Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

23. febrúar 2007

Fatapeningar – hækkun

Frá 1. janúar 2007 hækkuðu fatapeningar í 1.538 kr. miðað við fullt starf í dagvinnu.  En í grein 8.3.1 í kjarasamningum SFR frá 2005 kemur fram að fatapeningar eigi að taka hækkunum „skv. áfangahækkunum launa“.

15. febrúar 2007

Stofnun ársins og Launakönnun – við hvetjum þig til að taka þátt!

SFR stendur nú í annað sinn að könnun meðal félagsmanna sinna á starfsskilyrðum og líðan þeirra á vinnustað. Núna könnum við einnig launakjörin. Sú stofnun sem fær hæstu einkunn fær viðurkenninguna Stofnun ársins 2007, en þær stofnanir sem verma efstu sætin fá til viðbótar nafnbótina Fyrirmyndarstofnun 2007. Sigurvegarinn fær afhentan glæsilegan verðlaunagrip til varðveislu, ásamt viðurkenningarskjali sem efstu stofnanirnar fá einnig. Þátttaka félagsmanna í könnuninni er afar mikilvæg til að hún verði marktæk. Niðurstöðurnar geta starfsmenn notað til að meta eigin vinnustað í samanburði við aðrar stofnanir og fyrirtæki.

15. febrúar 2007

Eftirlit með þróun matvælaverðs mikilvægt

Fundur trúnaðarmanna SFR haldinn 14. febrúar 2007 telur afar mikilvægt að fylgst verði vandlega með þróun matvælaverðs í aðdraganda þess að virðisaukaskattur á matvæli lækkar 1. mars nk. Mikilvægt er að þessi skattabreyting skili sér í kaupmáttaraukningu launafólks en verði ekki „stolið“ með hækkun á álagningu birgja og kaupmanna.

1. febrúar 2007

Félag áfengisráðgjafa hlýtur aðild að SFR

Félag áfengisráðgjafa sem stofnað var 1994 hefur nú hlotið aðild að SFR sem deild. Félagið hefur starfað sem fagfélag áfengisráðgjafa frá stofnfundi en flestir félagsmanna hafa átt stéttarfélagsaðild að SFR og starfað samkvæmt kjarasamningum SFR og vinnuveitenda. Þann 13. nóvember sl. urðu þau tímamót að Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra gaf út reglugerð um menntun, réttindi og skyldur áfengis- og vímuefnaráðgjafa. Við reglugerðina breyttust aðstæður félagsmanna á þann hátt að þeir geta nú tilheyrt sérstakri, viðurkenndri og skilgreindri stétt. Í kjölfarið hófu áfengis- og vímuefnaráðgjafar umræðu um hvernig best væri að marka sér sérstöðu í kjaramálum.  

1. febrúar 2007

Um uppsagnir fangavarða

Yfirgnæfandi meirihluti fangavarða hefur sagt upp störfum og er haft eftir Sigurjóni Birgissyni, formanni Félags fangavarða, að fangaverðir væru langþreyttir á lágum launum. Þeir líti á lögreglumenn sem „viðmiðunarstétt“ og hafi dregist aftur úr í launakjörum. Grunnlaun fangavarða hafi þannig verið 30% lægri en grunnlaun lögreglumanna árið 2004. „Byrjunarlaunin eru 120-130 þúsund og það segir sig sjálft að við fáum ekki hæft fólk til starfa fyrir þessi laun,“ segir Sigurjón. Félag fangavarða á aðild að SFR. Viðkomandi fangaverðir hafa sjálfir ákveðið að segja upp störfum. Uppsagnirnar koma hins vegar ekki á óvart og ljóst að fleira kemur þar til lág laun og kjaramál í þrengsta skilningi.


Slóðin þín:

Fréttir