Fréttir
27. september 2007
Nýr framkvæmdastjóri PSI kosinn
Úrslit kosninga til formanns PSI liggja fyrir. Peter Waldorff hlaut góða kosningu en Norðurlöndin lýstu eimitt yfir stuðningi við hann áður en þingið hófst. Peter Waldorff kemur frá Danmörku og hefur verið formaður HK-Stat (httpwww.hk.dk/stat) síðan 2001 og hann hefur setið í framkvæmdastjórn PSI frá árinu 1998. Peter hlaut góða kosningu en hann fékk 55% atvæða en mótframbjóðandi hans, Keith Sonnet (http://www.keithsonnet4psi.com/) frá Bretlandi hlaut 45% atkvæða.
27. september 2007
Frelsi til að semja um kaup og kjör ekki sjálfsögð
Fjölmörg mál hafa verið á dagskrá PSI þingsins. Þar á meðal hafa verið lýsingar þingfulltrúa frá Kólumbíu, El Salvador, Írak og fleiri löndum á skipulögðum ofsóknum, morðum og misþyrmingum á starfsmönnum og félögum stéttarfélaga sem vekja óhug. Félagar okkar víða um heim njóta ekki þeirra sjálfsögðu mannréttinda að hafa frelsi til að taka þátt í starfi stéttarfélaga og semja um kaup og kjör.
25. september 2007
144 verkalýðsforingar og starfsmenn verkalýðsfélaga myrtir 2006
Alþjóðasamtök opinberra starfsmanna (PSI) heldur ráðstefnu sína þessa dagana í Vín í Austurríki en alþjóðaráðstefnan er haldin á 5 ára fresti. Þátttakendur á ráðstefnunni eru 1500 og koma frá öllum heimshornum. Mörg brýn málefni eru til umfjöllunar á ráðstefnunni og má þar nefna mikilvægi almannaþjónustunnar og opinbers reksturs og baráttu stéttarfélaga og verkalýðsfélaga um heim allan fyrir félagsmenn sína sem búa við ólík skilyrði. Meðal annars hefur komið fram að á síðasta ári voru 144 verkalýðsforingar og starfsmenn verkalýðsfélaga myrtir vegna starfa sinna.
21. september 2007
Laust í íbúðum í Danmörku
Eitthvað er um lausa daga í íbúðum SFR í Danmörku. Ryesgade er laus dagana 28. sept. til 18. okt. og 22. okt. til 25. okt. Ravnsborg tværgade er laus 28.okt. til 1. nóv., 10. des. til 17. des. og allan janúar. Tekið við bókunum í s. 525-8340.
17. september 2007
SFR sækir heim Vesturland og Vestfirði
Árni St. Jónsson, formaður SFR, og Þórarinn Eyfjörð, framkvæmdastjóri félagsins, eru á ferðalagi um landið til að hitta félagsmenn á vinnustaðafundum. Markmiðið með fundunum er að ræða áhersluatriði og kröfur vegna næstu kjarasamninga, kynna niðurstöður úr launakönnun SFR, sem og að ræða rekstur félagsins og innra starf. Fyrstu fundirnir voru haldnir á Vesturlandi og Vestfjörðum. Fundað var á Akranesi, Hvanneyri, í Borgarnesi, Stykkishólmi, á Patreksfirði og á Ísafirði.
17. september 2007
20% – 30% launamunur milli ríkisstarfsmanna og starfsmanna á almennum vinnumarkaði!
Láglaunastefna ríkisins staðfest - nú er að sækja leiðréttingu.
Síðastliðið vor stóð SFR í samvinnu við VR að Launakönnun meðal ríkisstarfsmanna sem eru félagsmenn í SFR. Launakönnunin gefur ítarlegar upplýsingar um kaup og kjör ríkisstarfsmanna og veitir mikilvægar upplýsingar um launamun á opinberum og almennum vinnumarkaði. Niðurstaða könnunarinnar er sláandi þegar kemur að samanburði milli ríkisstarfsmanna og starfsmanna á almennum markaði. Þannig er heildarlaunamunur milli ríkisstarfsmanna og starfsmanna á almennum markaði að meðaltali 20%. Þegar einstaka starfahópar eru hins vegar skoðaðir þá er munurinn allt upp í 30%! Þessi launamunur á sér engar eðlilegar skýringar. Hér er um hreina láglaunastefnu ríkisins að ræða og er ljóst að í komandi kjarasamningum þá mun SFR krefjast að félagsmenn verði launaðir til jafns við starfsmenn á almennum markaði.
14. september 2007
Vika símenntunar
Vika símenntunar verður haldin 24.-30. september 2007. Markmið viku símenntunar er að auka símenntun í atvinnulífinu og hvetja fólk til að leita sér þekkingar alla ævi. Í viku símenntunar 2007 er lögð áhersla á að ná til þeirra sem hafa litla formlega menntun og hvatt til þess að huga sérstaklega að læsi og lestrarörðugleikum á vinnustað.
13. september 2007
Launakönnun kynnt á fundi trúnaðarmanna
Á fundi trúnaðarmanna, 11. sep., sl. kynnti Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, rannsóknarstjóri Capacent, launakönnun SFR. Hún sagði í samandregnum niðurstöðum að meðal-heildarlaun SFR félaga væru 274 þús. kr. Þau 5% félagsmanna sem hæst laun hefðu væru með 3,4 sinnum hærri laun en lægstu 5% (514 þús. vs. 153 þús.).
7. september 2007
Niðurstöður launakönnunar í nokkrum töflum
Niðurstöður launakönnunar SFR eru settar fram í nokkrum töflum. Fyrst eru birtar nokkrar heildartöflur; meðallaun eftir starfsstétt og kyni, óháð atvinnugrein og tafla yfir breytingar á þessum launum milli ára; meðallaun eftir atvinnugrein og breytingar á þeim milli ára og meðalárslaun svarenda eftir starfsstétt og kyni fyrir árið 2006. Því næst eru birtar töflur yfir meðallaun eftir atvinnugreinum.
7. september 2007
Sláandi niðurstöður í launakönnun SFR

SFR stendur nú í fyrsta sinn að launakönnun SFR og meðal sláandi niðurstaðna er að kynbundinn launamunur er 14,7% þegar búið er að taka tillit til aldurs, starfsaldurs, vinnutíma, starfsstéttar og menntunar. Félagið hefur staðið að könnuninni Stofnun ársins síðastliðin tvö ár í samstarfi við VR og er launakönnunin framhald á því samstarfi. Hún gerir samanburð við launakjör félagsmanna VR mögulegan og eru fyrstu vísbendingar úr þeirri vinnu sláandi ríkisstarfsmönnum í óhag. Þegar niðurstöður úr þeirri vinnu liggja fyrir verða þær kynntar sérstaklega. Einnig kemur fram að 42% félagsmanna eru með undir 200.000 kr. í grunnlaun á mánuði og að heildarlaun 47,4% félagsmanna SFR eru undir 250.000 kr. á mánuði. Könnunin á sér stað meðal félagsmanna SFR og í henni eru launa- og starfskjör félagsmanna skoðuð. Könnunin var unnin af Capacent á tímabilinu 1. febrúar til 12. mars 2007. Úrtakið var 4.590 félagsmenn og var svarhlutfallið 57,3%.
3. september 2007
Nýr stofnanasamningur við svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra
Nýr stofnanasamningur SFR og svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra var undirritaður 30. ágúst sl. og má nálgast hann hér. Meginniðurstaðan var að starfsmenn í starfaflokk 1 og 2 fengu eins launaflokkshækkun sem er afturvirk frá 1. maí sl. Leiðréttingin mun koma með næstu laungreiðslu.


