Fréttir
27. desember 2006
Hlutafélagavæðing MATÍS. Stjórnendur sýna fullkomið tómlæti.
SFR er mjög óánægt með framkomu stjórnenda í garð starfsmanna og stéttarfélaga þeirra. Stjórnendur sýna fullkomið tómlæti gagnvart stéttarfélagsumhverfi starfsmanna.
21. desember 2006
SFR blaðið, desember '06
Í 9. tölublaði SFR blaðsins fjallar Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, í leiðara um jafnræði til launa, en fram kom í nýlegri könnun félagsmálaráðuneytisins um launajafnrétti kynjanna, sem framkvæmd var af Capacent, að laun ríkisstarfsmanna eru 26% lægri en laun starfsmanna á almenna vinnumarkaðnum.
Sagt er frá því að SFR mun aftur standa að könnun á ánægju, starfsskilyrðum og líðan fólks á vinnustað undir heitinu Stofnun ársins og að samhliða þeirri könnun munu félagsmenn SFR nú í fyrsta sinn taka þátt í launakönnun. Þarna er um að ræða samstarf SFR og VR, en VR hefur undanfarið staðið fyrir könnun undir heitinu Fyrirtæki ársins ásamt launakönnun.
14. desember 2006
Jólaball
SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar halda sameiginlegt jólaball föstudaginn 29. desember kl. 16 í Súlnasal Hótel Sögu.
Hljómsveitin Saga Klass sér um að halda uppi fjörinu með dansi í kring um jólatréð. Jólasveinar koma í heimsókn. Miðasala verður á skrifstofu félagsins að Grettisgötu 89
12. desember 2006
Stofnun ársins 2007
SFR mun aftur standa að
Mikil umræða fór af stað um starfsumhverfi félagsmanna í kjölfar
8. desember 2006
Samvinna SFR, SV og BHM í málum sem snerta Matís ohf.
Nýlega héldu SFR, SV og BHM sameiginlegan fund með starfsfólki Rannsókna-stofnunar fiskiðnaðarins, Matvælarannsókna á Keldnaholti og rannsóknastofu Umhverfisstofnunar en um áramót verða þessir vinnustaðir sameinaðir í Matís ohf. nýju hlutafélagi í opinberri eigu. Starfsmenn á þessum vinnustöðum þurfa að taka ákvörðun um það núna í desember hvort þeir vilja hefja störf hjá hinu nýja félagi. Enn skortir talsvert á að starfsmenn hafi fengið fullnægjandi upplýsingar um réttindastöðu sína á þessum tímamótum og var samstaða um það á fundinum að SFR, SV og BHM munu eiga með sér samstarf um að ráða þessum málum til lykta.

