Fréttir
21. desember 2007
SFR afhendir félagsmálaráðherra niðurstöðu launakönnunar
Formaður og framkvæmdastjóri SFR hittu Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra á dögunum og afhentu henni launakönnun sem SFR og VR stóðu að um leið og þeir kynntu niðurstöðu hennar. Var sérstaklega rætt um þann kynbundna launamun sem viðgengst hjá ríkinu og launamuninn sem er á milli starfsmanna ríkisins og starfsmanna á almenna markaðnum. SFR leggur mikla áherslu á að kynbundinn launamunur verði leiðréttur þegar í stað og að gripið verði til aðgerða til að vinna á honum. Ennfremur bendir SFR á að engar haldbærar skýringar eru fyrir hendi á þeim mikla launamun sem er á milli opinbera markaðarins og hins almenna og að þann launamun verði að jafna.
20. desember 2007
Laust í Köben og orlofshúsum SFR í janúar
Vakin er athygli á að laust er í íbúðinni í Kaupmannahöfn og í orlofshúsum SFR nú í janúar. Áhugasamir setji sig í samband við skrifstofu SFR í síma 525-8340. Sá háttur er hafður á að fyrsta virka dag hvers mánaðar er farið að skrá pantanir fyrir næsta mánuð á eftir og að sjálfsögðu fyrir það sem enn er hugsanlega laust í nýbyrjuðum mánuði, nema íbúðin í Kaupmannahöfn sem ávallt er bókuð 4 mánuði í senn.
19. desember 2007
Gengur gegn kjarasamningi
Í nýútkomnu tölublaði SFR blaðsins segir frá því að Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra í Reykjavík hefur kynnt starfsmönnum nýtt fyrirkomulag um tilkynningu og skráningu veikinda. Fyrirkomulagið felur í sér að starfsmaður tilkynni veikindi til fyrirtækisins InPro sem heldur utan um veikindaskráningu fyrir Svæðisskrifstofuna. Jafnframt láti starfsmaður vita af veikindunum á vinnustað og gefi upp eðli veikinda. Þetta brölt hjá Svæðisskrifstofunni er með nokkrum ólíkindum þar sem stofnunin virðist ekki gera sér það ljóst að breytingar sem þessar getur stofnunin ekki gert. Fyrirkomulag tilkynninga um veikindi og skráning þeirra er vel skilgreint í kjarasamningi SFR og fjármálaráðuneytisins.
6. desember 2007
Ekki bara Spánn - heldur líka Ítalía, Portúgal, Tyrkland, Brasilía og allir hinir staðirnir!!
SFR - stéttarfélag hefur um árabil boðið félögum sínum upp á tvö sumarhús á Spáni yfir orlofstímann. Þessi sumarhús hafa nýst félögum okkar vel og verið mjög eftirsótt. Félagsmenn SFR hafa þó gegnum tíðina óskað eftir fleiri valkostum í sumarleyfisferðum erlendis. Nú verða breytingar á og er ánægjulegt að geta kynnt til sögunnar nýja möguleika, en félagið hefur ákveðið að bjóða félagsmönnum uppá að kaupa gjafabréf sem hægt er að nota sem greiðslu inná sumarleyfisferðir frá 1. maí til 15. sept. (upphafsdagur ferðar verður að vera innan þessa tímabils), hjá Sumarferðum, Plús ferðum og Úrval Útsýn. Dagana 17., 18., 19., 20., og 21. des. nk. verður opið fyrir pantanir á orlofsgjafakortum HÉR á vefnum. Úthlutanir munu fara eftir punktastöðu félagsmanna í sólarlandapottinum...
6. desember 2007
Nýr ritari stjórnar SFR
30. nóvember 2007
Sagan Þær litlu eru verstar sigraði í örsögusamkeppninni
SFR stóð fyrir örsögusamkeppni meðal félagsmanna nú á haustdögum sem auglýst var í SFR blaðinu. Alls bárust 16 sögur í samkeppnina en það var samdóma álit dómnefndar að sagan Þær litlu eru verstar sem Katrín Guðmundsson, starfsmaður á Þjóðminjasafninu, skrifaði væri verðlaunasagan í örsögusamkeppninni og mun hún birtast í næsta SFR blaði sem kemur út í desember.
29. nóvember 2007
Trúnaðarmenn kjósa launamálaráð
Trúnaðarmannaráð SFR fundaði 8. nóvember síðastliðinn. Á fundinum var meðal annars erindi um heilsuverkefnið Heil og sæl í vinnunni sem Þóra Björt Sveinsdóttir, verkefnastjóri hjá Vinnueftirlitinu og Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, verkefnastjóri hjá Lýðheilsustöð kynntu. Einnig var Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands, með kynningu á starfi samtakanna. Þá hófst formlegur undirbúningur kjarasamningsviðræðna með kosningu nýs launamálaráðs...
19. nóvember 2007
Krafa um verulegar kjarabætur í komandi samningum
Ögmundur Jónasson formaður BSRB sagði á aðalfundi bandalagsins, síðastliðinn föstudag, þegar hann mælti fyrir ályktun fundarins að menn yrðu að opna augu fyrir þeim alvarlega vanda sem blasti við innan almannaþjónustunnar. Víða væri orðið erfitt að manna störf og færi ástandið hríðversnandi. „Ef ekkert verður að gert blasir við neyðarástand. Það er á ábyrgð viðsemjenda okkar að semja um stórbætt kjör í komandi kjarasamningum enda sýna kannanir að starfsmenn innan almannaþjónustunnar eru að dragast verulega aftur úr í launum...
19. nóvember 2007
Heil og sæl í vinnunni
„Heil og sæl í vinnunni" er yfirskrift heilsueflingarverkefnist á vegum Vinnueftirlits ríkisins. Verkefnið kemur frá evrópska samstarfsnetinu um heilsueflingu á vinnustöðum og kallast „Move Europe". Vinnueftirlitið hefur umsjón með verkefninu hérlendis í nánu samstarfi við Lýðheilsustöð. Markmið verkefnisins er að auka vitund innan vinnustaða á mikilvægi þess að efla heilsu og forvarnir. Bætt heilsufar starfsmanna hefur jú í för með sér margs konar hagræðingu fyrir vinnustaði. Lögð verður sérstök áhersla á eftirfarandi þætti: hreyfingu, næringu, tóbaksvarnir, áfengis- og vímuvarnir sem og streitu og andlega líðan. Vinnustaðir geta skráð sig til þátttöku í verkefninu á www.heilsuefling.is fram til 10. janúar 2008.
15. nóvember 2007
Ekki ber að tilkynna þriðja aðila um veikindi
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra í Reykjavík hefur kynnt starfsmönnum nýtt fyrirkomulag um tilkynningu veikinda sem felur í sér að starfsmaður tilkynni veikindi til heilsufyrirtækisins InPro sem heldur utan um veikindaskráningu fyrir Svæðisskrifstofuna. SFR hefur fengið fjölda fyrirspurna frá starfsmönnum svæðisskrifstofunnar varðandi þetta og vill árétta að starfsmenn eru ekki skyldugir til að tilkynna veikindi sín til þriðja aðila, heilsufyrirtækisins, heldur ber þeim samkvæmt kjarasamningi að tilkynna veikindi til vinnuveitanda eins og verið hefur.
24. október 2007
Launamunurinn sannreyndur
Í viðtali um niðurstöður launakönnunar félagsins sem birtist í nýútkomnu tölublaði SFR blaðsins segir Árna Stefán Jónsson, formaður SFR, að „nú sé lag að leiðrétta laun opinberra starfsmanna og jafna kjör þeirra á við það sem gerist á almenna markaðinum. Forsætisráðherra og fjármálaráðherra hafi báðir lýst því yfir að ríkissjóður standi vel og nægir peningar séu til í kassanum“. Þá eru einnig birtar töflur sem sýna samanburð á launum félagsmanna SFR og félagsmanna VR.
22. október 2007
SFR sækir heim Norðurland og Austfirði
Árni St. Jónsson, formaður SFR, og Þórarinn Eyfjörð, framkvæmdastjóri félagsins, halda áfram ferðalagi sínu um landið til að hitta félagsmenn á vinnustaðafundum. Markmiðið með fundunum er að ræða áhersluatriði og kröfur vegna næstu kjarasamninga, kynna niðurstöður úr launakönnun SFR, sem og að ræða rekstur félagsins og innra starf.
18. október 2007
Starfslokanámskeið á höfuðborgarsvæðinu
12. október 2007
Trúnaðarmannakosning - enn hægt að kjósa
5. október 2007
Ný og endurbætt vefsíða SFR opnuð
5. október 2007
SFR upplýsir fjármálaráðherra un niðurstöðu launakönnunar
Formaður og framkvæmdastjóri SFR hittu fjármála-ráðherra á dögunum og afhentu honum skýrslu um launakönnun félagsins um leið og þeir kynntu honum niðurstöðu hennar. Var sérstaklega rætt um þann kynbundna launamun sem viðgengst hjá ríkinu og launamuninn sem er á milli starfsmanna ríkisins og starfsmanna á almenna markaðnum.
5. október 2007
Gott svigrúm til leiðréttinga á launum ríkisstarfsmanna
4. október 2007
Óverjandi launamismunun
3. október 2007
Verkefnastjóri á kjarasviði
Guðrún Halldóra Sveinsdóttir hóf starf á skrifstofu SFR 1. september síðastliðinn sem verkefnastjóri kjarasviðs. Guðrún hefur BA próf í félagsfræði með atvinnulífsfræði sem aukagrein og er jafnframt starfi að vinna að MA ritgerð sinni í mannauðsstjórnun. Áður starfaði Guðrún á mannauðsdeild Ráðhúss Reykjavíkur sem verkefnisstjóri starfsmats og að kjaramálum.
3. október 2007
Langar þig til Köben - laust í íbúðum SFR!
1. október 2007
Reglur um greiðslur og endurgreiðslur á leigugjaldi orlofshúsa
Nokkuð var um afbókanir í orlofshúsum SFR síðasta vetur og í sumar og er slíkt alltaf óæskilegt þó svo að ástæður afbókana geti verið margvíslegar og eðlilegar. Í vetrarleigukerfi sem byggir á því að fyrstir koma fyrstir fá, þá hefur möguleiki þeirra sem ekki fengu leigt verið gerður að engu þegar húsum er skilað inn með skömmum fyrirvara. Því hefur verið ákveðið að setja reglur um greiðslur og endurgreiðslur á leigugjaldi.
27. september 2007
Nýr framkvæmdastjóri PSI kosinn
Úrslit kosninga til formanns PSI liggja fyrir. Peter Waldorff hlaut góða kosningu en Norðurlöndin lýstu eimitt yfir stuðningi við hann áður en þingið hófst. Peter Waldorff kemur frá Danmörku og hefur verið formaður HK-Stat (httpwww.hk.dk/stat) síðan 2001 og hann hefur setið í framkvæmdastjórn PSI frá árinu 1998. Peter hlaut góða kosningu en hann fékk 55% atvæða en mótframbjóðandi hans, Keith Sonnet (http://www.keithsonnet4psi.com/) frá Bretlandi hlaut 45% atkvæða.
27. september 2007
Frelsi til að semja um kaup og kjör ekki sjálfsögð
Fjölmörg mál hafa verið á dagskrá PSI þingsins. Þar á meðal hafa verið lýsingar þingfulltrúa frá Kólumbíu, El Salvador, Írak og fleiri löndum á skipulögðum ofsóknum, morðum og misþyrmingum á starfsmönnum og félögum stéttarfélaga sem vekja óhug. Félagar okkar víða um heim njóta ekki þeirra sjálfsögðu mannréttinda að hafa frelsi til að taka þátt í starfi stéttarfélaga og semja um kaup og kjör.
25. september 2007
144 verkalýðsforingar og starfsmenn verkalýðsfélaga myrtir 2006
Alþjóðasamtök opinberra starfsmanna (PSI) heldur ráðstefnu sína þessa dagana í Vín í Austurríki en alþjóðaráðstefnan er haldin á 5 ára fresti. Þátttakendur á ráðstefnunni eru 1500 og koma frá öllum heimshornum. Mörg brýn málefni eru til umfjöllunar á ráðstefnunni og má þar nefna mikilvægi almannaþjónustunnar og opinbers reksturs og baráttu stéttarfélaga og verkalýðsfélaga um heim allan fyrir félagsmenn sína sem búa við ólík skilyrði. Meðal annars hefur komið fram að á síðasta ári voru 144 verkalýðsforingar og starfsmenn verkalýðsfélaga myrtir vegna starfa sinna.
21. september 2007
Laust í íbúðum í Danmörku
Eitthvað er um lausa daga í íbúðum SFR í Danmörku. Ryesgade er laus dagana 28. sept. til 18. okt. og 22. okt. til 25. okt. Ravnsborg tværgade er laus 28.okt. til 1. nóv., 10. des. til 17. des. og allan janúar. Tekið við bókunum í s. 525-8340.
17. september 2007
SFR sækir heim Vesturland og Vestfirði
Árni St. Jónsson, formaður SFR, og Þórarinn Eyfjörð, framkvæmdastjóri félagsins, eru á ferðalagi um landið til að hitta félagsmenn á vinnustaðafundum. Markmiðið með fundunum er að ræða áhersluatriði og kröfur vegna næstu kjarasamninga, kynna niðurstöður úr launakönnun SFR, sem og að ræða rekstur félagsins og innra starf. Fyrstu fundirnir voru haldnir á Vesturlandi og Vestfjörðum. Fundað var á Akranesi, Hvanneyri, í Borgarnesi, Stykkishólmi, á Patreksfirði og á Ísafirði.
17. september 2007
20% – 30% launamunur milli ríkisstarfsmanna og starfsmanna á almennum vinnumarkaði!
Láglaunastefna ríkisins staðfest - nú er að sækja leiðréttingu.
Síðastliðið vor stóð SFR í samvinnu við VR að Launakönnun meðal ríkisstarfsmanna sem eru félagsmenn í SFR. Launakönnunin gefur ítarlegar upplýsingar um kaup og kjör ríkisstarfsmanna og veitir mikilvægar upplýsingar um launamun á opinberum og almennum vinnumarkaði. Niðurstaða könnunarinnar er sláandi þegar kemur að samanburði milli ríkisstarfsmanna og starfsmanna á almennum markaði. Þannig er heildarlaunamunur milli ríkisstarfsmanna og starfsmanna á almennum markaði að meðaltali 20%. Þegar einstaka starfahópar eru hins vegar skoðaðir þá er munurinn allt upp í 30%! Þessi launamunur á sér engar eðlilegar skýringar. Hér er um hreina láglaunastefnu ríkisins að ræða og er ljóst að í komandi kjarasamningum þá mun SFR krefjast að félagsmenn verði launaðir til jafns við starfsmenn á almennum markaði.
14. september 2007
Vika símenntunar
Vika símenntunar verður haldin 24.-30. september 2007. Markmið viku símenntunar er að auka símenntun í atvinnulífinu og hvetja fólk til að leita sér þekkingar alla ævi. Í viku símenntunar 2007 er lögð áhersla á að ná til þeirra sem hafa litla formlega menntun og hvatt til þess að huga sérstaklega að læsi og lestrarörðugleikum á vinnustað.
13. september 2007
Launakönnun kynnt á fundi trúnaðarmanna
Á fundi trúnaðarmanna, 11. sep., sl. kynnti Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, rannsóknarstjóri Capacent, launakönnun SFR. Hún sagði í samandregnum niðurstöðum að meðal-heildarlaun SFR félaga væru 274 þús. kr. Þau 5% félagsmanna sem hæst laun hefðu væru með 3,4 sinnum hærri laun en lægstu 5% (514 þús. vs. 153 þús.).
7. september 2007
Niðurstöður launakönnunar í nokkrum töflum
Niðurstöður launakönnunar SFR eru settar fram í nokkrum töflum. Fyrst eru birtar nokkrar heildartöflur; meðallaun eftir starfsstétt og kyni, óháð atvinnugrein og tafla yfir breytingar á þessum launum milli ára; meðallaun eftir atvinnugrein og breytingar á þeim milli ára og meðalárslaun svarenda eftir starfsstétt og kyni fyrir árið 2006. Því næst eru birtar töflur yfir meðallaun eftir atvinnugreinum.
7. september 2007
Sláandi niðurstöður í launakönnun SFR

SFR stendur nú í fyrsta sinn að launakönnun SFR og meðal sláandi niðurstaðna er að kynbundinn launamunur er 14,7% þegar búið er að taka tillit til aldurs, starfsaldurs, vinnutíma, starfsstéttar og menntunar. Félagið hefur staðið að könnuninni Stofnun ársins síðastliðin tvö ár í samstarfi við VR og er launakönnunin framhald á því samstarfi. Hún gerir samanburð við launakjör félagsmanna VR mögulegan og eru fyrstu vísbendingar úr þeirri vinnu sláandi ríkisstarfsmönnum í óhag. Þegar niðurstöður úr þeirri vinnu liggja fyrir verða þær kynntar sérstaklega. Einnig kemur fram að 42% félagsmanna eru með undir 200.000 kr. í grunnlaun á mánuði og að heildarlaun 47,4% félagsmanna SFR eru undir 250.000 kr. á mánuði. Könnunin á sér stað meðal félagsmanna SFR og í henni eru launa- og starfskjör félagsmanna skoðuð. Könnunin var unnin af Capacent á tímabilinu 1. febrúar til 12. mars 2007. Úrtakið var 4.590 félagsmenn og var svarhlutfallið 57,3%.
3. september 2007
Nýr stofnanasamningur við svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra
Nýr stofnanasamningur SFR og svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra var undirritaður 30. ágúst sl. og má nálgast hann hér. Meginniðurstaðan var að starfsmenn í starfaflokk 1 og 2 fengu eins launaflokkshækkun sem er afturvirk frá 1. maí sl. Leiðréttingin mun koma með næstu laungreiðslu.
3. september 2007
Kosið um nýjan framkvæmdastjóra PSI
30. ágúst 2007
Haustheimsóknir á vinnustaði
Fram undan er fundaherferð á vinnustöðum SFR félaga. Í september munu formaður og framkvæmdastjóri leggja land undir fót og byrja á því að fara hringinn í kringum landið. Sá hringur teygir sig inn í október, en í lok október og nóvember verður sjónum beint að vinnustöðum á höfuðborgarsvæðinu.
24. ágúst 2007
Íbúðin í Köben við Ryesgade - framlenging á leigutímabili
Vegna mikillar eftirspurnar eftir íbúð í Kaupmannahöfn ákvað SFR að framlengja leigusamninginn á íbúðinni á Ryesgade og tókst að lengja hann út október. Félagsmönnum býðst því að leigja íbúðina frá og með 21. september til 31. október. Þrjár nætur kosta 30.000 kr., það er frá fimmtudegi til sunnudags eða frá föstudegi til mánudags. Viðbótarnótt kostar 8.000 kr. Vikan kostar 48.000 kr.
24. ágúst 2007
VIKA LOSNAÐI ÓVÆNT Í KÖBEN FRÁ 24. ÁGÚST
Af óviðráðanlegum orsökum losnaði vika í íbúðinn við Ravnsborg Tværgade í Kaupmannahöfn frá 24. ágúst til 31. ágúst. Nú gildir að hugsa hratt.
9. ágúst 2007
Vetrarleiga í Kaupmannahöfn
Byrjað var að bóka 1. ágúst fyrir tímabilið 14. september til áramóta. Þann 1. september verður opnað fyrir leigu í janúar 2008 og næstu mánaðamót á eftir þ.e. 1. október fyrir leigu í febrúar o.s.frv. þangað til sumartíminn hefst um miðjan maí. Tekið er við bókunum í síma 525-8340. Lágmarksleiga er 3 nætur þ.e. frá fimmtudegi til sunnudags eða föstudag til mánudags og kostar það 25.000 kr. Aukadagur kostar 5.000 kr. og vikan kostar 40.000 kr..
30. júlí 2007
Nokkur laus orlofshús í sumar
![]()
Vikuleiga kostar kr. 20.000. Tekið við bókunum í síma 525-8340.
28. júní 2007
Lífeyrisþegadeild SFR í Jónsmessuferð
Lífeyrisþegadeild SFR fór í árlega sumarferð sína 21. júní sl. Að þessu sinni var farið um Þingvelli og Kaldadal í Húsafell og þar snætt nesti. Áfram var haldið að Hraunfossum og Barnafossi og síðan að Reykholti þar sem séra Geir Waage fræddi um staðhætti fyrr og nú. Endað var með ...
13. júní 2007
Framtíð ríkisvaldsins á Norðurlöndum rædd á ráðstefnu í Bergen
SFR - stéttarfélag tekur þátt í samstarfi norrænna stéttarfélaga sem eru byggð upp með svipuðum hætti og SFR (Nordiska statstjänestemannaorganisationen, NSO). Félögin skipuleggja ráðstefnu einu sinni á ári þar sem fjallað er um margvísleg mál er snerta starfsumhverfi ríkisstarfsmanna. Nú í ár var ráðstefnan haldin í Bergen í Noregi. Yfirskrift ráðstefnunnar að þessu sinni var Framtíð ríkisvaldsins á Norðurlöndum. Margvísleg erindi voru flutt á ráðstefnunni sem og skýrslur aðildarfélaganna um stöðu stéttarfélaga í hverju landi.
12. júní 2007
Icelandic for foreigners
Framvegis, miðstöð símenntunar í Reykjavík, verður með íslenskunámskeið í júní. Er bæði um að ræða byrjendanámskeið og framhaldsnámskeið. Skráning er á netfanginu: skraning@framvegis.is eða í síma 581 4914 á milli kl. 10-12.
Courses in Icelandic for foreigners, both for beginners and students who have had a beginners course will be held at Framvegis in June. Register by email skraning@framvegis.is or call 5814914 between 10 am and 12 am.
5. júní 2007
Félagsliðar útskrifast
Laugardaginn 19. maí sl. útskrifuð-ust 34 félagsliðar úr Borgarholtsskóla, þar af 29 sem stunda nám með starfi sem kallað hefur verið Brú. Árni St. Jónsson, formaður SFR, var við-staddur og afhenti útskriftarnemunum rós með kveðju frá félaginu, en 21 eru SFR félagar. Mynd: MOTIV, Jón S.
1. júní 2007
Á vaktinni - fundur um vaktavinnu
Fundur um vaktavinnu hjá ríki og sveitarfélögum verður haldinn þriðjudaginn 5. júní kl. 9-11 á Grettisgötu 89, 1. hæð, í BSRB húsinu. Kynnt verður skýrsla um aðbúnað og viðhorf vaktavinnufólks, sem unnin var af Rannsóknarstofu í vinnuvernd.
30. maí 2007
Húsið á Spáni gengið út 7.- 21. júní
Húsið á Spáni er ekki lengur laust...
Húsið losnaði vegna veikinda dagana 7. til 21. júní en verð fyrir tvær vikur í húsinu er kr. 50.000. Ef einhver félagsmaður vill hlaupa í skarðið þá eru 4 flugmiðar fyrir fullorðna bókaðir (sem hægt er að nafnabreyta) á 29.740 kr. pr. flugmiði. Húsið er staðsett rétt við Torrevieja, sem er líflegur ferðamannabær með miklu mannlífi, um það bil 50 km til suðurs frá flugvellinum í Alicante, en þangað er flogið reglulega yfir sumartímann. Lítill tími er til stefnu og er áhugasömum bent á að hafa samband í síma 525-8340 sem fyrst.
30. maí 2007
Laus hús um næstu helgi
Laust er í orlofshúsum SFR í Akurgerði (Ölfusi), Brekkuskógi, á Eiðum, í Húsafelli, á Illugastöðum, Lindarbakka, í Munaðarnesi og Stóruskógum og í Vaðnesi núna um helgina. Helgin kostar kr. 13.500 og er áhugasömum bent á að hringja í síma 525-8340. Einhverjir dagar eru lausir í íbúðinni á Grandavegi í Reykjavík en hún er í dagleigu í sumar eins og áður hefur verið auglýst.
25. maí 2007
Áhugaverður samráðsfundur með jafnlaunanefnd frá Noregi
Mörg áhugaverð erindi voru flutt á samráðsfundi með „jafnlaunanefnd“ frá Noregi sem haldinn var í Norræna húsinu í morgun. Jafnlaunanefndin var skipuð í Noregi í júní 2006 með vísan til þess að samkvæmt nýlegum rannsóknum og úttektum hafi ekki orðið miklar breytingar á launamun kynjanna eftir árið 1985. Heimsóknin byggist á norrænu samstarfi á sviði jafnréttismála. Meðal þeirra sem fluttu erindi voru Þorlákur Karlsson, forseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík, en hann fjallaði um nýja rannsókn á möglegum skýringum á óútskýrðum launamuni kynjanna, Árelía Eydís Guðmundsdóttir, lektor við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands sem fjallaði um vottun á jafnlaunastefnu og Ingólfur V. Gíslason, sviðsstjóri hjá Jafnréttisstofu, sem kallaði erindi sitt Pabbarnir heim, áhrif íslenska fæðingarorlofsins. Jafnlaunanefndin norska hefur komið á fót sérstakri heimasíðu.
23. maí 2007
Nokkur laus orlofshús um hvítasunnuhelgina
Búið er að opna fyrir helgarleigu í lausum orlofshúsum nú um hvítasunnuhelgina. Enn eru nokkur laus hús frá 25.maí til 1. júní á Eiðum, í Munaðarnesi, í Stóruskógum og í Vaðnesi. Áhugasömum er bent á að hafa samband við skrifstofu SFR í síma 525-8340. Einnig er vakin athygli á að ekki verður unnið meira í biðlistum og gildir því frá og með deginum í dag „fyrstur kemur fyrstur fær“ ef félagsmenn vilja panta viku í orlofshúsum sem enn eru á lausu í sumar.
22. maí 2007
Stafganga slær í gegn
Um 90 félagsmenn SFR og St.Rv. hafa lokið stafgöngunámskeiði sem félögin hafa staðið fyrir nú í vetur, en það síðasta kláraðist í gær. Halldór Hreinsson, stafgöngukennari og göngufararstjóri, hefur leiðbeint á námskeið-unum. Ákveðið var að hittast á miðvikudögum kl. 17 fyrir framan skautahöllina í Laugar-dalnum og halda áfram að æfa stafgöngutæknina.
21. maí 2007
Vann ferð fyrir tvo til Evrópu
Anna Guðmundsdóttir datt í lukkupottinn þegar hún var dregin út í happdrætti sem haldið var í tengslum við launakönnun og könnun á stofnun ársins 2006. Í vinning var ferð fyrir tvo til einhvers af áfangastöðum Icelandair í Evrópu. Anna starfar á Heilsugæslustöðinni í Efra Breiðholti. Alls voru 10 flugferðir til Evrópu fyrir tvo dregnar út og voru vinningsnúmerin ...
15. maí 2007
Afslöppun um næstu helgi - laus orlfoshús!
Örfá hús eru laus um næstu helgi. Grípið tækifærið og njótið þess að slaka á í orlofshúsum SFR. Laust er í Kjarnaskógi á Akureyri, í Munaðarnesi, Brekkuskógi og á Eiðum.
14. maí 2007
Akureyri - laus íbúð 25. maí til 1. júní
Vika var að losna í orlofsíbúð SFR á hinum vinsæla áfangastað Akureyri. Vikan sem um ræðir er 25. maí til 1. júní og kostar kr. 20.000. Hægt að bóka í s. 525-8340 á milli kl. 9-16 virka daga.
14. maí 2007
Laun fangavarða hækka
Skrifað var undir stofnanasamning Fangelsismálastofnunar og SFR þann 11. maí síðastliðinn þar sem launaröðun fangavarða er ákveðin. Samningurinn felur í sér leiðréttingu á launaröðun fangavarða en þeir höfðu dregist aftur úr viðmiðunarstéttum eins og t.d. lögreglumönnum. Hækkanir koma inn í tveimur áföngum, frá og með 1. maí síðastliðnum og síðan seinni hlutinn 1. desember.
10. maí 2007
Búið að draga út flugávísanir
Hinum vinsælu flugávísunum með Iceland Express var úthlutað í gær og að þessu sinni var tölvutæknin nýtt til verksins og tekið tilviljanakennt úrtak úr innsendum umsóknum. Umsóknarfrestur var til og með 4. maí. Í pottinum voru 200 ávísanir og ...
7. maí 2007
Helgarleiga um næstu helgi og laus vika í Köben
Búið er að opna fyrir helgarleigu í þeim orlofshúsum sem eru laus um næstu helgi. Einnig er laus vika í Kaupmannahöfn dagana 18. til 25. maí. Endilega hafið samband í síma 525-8340.
7. maí 2007
Ungt fólk kýs - hægt að horfa á fundinn á netinu
Fundinn „Ungt fólk kýs“ má nú nálgast á netinu á slóðinni http://straumur.nyherji.is/rvk.asp, en hann var haldinn 28. apríl sl. Þar var ungu fólki boðið að spyrja fulltrúa frá þeim flokkum sem bjóða fram í kosningum í vor. Við hvetjum fólk til þess að kíkja á fundinn.
4. maí 2007
Skattrannsóknarstjóri er stofnun ársins annað árið í röð
Skattrannsóknarstjóri ríkisins er stofnun ársins 2007 að með 4,62 í heildareinkunn af 5 mögulegum. Þetta er annað árið í röð sem Skattrannsóknarstjóri ríkisins hlýtur titilinn Stofnun ársins og má það teljast góður árangur og vísbending um að mikil áhersla sé lögð á gott innra starf hjá stofnuninni. Í öðru sæti var Biskupsstofa og Skattstofa Suðurlands í því þriðja. Bæði hjá Skattrannsóknarstjóra og Biskupsstofu tóku allir starfsmenn þátt í könnuninni, óháð stéttarfélagsaðild. Öllum stofnunum ríkisins var boðið að gefa öllum starfsmönnum tækifæri að taka þátt í könnuninni. 19 stofnanir notfærðu sér þennan möguleika og eru þær merktar með * í listanum yfir stofnanir.
2. maí 2007
Tilkynnt um stofnun ársins á föstudag
Tilkynnt verður um hver hlýtur titilinn Stofnun ársins 2007 næstkomandi föstudag, 4. maí. Heildarniðurstöður verður hægt að nálgast hér á vefnum eftir kl. 18 þann sama dag.
30. apríl 2007
Tökum þátt í 1. maí hátíðarhöldunum
Hátíðarhöld eru víða um land á fyrsta maí. Í Reykjavík er safnast saman við Hlemm kl. 13, en gangan hefst kl. 13:30 þar sem Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika fyrir göngunni. Gengið verður niður Laugarveg að Ingólfstorgi en þar verður útifundur í tilefni dagsins. Auk hefðbundinna ávarpa mun hljómsveitin Baggalútur og Gospelkór Reykjavíkur skemmta fólki.
30. apríl 2007
Ég styð öfluga almannaþjónustu fyrir alla
Taktu þátt í undirskriftaherferð evrópskrar verkalýðshreyfingar til eflingar almannaþjónustunni! Leiðbeiningar. Þú smellir hér og þá blasa við þrír gluggar: Í þann fyrsta skrifar þú nafn þitt, í þann næsta tölvupóstfangið þitt og fyrir land velur þú “Iceland”. Þú færð síðan sendan tölvupóst til staðfestingar undirskriftinni, opnar hann og smellir á viðeigandi línu.
26. apríl 2007
Almennur eða opinber vinnumarkaður?
- fyrirtæki á almennum vinnumarkaði fá hærri meðaltalseinkunnir en stofnanir á vegum ríkis í vinnumarkaðskönnun
Launakjör fá lægstu einkunn starfsmanna bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði í vinnumarkaðskönnun sem lögð var fyrir félagsmenn VR og SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu. Spurt var um viðhorf til átta lykilþátta í vinnuumhverfi starfsmanna og Fyrirtæki ársins og Stofnun ársins valin.
24. apríl 2007
19200 - Ungt fólk kýs
SFR- stéttarfélag, Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og Hitt húsið halda fund fyrir ungt fólk í Tjarnarbíói á laugardaginn 28. apríl kl. 16-18. Á fundinum fær ungt fólk á aldrinum 16-25 að spyrja fulltrúa frá öllum framboðum spjörunum úr. Fundarstjórar verða þau Halla Gunnarsdóttir og Sölvi Tryggvason. Fundurinn verður tekinn upp og hann sendur út á netinu á slóðinni http://straumur.nyherji.is/rvk.asp.
16. apríl 2007
Úthlutun orlofshúsa lokið
Úhlutun orlofshúsa fyrir sumarið er lokið. Svör til allra sem sóttu um voru póstlögð í dag. Þeir sem fengu úthlutað eiga að ganga frá greiðslu í síðasta lagi 24. apríl og eftir það verður unnið úr biðlistum, en allir sem sóttu um og fengu ekki úthlutað fara sjálfkrafa á biðlista. Þeir sem ekki sóttu um geta haft samband upp úr mánaðarmótunum til að kanna möguleika.
11. apríl 2007
Könnun á starfsumhverfi ríkisstarfsmanna 2006 - Niðurstöður
Skýrsla með meginniðurstöðum könnunar meðal ríkisstarfsmanna er komin út og hefur nú verið sett á vef fjármálaráðuneytisins. Að baki niðurstöðunum liggja svör tæplega 10 þúsund ríkisstarfsmanna sem starfa hjá 144 stofnunum ríkisins. Niðurstöðurnar voru kynntar á fundi nú í morgun sem fjármálaráðuneytið, Félag forstöðumanna ríkisstofnana, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands og ParX viðskiptaráðgjöf IBM stóðu fyrir. Margt athyglisvert kom fram á fundinum en sambærileg könnun var gerð árið 1998.
2. apríl 2007
Þjóðfélagslega sátt um launamyndun opinberra starfsmanna
Aðalfundur SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu sem haldinn var sl. laugardag telur mikilvægt að þjóðfélagsleg sátt náist um hvernig haga beri launamyndun hjá opinberum starfsmönnum. Á fundinum voru samþykktar ályktanir um kjaramál, umhverfismál, jafnréttismál og almannaþjónustu. Einnig var samþykkt framtíðarsýn félagsins.
Á fundinum voru venjubundin aðalfundarstörf og var meðal annars samþykkt fyrirliggjandi tillaga að breytingu á lögum félagsins og kosið í stjórn Styktar- og sjúkrasjóðs SFR.
28. mars 2007
Aðalfundur SFR laugardaginn 31. mars kl. 13
Nú er skýrsla stjórnar SFR 2006-2007 að berast félagsmönnum en aðalfundur félagsins verður haldinn næstkomandi laugardag, 31. mars kl. 13. Vakin er sérstök athygli á því að fundurinn er á laugardaginn 31. mars, en það misritaðist aftan á skýrslu stjórnar að fundurinn væri laugardaginn 30. mars. Á dagskrá eru venjubundin aðalfundarstörf. Fyrir liggur tillaga að breytingu á 11. grein laga SFR. Ársreikningur SFR liggur frammi á skrifstofunni en einnig má finna lykiltölur í skýrslunni sem má nálgast hér. Fundargerð síðasta aðalfundar má nálgast hér.
16. mars 2007
Mátti stunda nám í veikindaleyfi
14. mars sl. var kveðinn upp dómur í máli fyrrverandi starfsmanns sambýlis í Garðabæ. Í málinu var aðallega deilt um tvennt. Annars vegar hvort sú ákvörðun stefnda, Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi, að halda eftir launum stefnanda eftir að hann hafði verið frá vegna veikinda hafi verið lögmæt. Hins vegar var tekist á um hvort stefnda hafi verið heimilt með vísun til 19. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins að breyta störfum stefnanda og færa hann til á annan vinnustað á grundvelli meints trúnaðarbrests og í framhaldi af því greiða honum ekki laun á uppsagnarfresti.
13. mars 2007
Stofnanasamningar 2007 - Launahækkanir 1. maí nk
Nú stendur yfir endurskoðun stofnanasamninga og er þar verið að semja um launahækkanir sem taka eiga gildi frá 1. maí nk. Stofnanasamningur er samningur milli stofnunar og viðkomandi stéttarfélags um útfærslu tiltekinna þátta kjarasamningsins. Í kjarasamningi SFR við fjármálaráðherra frá árinu 2005 er gert ráð fyrir 2% hækkun 1. maí 2007. Þar að auki fellur til núna 1,2% hækkun úr svokölluðum jafnréttispotti, til að leiðrétta launamismun kynja.
9. mars 2007
Hæstiréttur dæmir Sinfóníuhljómsveit Íslands fyrir að brjóta á andmælarétti starfsmanns
Hæstiréttur Íslands staðfesti nýlega dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um ólögmæta uppsögn starfsmanns Sinfóníuhljómsveitar Íslands og var hljómsveitinni gert að greiða starfsmanninum skaðabætur auk 800 þúsund króna í málskostnað. Hæstiréttur lækkaði hins vegar skaðabætur sem Héraðsdómur hafði áður dæmt starfsmanninum úr rúmum 3 milljónum króna í 1300 þúsund. Hæstiréttur taldi að starfsmanninum hafi ekki verið gefinn kostur á að tala máli sínu áður en ákvörðun um uppsögn hans var tekin eins og skylt sé og því ætti hann rétt á skaðabótum.
9. mars 2007
15% afsláttur á ákveðnum námskeiðsflokkum EHÍ
Endurmenntun Háskóla Íslands (EHÍ) býður SFR félögum 15% afslátt á ákveðnum námskeiðsflokkum. Við skráningu verður að láta vita að viðkomandi sé félagsmaður og óski eftir afslættinum. Einungis hægt að skrá sig í síma ef nota á afsláttarkjörin. Um er að ræða námskeið í flokkunum: Menning, land og saga; Tungumál og ritfærni; og Fólk og færni.
7. mars 2007
Ný og spennandi orlofstilboð í sumar
- Að venju býður orlofssjóður SFR upp á fjölbreytt tilboð
Út er komið SFR blaðið þar sem kynnt eru orlofstilboð en SFR-félögum mun í sumar meðal annars standa til boða tvær orlofsíbúðir í Kóngsins Kaupmannahöfn. Félagið hefur einnig bætt við nýju húsi í Stykkishólmi og boðið verður upp á hjólhýsi. Innanlandstilboðin eru eins og venjulega nánast allt í kringum landið.
Umsóknarfrestur er til miðnættis 20. mars. Úthlutun mun verða lokið um mánaðarmótin mars/apríl og skrifleg svör verða send öllum umsækjendum. Rafræn umsókn hér.
5. mars 2007
Virkjum kraft kvenna - opinn fundur 8. mars
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti
Árlegur baráttufundur MFÍK - Menningar- og friðarsamtaka íslenskra kvenna verður haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur fimmtudaginn 8. mars kl. 17. Í ár taka 19 stéttarfélög og samtök, sem hafa fjölda kvenna innan sinna vébanda, þátt í sameiginlegri dagskrá. Í ár verður yfirskriftin VIRKJUM KRAFT KVENNA. Efni fundarins verður fátækt og misskipting gæða. Aðalræðumaður verður Harpa Njálsdóttir, en hún byggir erindi sitt á rannsóknum á fátækt íslenskra barna.
2. mars 2007
Fæðingastyrkur til foreldra í stað tekjutengdra greiðslna til mæðra
Stjórn Fjölskyldu- og styrktarsjóðs BHM, BSRB og KÍ (FOS) hefur tekið ákvörðun um að breyta þeim reglum sem hafa verið í gildi um greiðslur í fæðingarorlofi. Frá og með 1. júní næstkomandi verður horfið frá tekjutengdum greiðslum til mæðra og þess í stað greiddir fæðingarstyrkir til foreldra. Styrkirnir verða jafnháir til karla og kvenna en hliðsjón höfð af starfshlutfalli.
2. mars 2007
Sýnum jafnréttismálum þá virðingu sem þeim ber
Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, og Guðmundur H. Guðmundsson, fulltrúi fjármálaráðuneytis, sendu í vikunni sameiginlegt bréf til forstöðumanna, samstarfsnefnda og stofnana ríkisins þar sem fjármálaráðuneytið, SFR og vinnuhópurinn hvetja stofnanir sem ekki hafa lokið þessari úrvinnslu bókunarinnar að vinna bráðan bug að því að komast að niðurstöðu og skila henni til vinnuhópsins. Mikilvægt sé að jafnréttismálum sé sýnd sú virðing sem þeim ber.
23. febrúar 2007
Fatapeningar – hækkun
Frá 1. janúar 2007 hækkuðu fatapeningar í 1.538 kr. miðað við fullt starf í dagvinnu. En í grein 8.3.1 í kjarasamningum SFR frá 2005 kemur fram að fatapeningar eigi að taka hækkunum „skv. áfangahækkunum launa“.
15. febrúar 2007
Stofnun ársins og Launakönnun – við hvetjum þig til að taka þátt!
SFR stendur nú í annað sinn að könnun meðal félagsmanna sinna á starfsskilyrðum og líðan þeirra á vinnustað. Núna könnum við einnig launakjörin. Sú stofnun sem fær hæstu einkunn fær viðurkenninguna Stofnun ársins 2007, en þær stofnanir sem verma efstu sætin fá til viðbótar nafnbótina Fyrirmyndarstofnun 2007. Sigurvegarinn fær afhentan glæsilegan verðlaunagrip til varðveislu, ásamt viðurkenningarskjali sem efstu stofnanirnar fá einnig. Þátttaka félagsmanna í könnuninni er afar mikilvæg til að hún verði marktæk. Niðurstöðurnar geta starfsmenn notað til að meta eigin vinnustað í samanburði við aðrar stofnanir og fyrirtæki.
15. febrúar 2007
Eftirlit með þróun matvælaverðs mikilvægt
Fundur trúnaðarmanna SFR haldinn 14. febrúar 2007 telur afar mikilvægt að fylgst verði vandlega með þróun matvælaverðs í aðdraganda þess að virðisaukaskattur á matvæli lækkar 1. mars nk. Mikilvægt er að þessi skattabreyting skili sér í kaupmáttaraukningu launafólks en verði ekki „stolið“ með hækkun á álagningu birgja og kaupmanna.
1. febrúar 2007
Félag áfengisráðgjafa hlýtur aðild að SFR
Félag áfengisráðgjafa sem stofnað var 1994 hefur nú hlotið aðild að SFR sem deild. Félagið hefur starfað sem fagfélag áfengisráðgjafa frá stofnfundi en flestir félagsmanna hafa átt stéttarfélagsaðild að SFR og starfað samkvæmt kjarasamningum SFR og vinnuveitenda. Þann 13. nóvember sl. urðu þau tímamót að Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra gaf út reglugerð um menntun, réttindi og skyldur áfengis- og vímuefnaráðgjafa. Við reglugerðina breyttust aðstæður félagsmanna á þann hátt að þeir geta nú tilheyrt sérstakri, viðurkenndri og skilgreindri stétt. Í kjölfarið hófu áfengis- og vímuefnaráðgjafar umræðu um hvernig best væri að marka sér sérstöðu í kjaramálum.
1. febrúar 2007
Um uppsagnir fangavarða
Yfirgnæfandi meirihluti fangavarða hefur sagt upp störfum og er haft eftir Sigurjóni Birgissyni, formanni Félags fangavarða, að fangaverðir væru langþreyttir á lágum launum. Þeir líti á lögreglumenn sem „viðmiðunarstétt“ og hafi dregist aftur úr í launakjörum. Grunnlaun fangavarða hafi þannig verið 30% lægri en grunnlaun lögreglumanna árið 2004. „Byrjunarlaunin eru 120-130 þúsund og það segir sig sjálft að við fáum ekki hæft fólk til starfa fyrir þessi laun,“ segir Sigurjón. Félag fangavarða á aðild að SFR. Viðkomandi fangaverðir hafa sjálfir ákveðið að segja upp störfum. Uppsagnirnar koma hins vegar ekki á óvart og ljóst að fleira kemur þar til lág laun og kjaramál í þrengsta skilningi.
30. janúar 2007
Orlofshús um páskana
Senn líður að páskum og eflaust margir sem hugsa sér til hreyfings. Sækja þarf um orlofshús og -íbúðir sem SFR hefur í boði um komandi páska og má hér fylla út rafræna umsókn. Alls er um að ræða 30 orlofshús og 2 íbúðir. Öll húsin eru með heitum pottum. Umsóknarfrestur er til og með 12. febrúar nk.
19. janúar 2007
SFR útnefnir stofnun ársins!
SFR stendur nú í annað sinn að könnun meðal félagsmanna sinna á starfsskilyrðum og líðan þeirra á vinnustað. Í framkvæmd könnunarinnar er SFR í samstarfi við VR og mun könnunin ná til þrjátíu þúsund starfsmanna á opinberum og almennum vinnumarkaði og verður þetta því umfangsmesta vinnumarkaðskönnun sem gerð er á Íslandi. Framkvæmdin er alfarið í höndum Capacent sem sér um að senda spurningalistana í bréfa- eða tölvupósti og vinna niðurstöðurnar. Spurningalistarnir verða sendir um mánaðamótin janúar/febrúar og niðurstöður munu liggja fyrir í maí næstkomandi.
16. janúar 2007
Tvö hús í Brekkuskógi næsta sumar
Nú er undirbúningur fyrir sumarið hafinn og allt komið á fullt við að skipuleggja orlofsmöguleika félagsmanna fyrir sumarið. Okkur til mikillar ánægju höfum við fengið tvö hús í Brekkuskógi nú í sumar. SFR var með samning við BHM sumarið 2006 um skiptileigu á húsi í Munaðarnesi og gekk það svo vel að BHM óskaði eftir öðru í ár.
15. janúar 2007
Úthlutun Spánarhúsa lokið
Búið er að úthluta orlofshúsum á Spáni til félagsmanna fyrir árið 2007. Um er að ræða 2 hús og er hvoru þeirra úthlutað í 2 vikur í senn, á tímabilinu 17. maí til 13. september, sem gerir 16 úthlutanir. Alls bárust 77 umsóknir.


.jpg)
