Fréttir
21. desember 2007
SFR afhendir félagsmálaráðherra niðurstöðu launakönnunar
Formaður og framkvæmdastjóri SFR hittu Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra á dögunum og afhentu henni launakönnun sem SFR og VR stóðu að um leið og þeir kynntu niðurstöðu hennar. Var sérstaklega rætt um þann kynbundna launamun sem viðgengst hjá ríkinu og launamuninn sem er á milli starfsmanna ríkisins og starfsmanna á almenna markaðnum. SFR leggur mikla áherslu á að kynbundinn launamunur verði leiðréttur þegar í stað og að gripið verði til aðgerða til að vinna á honum. Ennfremur bendir SFR á að engar haldbærar skýringar eru fyrir hendi á þeim mikla launamun sem er á milli opinbera markaðarins og hins almenna og að þann launamun verði að jafna.
20. desember 2007
Laust í Köben og orlofshúsum SFR í janúar
Vakin er athygli á að laust er í íbúðinni í Kaupmannahöfn og í orlofshúsum SFR nú í janúar. Áhugasamir setji sig í samband við skrifstofu SFR í síma 525-8340. Sá háttur er hafður á að fyrsta virka dag hvers mánaðar er farið að skrá pantanir fyrir næsta mánuð á eftir og að sjálfsögðu fyrir það sem enn er hugsanlega laust í nýbyrjuðum mánuði, nema íbúðin í Kaupmannahöfn sem ávallt er bókuð 4 mánuði í senn.
19. desember 2007
Gengur gegn kjarasamningi
Í nýútkomnu tölublaði SFR blaðsins segir frá því að Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra í Reykjavík hefur kynnt starfsmönnum nýtt fyrirkomulag um tilkynningu og skráningu veikinda. Fyrirkomulagið felur í sér að starfsmaður tilkynni veikindi til fyrirtækisins InPro sem heldur utan um veikindaskráningu fyrir Svæðisskrifstofuna. Jafnframt láti starfsmaður vita af veikindunum á vinnustað og gefi upp eðli veikinda. Þetta brölt hjá Svæðisskrifstofunni er með nokkrum ólíkindum þar sem stofnunin virðist ekki gera sér það ljóst að breytingar sem þessar getur stofnunin ekki gert. Fyrirkomulag tilkynninga um veikindi og skráning þeirra er vel skilgreint í kjarasamningi SFR og fjármálaráðuneytisins.
6. desember 2007
Ekki bara Spánn - heldur líka Ítalía, Portúgal, Tyrkland, Brasilía og allir hinir staðirnir!!
SFR - stéttarfélag hefur um árabil boðið félögum sínum upp á tvö sumarhús á Spáni yfir orlofstímann. Þessi sumarhús hafa nýst félögum okkar vel og verið mjög eftirsótt. Félagsmenn SFR hafa þó gegnum tíðina óskað eftir fleiri valkostum í sumarleyfisferðum erlendis. Nú verða breytingar á og er ánægjulegt að geta kynnt til sögunnar nýja möguleika, en félagið hefur ákveðið að bjóða félagsmönnum uppá að kaupa gjafabréf sem hægt er að nota sem greiðslu inná sumarleyfisferðir frá 1. maí til 15. sept. (upphafsdagur ferðar verður að vera innan þessa tímabils), hjá Sumarferðum, Plús ferðum og Úrval Útsýn. Dagana 17., 18., 19., 20., og 21. des. nk. verður opið fyrir pantanir á orlofsgjafakortum HÉR á vefnum. Úthlutanir munu fara eftir punktastöðu félagsmanna í sólarlandapottinum...

