttur og sköpuðu erindi Ingólfs H. Ingólfssonar félagsfræðings og Péturs H. Blöndal alþingismanns líflegar umræður. Hægt er að nálgast upptöku af fundinum HÉR á vef BSRB.
19. nóvember 2008
Verđtrygging til góđs eđa ills?
18. nóvember 2008
Stađa miđaldra og eldra fólks ţegar ţrengir ađ á vinnumarkađi
Morgunverðarfundur verður haldinn miðvikudaginn 19. nóvember 2008 kl. 8.30 -10:00 á Grand hóteli í Reykjavík, salur Háteigur B, þar sem fjallað verður um stöðu miðaldra og eldra fólks nú þegar þrengir að á vinnumarkaði. Á fundinum munur þrír frummælendur fjalla um sérstöðu hópsins í þróun og ástandi samtímans. Morgunverður framreiddur frá kl. 8:00. Allir velkomnir.
17. nóvember 2008
Út er komiđ 8. tbl. Veffréttabréfs Starfsmenntar
Í nýútkomnu Veffréttabréfi Starfsmenntar er fjallað um að Starfsmenntaverðlaunin sem Starfsmennt fékk fyrir Járnsíðu eru setrinu hvatning til að halda áfram að bjóða ríkisstarfsmönnum upp á hágæða starfstengda símenntun um allt land og veita heildstæða þjónustu á sviði starfsþróunar. Einnig er minnt á nokkur spennandi námskeið framundan og að undirbúningur fyrir nám á næsta ári er hafinn.
14. nóvember 2008
Trúnađarmenn SFR rćddu hlutverk SFR og stöđu fjölskyldunnar
14. nóvember 2008
Stađan á vinnumarkađi til umfjöllunar í dreifibréfi BSRB
14. nóvember 2008
Afsláttur fyrir SFR félaga á námskeiđ hjá NTV
13. nóvember 2008
Líđan ţín í vinnunni á óvissutímum
Í dag bauð SFR og St.Rv. upp á fyrirlestur í hádeginu fyrir félagsmenn um líðan í vinnunni á óvissu-tímum. Fyrirlesari var Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir, frá Rannsóknastofu í vinnuvernd. Hún fjallaði um líðan í vinnu, áhættuþætti og hvernig bæta megi líðan starfsmanna. Góðar umræður sköpuðust á fund-inum. HÉR er hægt að nálgast glærur frá fyrirlestrinum.
13. nóvember 2008
Lćrum af reynslu Fćreyinga og Finna
Opinn fundur BSRB um efnahagsþrengingar og kreppur sem gengu yfir Færeyjar og Finnland snemma á 10. áratug síðustu aldar var vel sóttur og góður rómur gerður að erindunum sem Gunvør Balle sendiherra Færeyja á Íslandi og Sigurbjörg Árnadóttir framkvæmdastjóri héldu. Framsöguerindin fjölluðu um orsakir hrunsins hjá þessum þjóðum, hvernig ástand skapaðist og hvernig þær unnu sig út úr kreppunni.
10. nóvember 2008
Námskeiđiđ Samningatćkni fyrir konur
Vegna veikindaforfalla eru fáein pláss laus á síðasta samningatækninámskeið fyrir konur nú á haustönn. En það er haldið 11. og 12. nóv. kl. 16.30 - 19.30. Skráning á HÉR.
7. nóvember 2008
Frćđslusetriđ Starfsmennt hlaut í dag starfsmenntaverđlaun fyrir verkefniđ Járnsíđa í flokki skóla og frćđsluađila
Formaður SFR, Árni St. Jónsson, tók við verð-laununum fyrir hönd Fræðslusetursins Starfs-menntar, en hann er einnig formaður setursinsÞað var forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sem afhenti Starfsmenntaverðlaunin. Vinnings-hafar voru í flokki skóla og fræðsluaðila Fræðslusetrið Starfsmennt fyrir verkefnið Járnsíða, sem unnið var í samvinnu við Sýslumannafélag Íslands. Í flokki fyrirtækja Samskip hf. fyrir metnaðarfullt og fjölbreytt fræðslustarf fyrir starfsfólk sitt. Fjölmargir félagsmenn SFR hafa sótt Járnsíðunámið og sumir tekið þátt í vinnu í stýrihópum sem móta og hanna námið og verðlaunin félaginu því mikið ánægjuefni.
7. nóvember 2008
Ţjónustusamningur ríkisins viđ Reykjavíkurborg
- Flytja á reksturinn á sambýlum geðfatlaðra Í gær hélt SFR fund með félagsliðum, ráðgjöfum og stuðningsfulltrúum, um þjónustusamning ríkisins við Reykjavíkurborg vegna reksturs sambýla fyrir geðfatlaða. Tilefni fundarins var að ríkið ætlar sér að flytja þennan málaflokk yfir til Reykjavíkurborgar á grundvelli þjónustusamnings og á fundinum voru starfsmenn umræddra sambýla. Fjölmargar spurningar vöknuðu um framkvæmdina ...
6. nóvember 2008
Fjölmennur fundur um skuldirnar og heimilin
Fjölmenni var á opnum fundi BSRB um skulda-stöðu heimilanna og úrræði sem ákveðið hefur verið að grípa til vegna hækkandi lána. Að loknum stuttum framsögum var opnað fyrir spurningar úr sal og sköpuðust líflegar og mjög fróðlegar umræður við það.
6. nóvember 2008
Séreignarsjóđir
6. nóvember 2008
Flutningur á rekstri sambýla fyrir geđfatlađa - fundur í dag
Áríðandi fundur um flutning á rekstri sambýla fyrir geðfatlaðra frá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík (SSR) til Reykjavíkurborgar verður haldinn fimmtudaginn 6. nóvember kl. 16:15, í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, 1. hæð. Mikilvægt er að sem flestir stuðningsfulltrúar og félagsliðar á fyrrnefndum vinnustöðum mæti á fundinn.
4. nóvember 2008
Opinn fundur - Skuldirnar og heimilin - Hvađ er ađ gerast?
Opinn fundur verður á vegum BSRB á morgun miðvikudaginn 5. nóvember kl. 16:30 - 18:00 í BSRB - húsinu, Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um skuldastöðu heimilanna og úrræði sem ákveðið hefur verið að grípa til vegna hækkandi lána. Framsögu hafa ...
4. nóvember 2008
Ójöfnuđur leiđir til ófarnađar er heiti á grein í SFR blađinu
Í nýútkomnu SFR-blaði er grein eftir Ragnar Önundarson þar sem hann fjallar um efnahagskreppuna og leiðir rök að því að ójöfnuður leiðir til ófarnaðar. Einnig skrifar Ögmundur Jónasson um atburði síðustu vikna og horfir fram á veginn. Þá er þess minnst að blaðaútgáfa SFR á nú um þessar mundir 50 ára afmæli. Birtur er samanburður á kjörum félagsmanna SFR og VR sem er byggður á launakönnununum félaganna, en þær voru birtar í september síðastliðnum.
31. október 2008
Skattbyrđi aukist mest hjá lćgri tekjuhópum
30. október 2008
Forstjóri Litla-Hrauns bauđ forsvarsmönnum SFR í heimsókn
Í gær heimsóttu Árni St. Jónsson formaður SFR og Þórarinn Eyfjörð framkvæmdastjóri fangelsið að Litla-Hrauni. Margrét Frímannsdóttir forstjóri bauð til þessarar heimsóknar til að kynna forsvarsmönnum félagsins stöðu mála innan fangelsisins og þá starfsemi sem þar fer fram. Eftir skoðunarferð um fangelsið þá var fundað með fangavörðum. Farið var yfir síðustu kjarasamninga og væntingar í kjölfar þeirra. Horfur í dag eru mun verri en menn ætluðu þegar gengið var frá þeim samningum. Einnig var rætt um lífeyrismál og önnur réttindamál.
27. október 2008
Samningatćkni fyrir konur í Vestmannaeyjum tókst vel
- laust á námskeið á Akureyri og í ReykjavíkSFR, Stavey og Impra á Nýsköpunarmiðstöð Íslands buðu upp á námskeið í samningatækni fyrir konur í Vestmannaeyjum á laugardaginn 25.október síðastliðinn. Alls tóku 12 konur þátt í námskeiðinu í Eyjum og tókst námskeiðið afskaplega vel. Farið var í gegnum fjölda atriða sem lúta að samningatækni fyrir konur og þátttakendur unnu að ýmsum úrlausnarefnum á námskeiðinu. Samskonar námskeið verður haldið á Akureyri 1. nóv. nk. og í Reykjavík 11.-12. nóv.
27. október 2008
Frestun jafnréttisţings mótmćlt
Stjórn BSRB og jafnréttisnefnd bandalagsins mótmæla harðlega ákvörðun ríkisstjórnarinnar, sem kynnt var 21. október sl., að fresta fyrirhuguðu jafnréttisþingi sem dagsett hafði verið 7. nóvember næstkomandi. Í yfirlýsingu frá félags- og tryggingamálaráðuneyti segir að ólíklegt sé „að jafnréttisþingið nái markmiðum sínum í því óvissuástandi sem nú ríkir í efnahagsmálum þjóðarinnar, þar sem fjölmargir þeirra sem ráðuneytið vill virkja ...
23. október 2008
SFR sćkir heim Vesfirđi og Austurland
Árni St. Jónsson, formaður SFR, Þórarinn Eyfjörð, framkvæmdastjóri og Alma Lísa Jóhannsdóttir, þjónustufulltrúi trúnaðarmanna, eru á ferðalagi um landið til að hitta félagsmenn á vinnustaðafundum. Á fundunum hafa skapast góðar umræður um málefni félagsins. Ljóst er að félagsmenn okkar leggja mikla áherslu á orlofsmálin og telja mikilvægt að SFR haldi áfram að vera með orlofshús/íbúðir um allt land.
23. október 2008
Nýtt veffréttabréf Starfsmenntar
Fræðslusetrið Starfsmennt var að senda frá sér nýtt veffréttabréf þar sem nýtt nám í nóvember er kynnt. Boðið er upp á nám í mannauðsstjórnun fyrir millistjórnendur og námskeið um nýtt námsumhverfi á netinu. Einnig er vakin athygli á því að opnað hefur verið fyrir skráningar á starfsnám stuðningsfulltrúa sem hefst á næsta ári, en það verður einnig fjarkennt á Ísafirði og Egilsstöðum.
22. október 2008
SFR flutti í nýja íbúđ í Kaupmannahöfn
21. október 2008
Orlofsvefur SFR liggur niđri
20. október 2008
Styrkjum innviđina - sannleikann í ljós
Aðalfundur BSRB hafnar því að almennt launafólk beri allan herkostnað af bruðli og óhófi undangenginna ára. Þá krefst fundurinn ítarlegrar rannsóknar sem leiði í ljós hverjir eru ábyrgir fyrir skuldsetningu bankakerfisins og þar með þjóðarinnar. Einnig þarf að upplýsa um hvernig þessum fjármunum hefur verið ráðstafað í einkaþágu gæslumanna fjárins. Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar BSRB sem haldinn var 17. október sl., en ályktunin ber yfirskriftina Styrkjum innviðina - sannleikann í ljós.
17. október 2008
Bćtt vinnuumhverfi - Betra líf - Ráđstefna
Ráðstefna Vinnuverndarvikunnar 2008 sem ber heitið Bætt vinnuumhverfi betra líf - Áhættumat og forvarnir eru leiðin verður haldin á Grand Hóteli, Gullteigi, þriðjudaginn 21. októer frá kl. 13-16. Allir velkomnir. Sjá nánar um vinnuverndarvikuna HÉR.
17. október 2008
Hádegisfróđleikur sem vera átti 20. okt. fellur niđur
16. október 2008
Enn hćgt ađ skrá sig á námskeiđ
Samningatækni fyrir konur er eitt af Gott að vita námskeiðunum sem í boði eru nú á haustönn. Eitt slíkt námskeið var haldið fyrr í október og voru þátttakendur afar ánægðir að því loknu. Tvö til viðbótar verða 21.-22. okt. og 11.-12. nóv. Þá eru einnig laus pláss á Tjáning í töluðu máli og á Stafgöngunámskeið.
15. október 2008
Hádegisfróđleikur - Bćtt vinnuumhverfi betri líđan
Hádegisfróðleikur verður haldinn mánudaginn 20. október kl. 12 til 12:50. Skráning HÉR. Áhættumat er þema vinnuverndarvikunnar að þessu sinni en hún stendur yfir 20. - 24. okt. og af því tilefni verður fjallað um áhættumat fyrir vinnustaði...
14. október 2008
Möndull - skráning hafin á námskeiđ hjá Landspítalanum
14. október 2008
Vinnuverndarstarf á óvissutímum - mikilvćgi forvarna
14. október 2008
Kjarasamningur Matís og SFR samţykktur
17 voru á kjörskrá, 10 greiddu atkvæði. Samningurinn var samþykktur með 90% greiddra atkvæða.
10. október 2008
Ótímabćrt ađ meta tjón lífeyrissjóđanna
7. október 2008
Tökum ţátt í Jafnréttisţingi 2008
SFR hvetur félagsmenn til að taka þátt í Jafnréttisþingi 2008 sem félags- og tryggingamálaráðuneytið og Jafnréttisráð boða til 7. nóvember næstkomandi að Hótel Sögu frá klukkan 9 til 17.
7. október 2008
Fundur trúnađarmannaráđs SFR
Á fundi trúnaðarmannaráðs SFR sem var haldinn í gær var fjallað um konur, örorku og hindranir á vinnumarkaði. Einnig var sagt frá vinnu í framkvæmdanefnd um starfsendurhæfinu. Þá var farið yfir hvað væri framundan hjá SFR og þar litaðist umræðan af stöðu efnahagsmála.
30. september 2008
Frjóar umrćđur á morgunverđarfundi
Síðast liðinn þriðjudag áttu Árni St. Jónsson, formaður SFR, Þórarinn Eyfjörð, framkvæmdastjóri , félagsins, stjórnarmenn og starfsfólk skrifstofu SFR mjög góðan morgunverðarfund með félagsmönnum. Farið var yfir þjónustu og starfsemi SFR, og hugmyndir að nýjungum. Markmið með þessum fundum er að auka tengsl milli stjórnar SFR og félagsmanna, ásamt því að stuðla að meiri samheldni og virkni innan félagsins. Á fundinum sköpuðust góðar umræður.
26. september 2008
SFR og Matís skrifa undir nýjan kjarasamning
19. september 2008
Vika símenntunar 22. - 28. september
18. september 2008
Málţing um eldri starfsmenn
Geta eldri starfsmenn verið lykillinn að velgengni fyrirtækja? Þessi spurning verður rædd og reifuð á málþingi á vegum Verkefnisstjórnar 50+ sem haldið verður í Ketilshúsi á Akureyri fimmtudaginn 25. september milli klukkan 13 og 16.
16. september 2008
SFR blađiđ, 6. tbl.
Í 6. tbl. SFR blaðsins á þessu ári er fjallað um niðurstöður úr nýrri launakönnun SFR. Dagskrá Gott að vita námskeiðanna er kynnt og minnt á fjölbreytt námsframboð hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt en hvoru tveggja er án endurgjalds fyrir SFR félaga. Ný launatafla SFR og ríkisins er birt og fjallað um hvaða kjarasamningum er lokið og hvað er framundan í þeim málum. Þá er sagt frá því að ritnefnd SFR stendur fyrir smásagnasamkeppni og að BSRB stendur fyrir starfslokanámskeiði.
12. september 2008
Ekki bara launamunur kynja
- einnig 20% launamunur milli starfsmanna ríkisins og starfsmanna á almennum markaði
Á fundi trúnaðarmanna, sem haldinn var í dag, voru niðurstöður úr nýrri launakönnun SFR kynntar. Einnig var kynntur samanburður milli SFR og VR félaga. Þegar félagsmenn þessara stéttarfélaga eru skoðaðir þá kemur fram að starfsmenn ríkisins eru að meðaltali með 20% lægri laun en starfsmenn almenna markaðarins þegar sambærilegar stéttir eru skoðaðar. Trúnaðarmannaráð SFR gerir þá sjálfssögðu kröfu, að launamunur milli starfsmanna ríkisins og starfsmanna á almennum markaði verði leiðréttur. Nálgast má glærur af kynningunni HÉR.
11. september 2008
Launamunur kynjanna eykst um 3% milli ára!
SFR birtir í annað sinn launakönnun félagsins meðal félagsmanna SFR. Launakönnunin miðaðist við 1. febrúar 2008. Launakönnunin gefur ítarlegar upplýsingar um kaup og kjör ríkisstarfsmanna og mögulegt er nú í fyrsta sinn að gera samanburð á milli ára á launaþróun félagsmanna SFR. Niðurstaða könnunarinnar er sláandi þegar kemur að launamuni kynjanna sem eykst um 3% milli ára. Grunnlaun félagsmanna SFR hafa hækkað um 14% og heildarlaun hafa hækkað um 11% á milli áranna 2007 og 2008. Á sama tíma hefur launavísitala Hagstofunnar fyrir opinbera starfsmenn hækkað um 6,1%. Hækkunin hjá félagsmönnum SFR er því töluvert meiri en almennt hjá opinberum starfsmönnum á tímabilinu.
10. september 2008
Jól og áramót í orlofshúsum
9. september 2008
Helmingur félagsmanna fór í launa-/starfsmannaviđtöl
- niðurstöður úr launakönnun SFR 2008 verða birtar 11. september
Rúmur helmingur félagsmanna eða 50,7% fór í starfsmannasamtal og/eða launaviðtal á síðasta ári og er það um 7% aukning frá árinu þar á undan, sem er mjög ánægjulegt. Þriðjungur þeirra sem fóru í starfsmanna- og/eða launviðtal sögðu að kjör sín og/eða starf hefði breyst til hins betra í kjölfarið og einungis tæp 20% undirbjuggu sig fyrir viðtalið með því að skoða launakannanir og nota upplýsingar úr þeim.
9. september 2008
Orlosfhús ađ vetri til
4. september 2008
Fréttabréf trúnađarmanna fariđ í póst
4. september 2008
Heilbrigđisţjónustan - á vegferđ til einkavćđingar
BSRB hefur gefið út erindi sem Allyson Pollock, prófessor við háskólann í Edinborg, hélt á vegum bandalagsins sl. vor. Yfirskrift erindisins er Heilbrigðisþjónustan - á vegferð til einkavæðingar. Bæklingurinn er mikilvægt innlegg í umræðuna um frumvarp ríkisstjórnarinnar um sjúkratryggingar sem er til umræðu nú á haustþingi.
3. september 2008
Morgunverđarfundir međ félagsmönnum
Í haust verða haldnir morgunverðarfundir / hádegisverðarfundir með félagsmönnum SFR. Hugmyndin á bak við fundina er að auka tengsl milli stjórnar SFR og félagsmanna, ásamt því að stuðla að meiri samheldni og virkni innan félagsins. Rætt er um núverandi þjónustu og starfsemi SFR, þjónustu sem SFR býður upp á en er ekki mikið notuð og hugmyndir að nýjungum. Áhugasamir geta skráð sig á fundina ...
29. ágúst 2008
Fyrirkomulag launamyndunarkerfa rćdd á NSO ráđstefnu
Ráðstefna NSO í Visby heldur áfram í dag. Í morgun fóru fulltrúar stéttarfélaganna yfir fyrirkomulag launamyndunarkerfa sinna heimalanda. Skýrðu fulltrúarnir frá því hvers konar aðferðarfræði lægi til grundvallar tengingu árangurstengdra launa við grunnlaun. Árni St. Jónsson, formaður SFR, lagði út af gerð stofnanasamninga í málflutningi sínum.
28. ágúst 2008
NSO ráđstefnan haldin í Visby á Gotlandi
Eins og margir félagsmenn SFR vita, þá hefur félagið og systurfélög þess á Norðurlöndum með sér samtök sem kallast NSO, sem eru samstarfs-ettvangur opinberra starfsmanna á Norður-löndunum með þátttöku stéttarfélaga frá öllum löndunum. Ráðstefnur NSO eru haldnar árlega og eru vel sóttar, m.a. koma gestir frá öllum fjármálaráðuneytum landanna og fyrirlesarar eru ætíð sérfræðingar í málefnum opinbera vinnumarkaðarins og koma hvaðanæva að.
22. ágúst 2008
Tímamót í trúnađarmannafrćđslunni
20. ágúst 2008
Endurmenntun HÍ - afsláttarkjör á ákveđnum námskeiđsflokkum
14. ágúst 2008
Veffréttabréf Frćđslusetursins Starfsmenntar komiđ út
- Fjölbreytt fræðsla fyrir starfsfólk Fræðslusetrið Starfsmennt býður upp á fjölbreytt úrval námskeiða í haust fyrir starfsfólk og stofnanir. Markmið með námi Starfsmenntar er að koma til móts við breytingar á starfsumhverfi og störfum og greiða leið að metnaðarfullri símenntun.
12. ágúst 2008
Gistimiđar á Fosshótel og Edduhótel uppseldir
7. ágúst 2008
Vinnuvistfrćđi er lífsstíll - alţjóđleg ráđstefna í Reykjavík
6. ágúst 2008
SFR hefur lokiđ ţremur kjarasamningum
- Framundan eru samningar við Matís og Flugstöð Leifs Eiríkssonar / Fríhöfn
Kjarasamningur SFR og ríkisins var laus 30. apríl sl. Vegna óvissu í efnahagsmálum á vormán-uðunum var ákveðið að stefna að skammtíma-samningi og samninganefnd BSRB var falið að leiða samningaviðræðurnar við ríkið. Þann 25. maí var undirritað samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi aðila. Í kjölfarið fylgdu samningur við SFH og nýr kjarasamningur við RARIK ohf. SFR vinnur nú að gerð kjara-samnings við Matís ohf. og 30. nóvember nk. rennur út kjarasamningur SFR og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og Fríhafnarinnar.
14. júlí 2008
Kjarasamningur SFR og RARIK ohf. samţykktur
Kjarasamningur SFR og RARIK ohf. hefur verið samþykktur.
Á kjörskrá voru 39. Atkvæði greiddu 24 og þátttaka því 61,5%.
Já sögðu 20 eða 83,3%. Nei sögðu 4 eða 16.7%
2. júlí 2008
SFR og RARIK skrifa undir nýjan kjarasamning
SFR og RARIK hafa skrifað undir nýjan kjarasamning. RARIK varð að opinberu hlutafélagi 1. ágúst 2006 með sérstökum lögum og heyrði fyrirtækið því ekki lengur undir þau lög sem opinberar stofnanir og starfsmenn þeirra heyra undir. RARIK varð aðili að Samtökum atvinnulífsins og því var nauðsynlegt að gera nýjan kjarasamning við fyrirtækið í þessu breytta umhverfi. Samningurinn gildir frá 1. maí 2008 til 31. desember 2010 með endurskoðunarákvæði sambærilegum þeim sem samnið var um á almennum markaði í byrjun árs.
1. júlí 2008
Kjarasamningur SFR og SFH samţykktur
1. júlí 2008
Orlofsvefur SFR liggur niđri
23. júní 2008
Kjarasamningur SFR og SFH undirritađur
18. júní 2008
Hvađ á ađ gera í fríinu?
13. júní 2008
Greitt samkvćmt nýjum kjarasamningi um nćstu mánađarmót
12. júní 2008
Kjarasamningur SFR og ríkisins samţykktur
Kjarasamningur SFR og ríkisins f.h. fjármálaráð-herra sem skrifað var undir 25. maí síðastliðinn hefur verið samþykktur. Á kjörskrá voru alls 5554 félagsmenn hjá ríki og sjálfseignastofnunum*. Af þeim greiddu 1855 félagsmenn atkvæði eða 33,4%. Já sögðu 1624 eða 87,65%. Nei sögðu 202 eða 10,89%. Þeir sem skiluðu auðu voru 29 eða 1,56%.
12. júní 2008
Opiđ fyrir helgarleigu núna um helgina
Búið er að opna fyrir helgarleigu núna um helgina. Eingöngu bókanlegt á netinu. Bóka orlofshús.
12. júní 2008
Atkvćđagreiđslu um kjarasamning lýkur í dag kl. 16
Frestur til að greiða atkvæði um kjarasamning SFR við ríkið rennur út kl. 16 í dag, 12. júní. Öllum félagsmönnum, sem þessi samningur nær til, hefur verið sendur bréfa-póstur með lykilorði og leiðbeiningum um rafræna atkvæðagreiðslu ásamt samningnum. Við hvetjum alla félagsmenn að nýta atkvæðisrétt sinn! HÉR má nálgast kynningu á kjarasamningnum.
11. júní 2008
Húsfyllir á blómstrandi menningarhátíđ í Munađarnesi
Húsfyllir var á menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi laugar-daginn 7. júní þegar myndlistarsýning Soffíu Sæmunds-dóttur, Sumarganga, var opnuð. Hátíðargestir skemmtu sér konunglega við upplestur Þórarins Eldjárns á ljóðum sínum og tónlistaratriðum.
5. júní 2008
Menningarleg helgarleiga í Munađarnesi
5. júní 2008
Rafrćn atkvćđagreiđsla um kjarasamning hafin
Rafræn atkvæðagreiðslu um kjarasamning SFR við ríkið hófst í dag kl. 9 og lýkur 12. júní kl. 16. Öllum félagsmönnum, sem þessi samningur nær til, hefur verið sendur bréfapóstur með lykil-orði og leiðbeiningum um rafræna atkvæða-greiðslu ásamt samningnum. Við hvetjum alla félagsmenn að nýta atkvæðisrétt sinn!
4. júní 2008
Félag ráđgjafa og stuđningsfulltrúa stofnađ
Í gær var stofnfundur Félags ráðgjafa og stuðningsfulltrúa sem er deild innan SFR, en þeir vinna hjá Svæðisskrifstofum málefna fatlaðra, á Landspítala og hjá Ás styrktarfélagi. Vel var mætt á fundinn og ný stjórn kjörinn en hana skipa Arnar Ingi Richardsson, formaður, Aðalheiður Magnúsdóttir, Auður Egilsdóttir, Elínborg Karlsdóttir, Gísli Páll Guðjónsson, Hildur Ársælsdóttir og Vésteinn Valgarðsson.
4. júní 2008
Akstursgjald og dagpeningar hćkka
3. júní 2008
Kynningarfundur kjarasamnings sendur međ fjarfundarbúnađi
Fyrstu kynningarfundir kjarasamninga BSRB og ríkisins voru í gær og var nýr fjarfundabúnaður í BSRB húsinu vígður við það tækifæri, en fundurinn var sendur til Patreksfjarðar. SFR verður með sérstaka kynningarfundi á stærri vinnustöðum, það er á Landspítala, hjá Tollstjóra og Skattstjóra í Reykjavík, í Háskóla Íslands, á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, hjá ÁTVR og fyrir Tryggingastofnun, Lögreglustjóra höfuðborgar-svæðisins og Vegagerðina. Einnig eru sameiginlegir fundir með BSRB aðildarfélögunum um allt land.
3. júní 2008
Félag ráđgjafa og stuđningsfulltrúa endurvakiđ
29. maí 2008
Kynning á kjarasamningi
27. maí 2008
Kynning kjarasamnings undirbúin
Nú stendur yfir skipulagning á því hvernig nýundirritaður kjarasamningur verður kynntur fyrir félagsmönnum. Haldnar verða sameiginlegar kynningar á vegum BSRB út um allt land og verður listi yfir tíma og staðsetningar birtur í vikunni. Einnig mun SFR heimsækja stærri vinnustaði og vera með kynningu og listi yfir það verður einnig birtur í lok vikunnar.
26. maí 2008
Kjarasamningar undirritađir
Kjarasamningar voru undirritaðir á miðnætti í Karphúsinu. Það voru BSRB félögin, sem voru með lausa samninga, er gerðu þennan samning. Samið er til skamms tíma og nær gildistíminn til til 31. mars 2009. Samið var um 20.300.- króna hækkun sem leggst við alla launaflokka.
25. maí 2008
Samninganefnd SFR í stífri vinnu í Karphúsinu
Ákveðnar tillögur að launabreytingum uppi á borðum.
23. maí 2008
Rétt í ţessu var samningafundi frestađ
23. maí 2008
Laust í orlofshúsum nú um helgina
22. maí 2008
Mikilvćgast í lífi og starfi - stofnun ársin
Í könnun SFR á Stofnun ársins voru þátttakendur beðnir að velja fimm mikilvæg atriði sem skipta þá máli í lífi og starfi og forgangsraða þeim. Um 53% svarenda líta á góð laun sem mikilvægast í starfi. Það sem er langmikilvægast í lífinu er að heilsan sé góð, 67% þátttakenda SFR setja það atriði í fyrsta sæti.
20. maí 2008
Miđar hćgt í viđrćđum.
16. maí 2008
Ríkisskattstjóri og Skattrannsóknarstjóri ríkisins
STOFNANIR ÁRSINS 2008
Ríkisskattstjóri er efstur á lista yfir stofnun ársins en Skattrannsóknarstjóri ríkisins er efstur í flokki minni stofnana. Þetta er þriðja árið sem Skattrannsóknarstjóri ríkisins lendir í fyrsta sæti. Í öðru sæti í hópi stærri stofnana er Umferðarstofa og í því þriðja Sjálfbjargarheimilið. Í hópi minni stofnana er Sýslumaðurinn í Vík í öðru sæti og Skattstofa Austurlands í því þriðja. Sýslumaður Snæfellinga bætti sig mest á milli ára og er því hástökkvari ársins.
Sigurvegarinn frá fyrri árum hefur ekki látið deigan síga þetta árið því Skattrannsóknarstjóri ríkisins hlýtur titilinn Stofnun ársins þriðja árið í röð og er að þessu sinni í hópi minni stofnana. Þetta er frábær árangur og sterk vísbending um að mikil áhersla sé lögð á gott innra starf hjá stofnuninni. Einnig er athyglisvert að Ríkisskattstjóri vermir efsta sætið í hópi stærri stofnana, en þess má geta að fyrrum skattrannsóknarstjóri ríkisins, Skúli Eggert Þórðarson, er einmitt í dag ríkisskattstjóri.
15. maí 2008
Markvissar viđrćđur viđ samninganefnd ríkisins hefjast
Fulltrúar BSRB áttu í dag annan fund með fjórum ráðherrum ríkisstjórnarinnar, forsætis-, utanríkis-, fjármála- og félagsmálaráðherra vegna lausra samninga við ríkið. Að sögn Ögmundar Jónassonar formanns BSRB var þetta ágætur fundur og niðurstaða hans sú að hafnar yrðu markvissar viðræður samninganefndar ríkisins og BSRB um gerð kjarasamnings.
15. maí 2008
Tilkynnt um stofnun ársins á morgun
7. maí 2008
Gagnlegur fundur međ ríkisstjórninni
Fundi fulltrúa BSRB og fjögurra ráðherra ríkisstjórn-arinnar í Stjórnarráðinu lauk nú skömmu fyrir kl. 13. Að sögn Ögmundar Jónassonar formanns BSRB var þetta ágætur fundur þar sem skipst var á skoðunum og upplýsingum. Það var sameiginleg niðurstaða aðila að efna til annars fundar með sömu aðilum í næstu viku.
5. maí 2008
Iceland Express gjafabréfin - vinsćl og vel nýtt
Eingöngu til sölu á Orlofsvef SFR
Opnað verður fyrir kaup á Iceland Express gjafabréfum í dag 5. maí kl. 12.00. Salan fer nú fram með öðrum hætti en áður. Opnaður hefur verið nýr Orlofsvefur SFR þar sem félagsmenn geta í framtíðinni átt nánast öll viðskipti vegna orlofsmála rafrænt. Hvert gjafabréf kostar kr. 13.000 en er að andvirði kr. 20.000, sem er 35% afsláttur. Hægt verður að kaupa miðana frá kl. 12.00 þann 5. maí 2008 til kl. 12.00 þann 9. maí 2008. Ef gjafabréfin seljast ekki öll á umræddum tíma verður sölutími framlengdur.
2. maí 2008
BSRB vill rćđa viđ ríkisstjórn Íslands
Samninganefndarfundi í Karphúsi lokið. Aðildarfélög BSRB vilja ræða við ríkisstjórnina.
2. maí 2008
Ađildarfélög BSRB á samningafundi međ samninganefnd ríkisins
BSRB leggur áherslu á að samið verði til skamms tíma. Ríkið helur fram áherlsu á að samið verði til lengri tíma. Viðræðunefnd BSRB var rétt í þessu að koma af fundi með samninganefnd ríkisins, en 15 mínútna hlé hefur verið gert á fundinum. Aðildarfélög BSRB standa einhuga að baki þeirri hugmynd að samið verði til skamms tíma...
2. maí 2008
Gott samfélag byggt á samkennd og velferđ borgaranna
Fjölmenni var á baráttufundum verkalýðshreyfingarinnar víða um land á 1. maí. Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, var einn ræðumanna á fundinum á Ingólfstorgi. Hann kom víða við í ræðu sinni og sagði meðal annars að íslenska velferðarkerfið væri ekki síst að þakka baráttu forvera okkar í framvarðarsveit verkalýðshreyfingarinnar. „Að byggja upp réttlátt samfélag fyrir alla landsmenn hefur kostað blóð, svita og tár. Launafólk hefur aldrei fengið neitt á silfurfati. Og við skulum ekki halda að það sem við lítum á sem sjálfsögð mannréttindi, eins og t.d. að allir eigi jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu, menntun og annarri velferðarþjónustu, sé eitthvað sjálfgefið. Við þurfum stöðugt að vera á verði.“
30. apríl 2008
1. MAÍ - alţjóđlegur baráttudagur launafólks
Fjölmennum í kröfugöngur og sýnum í verki að við krefjumst bættra kjara.
Hver er staðan? Færð þú sanngjörn laun fyrir vinnu þína? Er launamunur kynjanna ásættanlegur? Fá umönnunarstéttir sanngjörn laun? Getur þjóðin verið stolt af aðbúnaði öryrkja? Getur þjóðin verið stolt af aðbúnaði aldraðra? Er sanngjarnt að láglaunafólk borgi sömu skattprósentu og ofurlauna-yfirstéttin? Er launamunurinn í samfélaginu ásættanlegur? Á launafólk að borga verðbólguna? Er ástæða til að launafólk sýni samstöðu 1. maí og berjist fyrir bættum kjörum?
29. apríl 2008
SFR blađiđ, 1. maí blađ
Í 4. tölublaði SFR blaðsins á þessu ári er viðtal við trúnaðarmann ársins. Einnig eru hin vinsælu Iceland Express gjafabréf auglýst, en opnað verður fyrir kaup á þeim þann 5. maí nk. kl. 12.00. Fjallað er um kröfugerð fyrir komandi kjarasamninga og launaþróun félagsmanna á samningstímabilinu sem er að líða. Þá er leiðarinn tileinkaður 1. maí, baráttudegi launafólks, ásamt því að hagfræðingarnir Edda Rós Karlsdóttir og Sigurður Jóhannesson svara þremur spurningum sem brenna á þjóðinni þessa dagana.
29. apríl 2008
Íbúđin á Grandavegi sem ný
Nú er lokið endurbótum á orlofsíbúð SFR á Grandavegi og má segja að hún sé sem ný. Innréttingar í eldhúsi og baðherbergi voru endurnýjaðar, en um leið voru húsgögn í stofu og borðstofu endurnýjuð, parket pússað og allt málað.
25. apríl 2008
Verđur fariđ í samninga til lengri eđa skemmri tíma? SFR ásamt félögunum innan BSRB kallar eftir ákvörđun.
24. apríl 2008
Lítiđ miđar í samningaviđrćđum.
23. apríl 2008
Íbúđin í Köben laus NÚNA um helgina!
22. apríl 2008
Orlofsúthlutunarkerfi í góđum gangi, innsetning upplýsinga tefst
22. apríl 2008
Samningafundum aflýst - og ţeir fćrđir!
19. apríl 2008
Viđgerđ á úthlutunarkerfi orlofsmála lokiđ
19. apríl 2008
Enn veriđ ađ vinna ađ lausn tölvuvandans viđ úthlutanir
18. apríl 2008
Tölvukerfiđ veldur vandrćđum viđ úthlutun orlofshúsa
16. apríl 2008
SFR og samninganefnd ríkisins hittast í annađ sinn
15. apríl 2008
Laust í íbúđinni í Köben
11. apríl 2008
Félag heilbrigđisritara opnar vefsíđu
Félag heilbrigðisritara (FHR), sem er fagfélag innan SFR, opnaði eigin vefsíðu, www.heilbrigdisritarar.sfr.is á aðalfundi sínum sem haldinn var í gær. Það er von stjórnar FHR að vefsíðan verði til þess að efla enn frekar tengsl félagsmanna og að hún auðveldi upplýsingaflæði.
10. apríl 2008
Ert ţú međal vinningshafa?
- niðurstöður í könnun SFR á Stofnun ársins 2008 kynntar í maí
Dregið hefur verið í happdrætti sem haldið var í tengslum við könnun SFR á Stofnun ársins og launakjörum 2008. Númerin eru sem hér segir: 4296, 5213, 7384, 9709, 15537, 28097, 31115, 31832, 33455 og 40235. Vinningshöfum er bent á að hafa samband við SFR í síma 525-8340.
10. apríl 2008
Umsóknarfrestur sumarúthlutunar er 11. apríl
7. apríl 2008
Kjarasamningsviđrćđur viđ ríkiđ hafnar
Samninganefnd SFR - stéttarfélags og samninga-nefnd ríkisins funduðu í fyrsta sinn kl. 15 í dag í húsakynnum ríkissáttasemjara.
2. apríl 2008
Samningar SFR viđ ríkiđ ađ hefjast
1. apríl 2008
Magnea Bjarnadóttir er trúnađarmađur ársins 2007
Tilkynnt var um val á trúnaðarmanni ársins á aðalfundi SFR síðastliðinn laugardag. Það var Magnea Bjarnadóttir, trúnaðarmaður á Skattstofu Suðurlands, Hellu, sem hlaut titilinn fyrir árið 2007. Magnea er vel að titlinum kominn en hún hefur verið trúnaðarmaður frá árinu 1995 og einnig setið í stjórn Styrktar- og sjúkrasjóðs SFR.
31. mars 2008
Misrétti í launum hefur aukist
Aðalfundur SFR - stéttarfélags í almannaþjónustu sem haldinn var síðastliðinn laugardag bendir á að misrétti í launum hefur aukist í samfélaginu á undanförnum árum. Bilið á milli þeirra sem hafa hæstu launin og þeirra sem hafa lægstu launin hefur verið að aukast. Aðalfundur SFR telur mikilvægt að horft verði til þess við gerð næstu kjarasamninga. En á fundinum voru samþykktar ályktanir um almannaþjónustu, kjaramál, efnahags- og skattamál og umhverfismál - lofstlagsmál. Einnig var samþykkt framtíðarsýn félagsins.
28. mars 2008
Ađalfundur SFR laugardaginn 29. mars kl. 13
Nú ætti skýrsla stjórnar SFR 2007-2008 að hafa borist félagsmönnum en aðalfundur félagsins verður haldinn á morgun, laugardaginn 29. mars kl. 13. Á dagskrá eru venjubundin aðalfundarstörf. Fundargerð síðasta aðalfundar má nálgast hér.
27. mars 2008
Nýr starfsmađur SFR
- þjónustufulltrúi trúnaðarmannaAlma Lísa Jóhannsdóttir hóf störf hjá SFR í febrúarlok, en hún er með BA - próf í menningar- og félagsfræðum auk þess að hafa lagt stund á framhaldsnám í uppeldis- og kennslufræðum. Hún hefur starfað sem forstöðumaður hjá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Suðurlandi undanfarin ár. SFR hefur lengi haft áhuga á að auka þjónustuna við trúnaðarmenn til að styrkja þá í hlutverki þeirra og er ráðning Ölmu tilraun til að tengja trúnaðarmenn enn frekar inn í hið daglega starf SFR.
27. mars 2008
Leiđakerfi neytenda
Leiðakerfi neytenda, www.neytandi.is, sem er gagnvirk vefgátt á vegum talsmanns neytenda var opnuð af viðskiptaráðherra nýlega. Þar geta neytendur á einum stað leitað bæði upplýsinga um rétt sinn og fengið aðstoð við að leita réttar síns.
17. mars 2008
Fjölbreytt orlofsár framundan
Vorið er ekki langt undan og rennur þá upp sá tími sem félagsmenn fara að huga að orlofsmálum og skipulagi fyrir sumarið. Að venju býður Orlofssjóður SFR upp á fjölda orlofstilboða, sjá SFR blað. Stjórn sjóðsins hefur lagt áherslu á að þróa nýjar leiðir til að mæta óskum félagsmanna og í ár eru kynntar til sögunnar nýjungar sem vonandi falla félagsmönnum vel í geð. Hægt verður að sækja um rafrænt hér á vef SFR innan tíðar. Verið er að taka upp nýtt orlofsumsjónarkerfi og er umsóknarformið aðeins á eftir áætlun, en ætti að vera tilbúið næstkomandi miðvikudag. Umsóknarfrestur er til og með 11. apríl 2008.
14. mars 2008
Samninganefnd kosin á fundi launamálaráđs
Á fundi launamálaráðs SFR síðastliðinn miðvikudag var lögð lokahönd á kröfugerð SFR fyrir komandi kjarasamning við ríkið og kosið í samninganefnd. Drög að viðræðuáætlun við samninganefnd ríkisins liggja fyrir, sem báðir samningsaðilar hafa samþykkt, en eftir er að ganga frá henni formlega. Miðað er við að umræða um réttindamál verði á sameiginlegu borði BSRB, og jafnhliða muni stéttarfélögin fara fram með sín mál. Stefnt er að því að birta kröfugerð SFR hér á vefnum eftir að hún hefur verið kynnt samningsaðilum.
14. mars 2008
Endurbćtur á orlofsíbúđ SFR á Grandavegi
Nú standa yfir endurbætur á orlofsíbúð SFR á Grandavegi, en íbúðin hefur verið vel nýtt og því kominn tími á viðhald. Verið er að taka baðherbergið og eldhúsið í gegn.Verkinu miðar vel og stefnt er að því að vinnu við þetta ljúki fljótlega eftir páska.
14. mars 2008
Fundur í stjórn Starfsmenntunarsjóđs frestast
11. mars 2008
Kraftmikill baráttudagur 8. mars
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna var haldinn hátíðlegur sl. laugardag. "Friður og menning" var yfirskrift fjölbreyttrar dagskrár í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Að fundinum stóðu fjölmörg félög og hagsmunasamtök sem starfa þágu kvenna, launafólks, jafnréttis, mannréttinda og friðar.
11. mars 2008
Bera atvinnurekendur ábyrgđ á launamun kynjanna?
Margrét Kristmannsdóttir framkvæmdastjóri Pfaff og formaður Félags kvenna í atvinnurekstri var á meðal frummælenda á fundi samtaka launafólks um launajafnrétti 6. mars sl. Margrét á sæti í öðrum af tveimur starfshópum sem félagsmálaráðherra skipaði í haust en meginviðfangsefni þeirra er að leita markvissra leiða til að eyða óútskýrðum launamun kynjanna, sem og að jafna stöðu kvenna og karla í nefndum og við stjórnun stofnana og fyrirtækja. Margt athyglisvert er að finna í erindi Margrétar og er það birt hér á eftir í heild sinni.
7. mars 2008
Velheppnađur fundur um ađgerđir til ađ ná launajafnrétti
Aðferðir til að ná launajafnrétti - kostir, gallar og nýjar hugmyndir, var yfirskrift fundar sem samtök launafólks BSRB, BHM, ASÍ,KÍ og SSF stóðu fyrir í dag í Rúgbrauðsgerðinni. Fundurinn var haldinn í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars. Hann var vel sóttur og heppnaðist mjög vel.
3. mars 2008
Tillaga trúnađarmannaráđs um fulltrúa í stjórnir fyrir ađalfund
Þann 19. febrúar síðastliðinn fundaði trúnaðar-mannaráð SFR og meðal dagskrárliða var undir-búningur fyrir aðalfund sem haldinn verður 29. mars nk., en samkvæmt lögum félagsins ber uppstillinganefnd að leggja tillögur sínar fyrir trúnaðarmannaráð, eigi síðar en 35 sólarhringum fyrir aðalfund.
29. febrúar 2008
Laus orlofshús um páskana - ekkert laust núna
Núna, 10. mars, eru engin laus hús um páskana. Öll laus hús eru gengin út. (Um páskana hafa losnað orlofshús í Munaðarnesi, Stóruskógum og á Eiðum. Áhugasamir setji sig í samband við skrifstofu SFR á mánudaginn í s. 525-8340.)
28. febrúar 2008
Málstofa um lífeyrismál
BSRB stendur fyrir málstofu um lífeyrismál í BSRB - húsinu, Grettisgötu 89, föstudaginn 29. febrúar kl. 13 - 15.30. Erindi flytja Sigurður Einarsson stjórnarformaður Kaupþings banka, Sigríður Lillý Baldursdóttir forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins, Hrafn Magnússon framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóða, Katrín Jakobsdóttir alþingismaður og Ögmundur Jónasson formaður BSRB. Fundarstjóri er Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður Sjúkraliðafélags Íslands.
26. febrúar 2008
Skilafrestur framlengdur til 3. mars
22. febrúar 2008
Skilafrestur framlengdur - Stofnun ársins
21. febrúar 2008
Sigur í tveimur dómsmálum
16. febrúar 2008
Stofnun ársins - Á 35 stofnunum taka allir starfsmenn ţátt
Í ár eru það 35 stofnanir sem hafa óskað eftir að allir starfsmenn taki þátt í vali á stofnun ársins og er það tæplega 50% aukning frá því í fyrra. Þetta er ánægjuleg fjölgun þar sem betri heildarmynd næst með þátttöku allra starfsmanna, jafnt SFR félaga sem annarra.
12. febrúar 2008
Samtök atvinnulífsins gera ekki kjarasamninga fyrir opinbera starfsmenn!
8. febrúar 2008
Gagnlegur fundur um málefni lćknaritara
7. febrúar 2008
Lćknaritarar fjölmenna á ţingpalla
Læknaritarar flykktust á áheyrendapalla Alþingis til að hlýða á utandagskrárumræðu um málefni læknaritara en þar fór Ögmundur Jónasson þingmaður yfir fyrirhugaða einkavæðingu á störfum læknaritara á Landspítala í utandagskrárumræðu á Alþingi í dag. Rakti hann málefni Landspítalans og þá úlfakreppu sem spítalinn hefur verið í á undanförnum árum. (Mynd: GVA)
7. febrúar 2008
Uppsagnir starfsmanna dćmdar ólöglegar
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Landspítala til að greiða þremur starfsmönnum bætur vegna uppsagna en dómurinn taldi, að ekki hefði verið rétt staðið að uppsögnum starfsmannanna árið 2006.
7. febrúar 2008
Tímamót í trúnađarmannafrćđslunni
BSRB í samvinnu við Félagsmálaskóla alþýðu mun vorið 2008 og næstu misseri bjóða upp á mjög öfluga trúnaðarmannafræðslu sem metin verður til allt að 10 eininga á framhaldsskólastigi, fer eftir skóla og námsbraut. Námið verður í fimm hlutum og fyrsti hluti verður kenndur 17.-19. mars nk. Til að byrja með mun SFR bjóða þeim trúnaðarmönnum sem lokið hafa grunn- og framhaldsnámskeiði trúnaðarmanna - Samstíga til framtíðar - að sækja þetta nám.
5. febrúar 2008
Útsending spurningalista fyrir launakönnun og stofnun ársins
1. febrúar 2008
SFR óskar eftir sumarhúsum til leigu
Undirbúningur fyrir orlofsvalmöguleika félagsins á komandi sumri er í fullum gangi en stjórn Orlofssjóðs SFR er í sífelldri endurskoðun á fyrirkomulagi orlofsmála, enda félagsmenn mjög áhugasamir um fjölbreytt tilboð. Því óskar SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu eftir sumarhúsum til framleigu fyrir félagsmenn sína sumarið 2008. Leitað er eftir sumarbústöðum eða íbúðum í góðu ásigkomulagi.
31. janúar 2008
Ţjónustufulltrúi trúnađarmanna
31. janúar 2008
Orlofshús um páska - Kaupmannahöfn gleymdist
30. janúar 2008
SFR blađiđ, janúar 2008
Í 1. tölublaði SFR blaðsins á þessu ári er fjallað um úthýsingu læknaritunar. Umsóknarfyrirkomulag fyrir páskaúthlutun er kynnt og námskeið á vorönn. Þá skrifar Ragnar Ingimundarson, hagfræðingur hjá BSRB, um efnahagshorfur við upphaf kjarasamninga og sagt er frá störfum launamálaráðs. Einnig er sagt frá frá því að SFR mun aftur standa að könnun á ánægju, starfsskilyrðum og líðan fólks á vinnustað undir heitinu Stofnun ársins og að samhliða þeirri könnun munu félagsmenn SFR öðru sinni taka þátt í launakönnun.
28. janúar 2008
SFR hafnar einkavćđingu viđkvćmra persónuupplýsinga
Trúnaðarmannaráð SFR tekur eindregna afstöðu gegn einkavæðingu á heilsufarsupplýsingum félagsmanna.
25. janúar 2008
Nýtt skráningarkerfi fyrir Gott ađ vita námskeiđin
Á vef SFR er komið upp nýtt skráningarkerfi fyrir Gott að vita námskeiðin sem félagið hefur haldið í samstarfi við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar undanfarin ár. Kerfið gerir allt utanumhald námskeiða einfaldara fyrir umsjónarmenn og auðveldar aðgengi félagsmanna. Á vorönn eru áfram í boði sígild námskeið eins og Ljósmyndun, Hvort ég get, ekki málið (sjálfsímynd og samskipti) og Skapandi skrif, en einnig eitthvað nýtt í bland. Fyrstu námskeiðin hefjast 29. jan. Dagskrá og skráning HÉR.
18. janúar 2008
Sólarstrandatilbođ - panta draumaferđina sem fyrst
15. janúar 2008
Einkavćđingin á Landspítalanum
Ögmundur Jónasson og Árni Stefán Jónsson fjalla um störf læknaritara í Morgunblaðinu í dag og þar segir meðal annars: "Læknaritarastarfið er eitt af lykilstörfum í heilbrigðiskerfinu. Persónuverndarsjónarmið og krafa um góða fagmennsku eru þar grundvallaratriði. |
![]() |
14. janúar 2008
Íslenska fyrir útlendinga
12. janúar 2008
Vaktavinnumálin í hnút - slitnađ upp úr viđrćđum.
11. janúar 2008
Stofnun ársins 2008 og launakönnun SFR
Á næstu vikum mun árleg launakönnun SFR verða gerð og samhliða verður Stofnun ársins valin. Þetta er viðamesta könnun á vinnuumhverfi í íslenskum stofnunum. Niðurstöðurnar eru stjórnendum mikilvægur mælikvarði á það hvað vel er gert og hvað má betur fara og starfsmenn stofnana fá tækifæri til að segja stjórnendum hvað þeim finnst um vinnustaðinn. Upplýsingar úr launakönnun eru síðan öflugt tæki fyrir félagsmenn til að hafa sem viðmiðun í launaviðtölum. Þetta er í þriðja sinn sem val á Stofnun ársins fer fram og annað sinn sem launakönnun er framkvæmd meðal SFR félagsmanna.
9. janúar 2008
Lćknaritarar uggandi um stöđu sína
Bekkurinn var þéttsetinn á fundi á Landspítalanum (LSH) í gær þar sem kynnt var útvistun á störfum læknaritara. Að sögn Þuríðar Þórðardóttur, talsmanns Samtaka læknaritara á LSH , var mikill hiti og reiði í læknariturum sem eru uggandi um stöðu sína. En ekkert samráð hefur verið haft við þær í þessu ferli. SFR mun skoða réttarstöðu þessara félagsmanna en á annað hundrað læknaritara starfa á spítalanum.
3. janúar 2008
Sólarstrandatilbođ slćr í gegn
Í byrjun desember var auglýst sú nýbreytni að félagsmönnum bauðst að sækja um gjafabréf, sem hægt er að nota sem greiðslu inn á sólarstrandaferð, í stað sumarhúsa á Spáni. Í boði eru 100 gjafabréf og skemmst er frá því að segja að þetta sló í gegn en um 300 umsóknir bárust. Umsóknarfrestur rann út 21. desember og er nú unnið að úthlutun.
2. janúar 2008
Jólagleđi á Hótel Sögu
Hátt í 300 manns mættu á jólaball SFR og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sem haldið var í Súlnasal Hótel Sögu á milli jóla og nýárs. Hljómsveit hússins stýrði fjörinu og naut dyggrar aðstoðar frískra barna sem sungu og dönsuðu af krafti.

Ögmundur Jónasson og Árni Stefán Jónsson fjalla um störf læknaritara í Morgunblaðinu í dag og þar segir meðal annars: "Læknaritarastarfið er eitt af lykilstörfum í heilbrigðiskerfinu. Persónuverndarsjónarmið og krafa um góða fagmennsku eru þar grundvallaratriði. 
