Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

30. janúar 2007

Orlofshús um páskana

Senn líður að páskum og eflaust margir sem hugsa sér til hreyfings. Sækja þarf um orlofshús og -íbúðir sem SFR hefur í boði um komandi páska og má hér fylla út rafræna umsókn. Alls er um að ræða 30 orlofshús og 2 íbúðir. Öll húsin eru með heitum pottum. Umsóknarfrestur er til og með 12. febrúar nk.

19. janúar 2007

SFR útnefnir stofnun ársins!

SFR stendur nú í annað sinn að könnun meðal félagsmanna sinna á starfsskilyrðum og líðan þeirra á vinnustað. Í framkvæmd könnunarinnar er SFR í samstarfi við VR og mun könnunin ná til þrjátíu þúsund starfsmanna á opinberum og almennum vinnumarkaði og verður þetta því umfangsmesta vinnumarkaðskönnun sem gerð er á Íslandi.  Framkvæmdin er alfarið í höndum Capacent sem sér um að senda spurningalistana í bréfa- eða tölvupósti og vinna niðurstöðurnar. Spurningalistarnir verða sendir um mánaðamótin janúar/febrúar og niðurstöður munu liggja fyrir í maí næstkomandi.

16. janúar 2007

Tvö hús í Brekkuskógi næsta sumar

Nú er undirbúningur fyrir sumarið hafinn og allt komið á fullt við að skipuleggja orlofsmöguleika félagsmanna fyrir sumarið. Okkur til mikillar ánægju höfum við fengið tvö hús í Brekkuskógi nú í sumar. SFR var með samning við BHM  sumarið 2006 um skiptileigu á húsi í Munaðarnesi og gekk það svo vel að BHM óskaði eftir öðru í ár.

15. janúar 2007

Úthlutun Spánarhúsa lokið

Búið er að úthluta orlofshúsum á Spáni til félagsmanna fyrir árið 2007. Um er að ræða 2 hús og er hvoru þeirra úthlutað í 2 vikur í senn, á tímabilinu 17. maí til 13. september, sem gerir 16 úthlutanir. Alls bárust 77 umsóknir.


Slóðin þín:

Fréttir