Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

27. desember 2006

Hlutafélagavæðing MATÍS. Stjórnendur sýna fullkomið tómlæti.

SFR er mjög óánægt með framkomu stjórnenda í garð starfsmanna og stéttarfélaga þeirra. Stjórnendur sýna fullkomið tómlæti gagnvart stéttarfélagsumhverfi starfsmanna.  

21. desember 2006

SFR blaðið, desember '06

Í 9. tölublaði SFR blaðsins fjallar Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, í leiðara um jafnræði til launa, en fram kom í nýlegri könnun félagsmálaráðuneytisins um launajafnrétti kynjanna, sem framkvæmd var af Capacent, að laun ríkisstarfsmanna eru 26% lægri en laun starfsmanna á almenna vinnumarkaðnum. 
Sagt er frá því að SFR mun aftur standa að könnun á ánægju, starfsskilyrðum og líðan fólks á vinnustað undir heitinu Stofnun ársins og að samhliða þeirri könnun munu félagsmenn SFR nú í fyrsta sinn taka þátt í launakönnun. Þarna er um að ræða samstarf SFR og VR, en VR hefur undanfarið staðið fyrir könnun undir heitinu Fyrirtæki ársins ásamt launakönnun.

14. desember 2006

Jólaball

SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar halda sameiginlegt jólaball föstudaginn 29. desember kl. 16 í Súlnasal Hótel Sögu.

Hljómsveitin Saga Klass sér um að halda uppi fjörinu með dansi í kring um jólatréð. Jólasveinar koma í heimsókn. Miðasala verður á skrifstofu félagsins að  Grettisgötu 89, 3ju hæð frá og með 14. desember. Miðaverð er 500 kr.

12. desember 2006

Stofnun ársins 2007

SFR mun aftur standa að könnun í upphafi næsta árs á ánægju, starfsskilyðrum og líðan fólks á vinnustað undir heitinu Stofnun ársins. Þarna er um að ræða áframhaldandi samstarf SFR og VR sem hófst fyrir ári, en VR hefur undanfarin ár staðið fyrir þessari könnun undir heitinu Fyrirtæki ársins.
Mikil umræða fór af stað um starfsumhverfi félagsmanna í kjölfar könnunarinnar, en niðurstöður voru birtar 19. maí síðastliðinn. Það er einmitt hugmyndin að starfsmenn og stjórnendur geti notað niðurstöðurnar til að meta eigin vinnustað í samanburði við aðrar stofnanir og fyrirtæki.

8. desember 2006

Samvinna SFR, SV og BHM í málum sem snerta Matís ohf.

Nýlega héldu SFR, SV og BHM sameiginlegan fund með starfsfólki Rannsókna-stofnunar fiskiðnaðarins, Matvælarannsókna á Keldnaholti og rannsóknastofu Umhverfisstofnunar en um áramót verða þessir vinnustaðir sameinaðir í Matís ohf. nýju hlutafélagi í opinberri eigu. Starfsmenn á þessum vinnustöðum þurfa að taka ákvörðun um það núna í desember hvort þeir vilja hefja störf hjá hinu nýja félagi. Enn skortir talsvert á að starfsmenn hafi fengið fullnægjandi upplýsingar um réttindastöðu sína á þessum tímamótum og var samstaða um það á fundinum að SFR, SV og BHM munu eiga með sér samstarf um að ráða þessum málum til lykta.

29. nóvember 2006

Enn er beðið launaupplýsinga frá samstarfsnefndum

Fresturinn sem samstarfsnefndir höfðu til að skila af sér upplýsingum um launaröðun SFR félaga rann út á föstudag í síðustu viku. Enn vantar nokkuð á að samstarfsnefndirnar hafi skilað gögnum til vinnuhópsins sem heldur utan um könnunina sem nú fer fram á óútskýrðum launamun kynjanna meðal SFR félaga. Samið var um það í síðasta kjarasamningi SFR og fjármálaráðuneytisins að þessi könnun skyldi gerð og sá munur á launum kynjanna sem ekki fengjust eðlilegar skýringar á skyldi leiðréttur. 

28. nóvember 2006

Jafnréttislög sem verkfæri til launajöfnunar - hádegisfróðleikur

- Eru möguleikar karla og kvenna á vinnumarkaði þeir sömu?
Næstkomandi fimmtudag, 30. nóvember milli kl. 12 og 12:50 verður hádegis-verðarfróðleikur í BSRB húsinu um jafnréttismál í boði SFR og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Skráning á johanna@sfr.bsrb.is eða í síma 525-8340.

8. nóvember 2006

Nú er lag að leiðrétta launamuninn

Samið var um sérstaka athugun á launamun kynjanna innan SFR í síðustu kjarasamningum SFR og fjármálaráðherra samkvæmt bókun 2. Tilefnið var sameiginleg könnun samningsaðila sem sýndi nokkurn launamun á meðallaunum karla og kvenna innan SFR sem störfuðu hjá sömu stofnun. Framkvæmd á bókun 2 verður nú í nóvember og á henni að vera lokið fyrir 24. nóvember. Vinnugögn voru send út í lok október og eiga fulltrúar samstarfsnefnda að túlka launaupplýsingar á tímabilinu 10. - 24. nóvember. Niðurstöðu samstarfsnefndar á að kynna félagsmönnum SFR innan viðkomandi stofnunar fyrir 31. desember nk.

2. nóvember 2006

Fyrsta birting á nýrri sjónvarpsauglýsingu SFR í kvöld

SFR lét nýlega gera 3 nýjar sjónvarpsauglýsingar og verður sú fyrsta birt í kvöld. Í auglýsingunum er lögð áhersla á fjölbreytt og mikilvæg störf félagsmanna SFR. Auglýsingarnar verða birtar næstu 3 vikurnar í Ríkissjónvarpinu, á Stöð 2 og Skjá 1. Í janúar er svo fyrirhuguð önnur  auglýsingaröð. Við undirbúning þessa fengum við nemendur í Laugarnesskóla og nokkur önnur börn sem tengjast félagsmönnum og kunnum við þeim öllum bestu þakkir fyrir aðstoðina. 

2. nóvember 2006

Nemendur Laugarnesskóla teikna fyrir SFR

Nemendur í Laugarnesskóla fengu það hlutverk í haust að teikna myndir af fólki við hin ýmsu störf. Nokkrar myndanna voru síðan valdar í sjónvarpsauglýsingar sem SFR hefur nú látið gera. Í þakklætisskyni fóru þær Svala Norðdahl, varaformaður SFR, og Jóhanna Þórdórsdótir, fræðslustjóri SFR, í heimsókn í Laugarnesskóla og frumsýndu auglýsingarnar þar.

31. október 2006

Ögmundur endurkjörinn formaður BSRB

Ögmundur Jónasson var kjörinn formaður BSRB, Árni Stefán Jónsson formaður SFR var kjörinn fyrsti varaformaður bandalags-ins, Elín Björg Jónsdóttir formaður Félags opinberra starfsmanna á Suðurlandi var kjörin annar varaformaður, Garðar Hilmars-son formaður Starfsmannafélags Reykja-víkurborgar var kjörinn gjaldkeri og Þuríður Einarsdóttir formaður Póstmannafélags Íslands var kjörin ritari BSRB.

30. október 2006

Árni Stefán Jónsson kjörinn fyrsti varaformaður BSRB

Á 41. þingi BSRB sem haldið var 25.-27. októtber var formaður SFR, Árni Stefán Jónsson kjörinn fyrsti varaformaður BSRB. Þrír voru í kjöri og hlaut Árni afgerandi stuðning eða 73% atkvæða.

26. október 2006

Kröftugt lýðræðisþjóðfélag kallar á öfluga almannaþjónustu

Fram kom í setningarræðu Ögmundar Jónassonar á 41. þingi BSRB að „Kjörorð þingsins er: Eflum almannaþjónustuna – eflum lýðræðið. Hvers vegna þetta kjörorð? Innan BSRB – starfar launafólk sem á það sammerkt að vinna við þá atvinnustarfsemi sem við höfum kallað almannaþjónustu – þar er um að ræða grunnþjónustu samfélagsins – þjónustu sem ekkert samfélag getur án verið, hvort sem það er á sviði heilbrigðismála og menntamála eða löggæslu, vinnueftirlits og rannsókna, póstþjónustu eða annarra þátta sem nútímaþjóðfélag byggir á.“ Þingið fer fram á Grand hóteli 25. til 27. október.

20. október 2006

Vinnuverndarvikan í ár tileinkuð ungu fólki

Í tilefni vinnuverndarvikunnar, sem stendur yfir 23. - 27. október, stóðu SFR og St.Rv. sameiginlega fyrir hádegisverðarfróðleik í dag. Ása G. Ásgeirsdóttir, verkefnisstjóri vinnu-verndarvikunnar, kynnti markmið og viðburði vikunnar ásamt því að fjalla um mál sem sérstaklega þarf að hafa í huga varðandi ungt fólk á vinnumarkaði. 50% meiri líkur eru á því að 18-24 ára starfsmaður lendi í vinnuslysi samkvæmt tölum frá Eurostat.

14. október 2006

Áhrif skattastefnunnar á kjör almennings

Stefán Ólafsson, prófessor og forstöðumaður Rannsóknastöðvar þjóðmála, flutti erindi á fundi trúnaðarmanna 11. október sl. Þar rökstuddi hann að skattbyrði þeirra tekjulægstu í þjóðfélaginu hefur aukist til muna á meðan skattbyrði tekjuhæsta hópsins hefur lækkað töluvert. Benti hann á að samanburðartölur frá Evrópuríkum árin 2003-2004 sýna að Ísland er nú í 4 sæti þegar skoðað er hvar mesti tekjuójöfnuðurinn ríkir (svokallaður ginistuðull).

8. október 2006

Helga Jónsdóttir nýr framkvæmdastjóri hjá BSRB

Helga Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri BSRB. Hún tekur við af Svanhildi Halldórsdóttur sem lét af störfum nú í haust eftir áratuga farsælt starf fyrir BSRB. Helga er með meistarapróf í hagfræði frá Háskólanum í Osló. Sérfög hennar voru vinnumarkaðshagfræði og þróunarhagfræði. Helga hefur starfað í fjármálaráðuneytinu frá árinu 1999, fyrst á fjárlagaskrifstofunni og síðan á rekstrar- og upplýsingaskristofu ráðuneytisins.

28. september 2006

Flugávísanir dregnar út á morgunverðarfundi

Tveir morgunverðarfundir voru haldnirí þessari viku þar sem félagsmenn ræddu ýmis mál, m.a. þjónustu og áherslur í starfi SFR. Svo heppilega vildi til að um það leyti sem fundinum á þriðjudaginn lauk stóð til að draga úr umsóknum félagsmanna um flugávísanirnar svokölluðu, sem auglýstar voru í síðasta SFR blaði. Það var því kjörið tækifæri að fá þessa ágætu félagsmenn  til að draga úr "happapottinum". Þeir sem voru svo heppnir að vera dregnir eiga að hafa fengið tilkynningu þar um, annað hvort í tölvupósti eða með símtali.

Fyrirhugað er að halda 10 morgunverðarfundi fyrir félagsmenn á þessari haustönn.

22. september 2006

Tölvupóstkerfi SFR komið í lag

Búið er að laga tölvupóstkerfið. 

21. september 2006

Tölvupóstkerfi SFR liggur niðri

Bilun kom fram í tölvupóstkerfi SFR síðdegis í gær. Unnið er að viðgerð og eru félagsmenn vinsamlegast beðnir um að sína biðlund. Þeim sem hyggjast senda inn umsóknir vegna flugávísana er bent á að frestur til þess er til loka mánudagsins 25. sept. og til að létta álagið á meðan verið er að koma þessu í lag væri betra að þeir sendu beiðnirnar eftir daginn í dag.

21. september 2006

Flugávísanir með Iceland Express

Síðastliðið vor náði SFR mjög góðum afsláttarsamningum við Iceland Express fyrir félagsmenn sína og hefur nú aftur samið um verulegan afslátt af fargjöldum þar sem félagsmönnum bjóðast nú flugávísanir (gjafabréf) á kr. 11.000.- sem er 45% afsláttur af viðmiðunarfargjaldi, sem er 20.000.-. Félagsmenn sem áhuga hafa á að nýta sér þetta afsláttartilboð þurfa að senda tölvupóst á flug@sfr.bsrb.is. Þar þarf að koma fram fullt nafn, kennitala og hvort óskað er eftir einni eða tveimur flugávísunum (hámarkið er tvær). Í boði verða 200 flugávísanir og verður dregið úr pottinum 27. september nk.

21. september 2006

BSRB þing og fulltrúar SFR

Kjör fulltrúa SFR á þing BSRB sem haldið verður 25. - 27. október nk. fór fram á fundi trúnaðarmanna 12. september sl. SFR á rétt á 58 fulltrúum á þingið. Undirbúningsfundur þingfulltrúa verður haldinn 29. september þar sem fjallað verður um þau mál sem liggja þinginu. Listi yfir fulltrúan er að finna undir sjá nánar.

19. september 2006

Skráning hafin á „Gott að vita“

SFR býður upp á námskeið og fyrirlestra á þessari haustönn fyrir félagsmenn. Meðal nýjunga er hádegisfróðleikur næstsíðasta föstudag í hverjum mánuði. Fyrsti hádegisfróðleikurinn ber heitið „Með á nótunum um efnahagsmál“ og verður næstkomandi föstudag. Nauðsynlegt er að skrá sig á hádegisfróðleikinn því boðið verður upp á léttan hádegisverð. Skráning á johanna@sfr.bsrb.is eða í síma 525-8340.

12. september 2006

Tryggjum framtíð Íbúðalánasjóðs

Fundur trúnaðarmanna SFR skorar á stjórnvöld að sjá til þess að Íbúðalánasjóður verði áfram sú kjölfesta í fjármögnun íbúðarhúsnæðis hér á landi sem nauðsynleg er. Hækkandi vextir og skert framboð lána til íbúðarkaupa haf gert fólki erfiðara að eignast eigið húsnæði.

28. ágúst 2006

Starf vetrarins

Í vetur mun SFR m.a. standa fyrir morgunverðarfundum fyrir félagsmenn. Hugmyndin á bak við morgunverðafundi er að auka tengsl milli stjórnar SFR og félagsmanna, ásamt því að stuðla að meiri samheldni og virkni innan félagsins. Þá munu trúnaðaramenn hittast eins og venja er einu sinni í mánuði og verður fyrsti fundur þeirra 12. september. SFR blaðið kemur út um miðjan september og þar verður dagskrá „Gott að vita“ auglýst. Einnig minnum við á Fræðslusetrið Starfsmennt sem skipuleggur námskeið fyrir SFR félaga.

17. ágúst 2006

SFR aðili að stofnun fyrirtækis um rekstur Framvegis

Verzlunarskólinn og BSRB stofna fyrirtæki um rekstur Framvegis
Formaður SFR ásamt skólstjóra og formanni stjórnar Verzlunarskóla Íslands og formönnum annarra stofnaðila undirrituðu samkomulag 17. ágúst sl. um stofnun fyrirtækis um rekstur Framvegis, miðstöðvar um símenntun ehf. Auk Verzlunarskólans og BSRB eru þrjú aðildarfélög BSRB aðilar að stofnun fyrirtæksins en það eru SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu, Sjúkraliðafélag Íslands og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar.

14. ágúst 2006

BSRB þing 25. til 27. október

41. þing BSRB verður haldið dagana 25. til 27. október. Stjórn SFR vinnur nú að undirbúningi þingsins sem felur meðal annars í sér að tilnefna fulltrúa félagsins á þingið. Listi fulltrúa verður síðan lagður fram á fyrsta haustfundi trúnaðarmanna, 12. september nk. Allar ábendingar um fulltrúa eru vel þegnar.

2. ágúst 2006

Vetrarleiga orlofshúsa

Þeim félagsmönnum sem langar að tryggja sér orlofshús á tímabilinu 8. sept - 1. okt. er bent á að hafa samband við skrifstofu í síma: 525-8340. Hægt er að leigja...

6. júlí 2006

Nýjir stofnanasamningar í höfn hjá 90% félagsmanna

Nú eru stofnanasamningar fyrir tæp 90% félagsmanna SFR í höfn. Eins og kunnugt er verður að endurskoða alla stofnanasamninga þar sem samið var um í kjarasamningi að taka upp nýja og breytta launatöflu frá og með 1. maí sl. Unnið er að því að ljúka endurskoðun þeirra stofnanasamninga sem út af standa sem fyrst,  en nú fer í hönd aðal sumarleyfistíminn og því ljóst að erfiðara er um vik. Í öllum tilvikum er nýr samningur afturvirkur frá 1. maí sl. og sú regla er algild að enginn skuli lækka í dagvinnulaunum við yfirfærsluna.
Hér er hægt að nálgast uppfærða og endurskoðaða stofnanasamninga.

6. júlí 2006

Umræðufundur með forystumönnum PSI frestast þar til á morgun

Ekki ráðum við veðurguðunum. Það sannaðist í gær. Svo mikla þoku gerði þá á Genfarflugvelli að flugumferð þar tafðist með þeim afleiðingum að þeir Alan Leather og Jürgen Buxbaum, sem auglýstir höfðu verið á opnum umræðufundi klukkan 10, í dag, fimmtudag, urðu veðurtepptir. Fyrirlestur þeirra frestast því í sólarhring. Eins og gefur að skilja er ekki við þetta ráðið en við hvetjum alla sem ætluðu að koma á fyrirlesturinn að sækja hann í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, klukkan 10 á morgun, föstudag.

5. júlí 2006

Stofnanasamningur LSH í höfn

Í dag var gengið frá stofnanasamningi SFR og Landspítala háskólasjúkrahúss (LSH), sjá samning. Nokkurn tíma tók að ganga frá samningnum sem helgast meðal annars af því að inn í umræðuna var tekin sú sérstaka lagfæring lægstu launa sem þegar hafði verið gerð innan opinbera geirans. Haft var að leiðarljósi að jafna laun milli ríkisstarfsmanna og starfsmanna sveitarfélaganna, sem fengu sem kunnugt er sérstaka hækkun fyrr á árinu.

4. júlí 2006

Nýr framkvæmdastjóri SFR

Þórarinn Eyfjörð tekur við starfi framkvæmdastjóra SFR - stéttarfélags í almannaþjónustu þann 1. september næstkomandi. Þórarinn hefur verið framkvæmdastjóri Fræðslusetursins Starfsmenntar síðan 2001, einnig komið að margvíslegum verkum og verkefnum fyrir SFR síðustu 13 árin, eins og starfsnámi stuðningsfulltrúa, 60 ára afmælishátíð félagsins og útgáfumálum.  Hann útskrifaðist sem leikari árið 1987 og stundar nú meistaranám í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands, en námið er sniðið að þörfum fólks sem er í fullri vinnu.

4. júlí 2006

Nýr verkefnastjóri á kjarasviði SFR

Elísabet Guðjónsdóttir hóf störf sem verkefnastjóri á kjarasviði hjá SFR þann 15. maí sl. Elísabet útskrifast í haust sem viðskiptafræðingur frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst. Hún hefur meðal annars starfað hjá heildversluninni Garra ehf, Intrum Justitia og  SPRON.

4. júlí 2006

Umræðufundur með forystumönnum PSI

Þjónustutilskipun ESB-Opnun vinnumarkaðar-Staðan í Austur-Evrópu
BSRB boðar til umræðufundar fimmtudaginn 6. júlí kl. 10 í húsi BSRB að Grettisgötu 89, 1. hæð, með tveimur reyndum forystumönnum Alþjóðasamtaka starfsmanna í almannaþjónustu, PSI (Public Services International). Gestir fundarins eru þeir Alan Leather sem hefur verið ábyrgur fyrir málum heilbrigðisgeirans innan PSI og Jürgen Buxbaum, framkvæmdastjóri Evrópudeildar PSI. Fjallað verður um áhrif alþjóðavæðingar á kjör og réttindi launafólks bæði í þeim löndum sem vinnuafl streymir til og þjónustusamningar beinast að en einnig í hinum sem sjá á eftir vinnuafli sínu úr landi. 

30. júní 2006

Fundað um stofnanasamning SFR og LSH

Samstarfsnefnd SFR og Landspítala háskólasjúkrahúss (LSH) hefur undan-farnar vikur verið að vinna að stofnanasamningi fyrir félagsmenn SFR. Enn standa nokkur mál út af og hefur verið ákveðið að funda í næstu viku í þeirri von að takast megi að ljúka endurskoðun fyrir sumarfrí. Samingurinn gildir hins vegar frá 1. maí 2006 eins og aðrir stofnanasamningar.

20. júní 2006

Siðferði starfsmanna ríkisins rætt á ráðstefnu NSO

Á ráðstefnu NSO voru ýmis mál sem varða ríkisstarfsmenn tekin fyrir. Tvö aðalmál voru á dagskránni. Fyrsta daginn var það starfsmannastefna með áherslu á starfsmanninn. Næsta dag var rætt um siðferði starfsmanna ríkisins. Á síðasta degi var svo aðalfundur NSO þar sem Tore Eugen Kvalheim frá Noregi tók við af Dananum Tommy Agerskov Thomsen sem nýr formaður NSO.

16. júní 2006

Ríkisstjórn Eistlands viðurkenni samningsrétt ríkisstarfsmanna

Á ráðstefnu NSO - samtaka ríkisstarfsmanna á Norðurlöndunum (Nordiske statstjänstemanna-organisationen), sem haldin var í Danmörku 12.- 14. júní sl., var samþykkt að hvetja ríkisstjórnir Norðurlandanna til að upplýsa ríkisstjórn Eist-lands um mikilvægi þess að aðilar vinnumarkað-arins vinni saman. SFR er aðili að NSO. NSO heimsótti eistneska ríkisstarfsmenn í maí sl. og fundaði þar meðal annars með félagsmálaráðherranum Jaak Aab. Fram kom að samstarf milli stéttarfélaga og ríkisins sem atvinnurekanda er stirt.

15. júní 2006

Hvað á að gera um helgina?

Eigum nokkur hús í Munaðarnesi og á Eiðum laus um helgina. Einnig húsið í Akurgerði í Ölfusi, þar sem heimilt er að hafa með sér gæludýr. Helgarleiga frá föstudegi til kl. 18 á sunnudegi er 10.500 kr. Fyrir HM-unnendur sem fara í Munaðarnes skal þess getið að hægt er fylgjast með boltanum í þjónustumiðstöðinni.

9. júní 2006

Ljós og litur í landslagi á Menningarhátíð BSRB

Menningarhátíð BSRB verður á morgun, laug-ardaginn  10. júní og hefst  hún  kl. 14.  Á hátíðinni verður opnuð sýning á verkum Gísla B. Björnssonar sem kallast "Ljós og litur í landslagi". Mezzósópransöngkonan Alina Dubik syngur við undirleik Jónasar Ingimundarsonar og Berglind Gunnarsdóttir les ljóð. Þá mun Ögmundur Jónasson formaður BSRB ávarpa gesti. Boðið er upp á veitingar. Sýningin verður opin í sumar á afgreiðslutíma veitingasalarins.

1. júní 2006

Félag heilbrigðisritara 1 árs

Félag heilbrigðisritara (FHR) varð eins árs í gær og tilefni af því afhenti Guðríður Guðbjartsdóttir, formaður FHR, Árna Stefáni Jónssyni fána félagsins með nýju auðkenni þess sem er hannað af Kristjáni Sigurðssyni, grafískum hönnuði.

30. maí 2006

Nám með vinnu - félagsliðar og hjúkrunar- og móttökuritarar

Laugardaginn 20. maí sl. voru hópar félagsliða og hjúkrunar- og móttökuritara, sem stunda nám með starfi sem kallað hefur verið Brú, útskrifaðir með pomp og prakt. Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, var viðstaddur og afhenti útskriftarnemunum rós með kveðju frá félaginu.

19. maí 2006

Skattrannsóknarstjóri er Stofnun ársins 2006

SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu stóð í fyrsta skipti að könnun meðal félagsmanna sinna á starfsskilyrðum og líðan þeirra á vinnustað undir heitinu Stofnun ársins. Sigurvegarinn er Skattrannsóknarstjóri ríkisins, sem er fyrsta Stofnun ársins sem SFR útnefnir. Þá fengu Biskupsstofa, Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma, Sjálfsbjargarheimilið og skattstofa Suðurlands einnig sérstaka viðurkenningu, sem Fyrirmyndarstofnanir SFR árið 2006.

19. maí 2006

Kraftmikið rokk og pólitik í BSRB húsinu

Ungt fólk í SFR og Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar stóðu fyrir dagskrá í Félagamiðstöð BSRB 17. maí sl. Þar var skemmtileg blanda af rokki og pólitík. Kvöldið hófst á því að hljómsveitin Hjaltalín spilaði. Síðan komu fulltrúar framboðanna fimm í Reykjavík með framsögu en svo gafst fólki kostur á að koma með spurningar. Eftir að pólitískum umræðum lauk stigu á stokk hljómsveitin Rass sem ekki síður var með pólitísk skilaboð. Hljómsveitin Mammút kom næst og Benni Hemm Hemm lauk svo þessu stórskemmtilega kvöldi.

15. maí 2006

Stofnanasamningur í höfn hjá svæðisskrifstofum

Trúnaðarmenn SFR, sem starfa hjá svæðisskrifstofum um málefni fatlaðra, samþykktu fyrirliggjandi stofnanasamning á fundi nú í hádeginu. Skrifað verður undir samninginn kl. 15 á skrifstofu SFR á Grettisgötu 89. Fyrirhuguðum setuverkföllum stuðningsfulltrúa er því aflýst.

15. maí 2006

Rokk og pólitík fyrir ungt fólk

Rokk og pólitík er yfirskrift uppákomu sem SFR og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar gangast fyrir í nýrri félagamiðstöð BSRB á Grettisgötu 89 miðvikudaginn 17. maí  næstkomandi. Þar munu troða upp nokkur heitustu rokkböndin í dag og nokkrir þeirra stjórnmálamanna sem eru í eldlínunni í baráttunni fyrir sveitastjórnarkosningarnar. Engin aðgangseyrir er á Rokk og pólitík og þótt samkoman sé fyrst og fremst hugsuð fyrir unga kjósendur í SFR og Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. 

10. maí 2006

Viðræður SFR og svæðisskrifstofa fatlaðra hefjast að nýju

-Ráðherra afhentir undirskriftalistar

Eftir að slitnaði upp úr viðræðum forsvars-manna SFR og svæðisskrifstofa fatlaðra fyrir nokkrum vikum hafa viðræður um leiðréttingu á kjörum stuðningsfulltrúa legið niðri. Þróun síðustu vikna og þrýstingur stuðningsfulltrúa hefur nú leitt til þess að viðræður eru að fara aftur í gang og hefur verið boðaður fundur á milli fulltrúa SFR og svæðisskrifstofa á morgun fimmtudag og aftur á föstudag. 

2. maí 2006

Hátíðaávarp Árna Stéfáns Jónssonar formanns SFR á 1. maí í Hafnarfirði

Því hefur verið haldið fram að baráttusamkomur verkalýðsfélaga á 1.maí séu tímaskekkja. Að við værum öll betur komin í Húsdýragarðinum því baráttudagurinn heyri fortíðinni til. Það er vissulega rétt að í dag hefur 1. maí fyrst og fremst táknrænt gildi og verkalýðsbaráttan stendur hvorki né fellur með því að halda hann hátíðlegan, ekki frekar en að kristni stendur eða fellur með því hvort haldið er upp á jólin. En fyrir okkur er dagurinn táknrænn vegna þeirra sögulegu sigra sem verkalýðshreyfingin hefur unnið í gegnum tíðina og hann er ekki síður táknrænn fyrir framtíðina og þá baráttu sem við eigum eftir að heyja.

28. apríl 2006

Nýir stofnanasamningar og ný launatafla

Í kjarasamningi SFR, sem undirritaður var í mars 2005, var samið um nýja og breytta launatöflu sem tekur gildi þann 1. maí nk. Helsti munurinn á nýju launatöflunni og þeirri gömlu er að rammarnir falla niður (A, B, C og D) en í staðinn verða 45 launaflokkar og 6 lífaldursþrep. Vegna breytinganna þarf að endurskoða alla stofnanasamninga félagsins og varpa grunnröðun starfa og launasetningu í nýju launatöfluna.

28. apríl 2006

SFR blaðið - 1. maí

Í 5. tölublaði SFR blaðsins er grein eftir Helga Guðmundsson rithöfund sem hann kallar „Nútíminn“ og fjallar um 1. maí. Þar segir hann: „Við þurfum öflug mannréttindasamtök eins og verkalýðshreyfinguna, sem þorir og getur látið í sér heyra, verst þegar þess þarf og sækir þegar færi gefst - meðal annars til þess er 1. maí.“ Í blaðinu er einnig viðtal við Ögmund Jónasson og Valdimar Leó Friðriksson, fulltrúa BSRB og SFR á Alþingi.

28. apríl 2006

Trúnaðarmenn lýsa yfir þungum áhyggjum af þróun efnahagsmála

Trúnaðarmannaráð SFR fundaði í gær um stöðu efnahagsmála. Ragnar Ingimundarson, hagfræðingur hjá BSRB, kom á fundinn og fór yfir stöðuna. Fram kom að verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands á 12 mánaða tímabili er 2,5% en verðbólgan í maí stefnir í 7,7%. Fundurinn lýsti yfir þungum áhyggjum af þessari þróun, sem bitnar harðast á þeim sem lægst hafa launin. 

28. apríl 2006

Aðalfundur Lífeyrisþegadeildar SFR

Á aðalfundi Lífeyrisþegadeildar SFR, sem haldinn var í gær, var samþykkt ályktun þar sem því er mótmælt harðlega að Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins greiði ekki lífeyrisþegum eingreiðslur þær sem samið var um í tveim síðustu samningum við fjármálaráðherra. Þetta sé brot á ákvæðum um að laun séu greidd samkvæmt eftirmannareglu.

19. apríl 2006

Rætt við ráðherra um kjör lægst launuðu SFR félaganna

Miðvikudag fyrir páska átti Árni Stefán Jónsson formaður SFR fund með Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra og Gunnari Björnssyni formanni samninganefndar ríkisins. Á fundinum ræddi hann vaxandi óánægju þeirra sem eru á lægstu laununum innan SFR t.d. á svæðisskrifstofum fatlaðra og innan spítalanna.

19. apríl 2006

Viðræður SFR við RARIK hf. í kjölfar lagasetningar

Í byrjun apríl var frumvarp ríkisstjórnarinnar um stofnun hlutafélags um Rafmagnsveitur ríkisins samþykkt á Alþingi. Skömmu áður en frumvarpið varð að lögum óskuðu formenn SFR og BSRB þeir Árni Stefán Jónsson og Ögmundur Jónasson eftir viðræðum við stjórnendur RARIK um hvernig staða og réttindi SFR félaga sem vinna hjá RARIK verði best tryggð í nýju rekstrarumhverfi.

11. apríl 2006

Stuðningsfulltrúar hjá ríkinu krefjast leiðréttingar á kjörum

Trúnaðarmenn á sambýlum og öðrum starfsstöðvum fyrir fatlaða héldu fund í gær þar sem þeir ræddu þau lágu laun sem þessu starfsfólki standa til boða, en þau eru nú þegar farin að hafa áhrif á rekstur þessara heimila því erfiðlega gengur að fá fólk til starfa.  Á fundinum var samþykkt ályktun þar sem þess er krafist að kjör þeirra sem lægst hafa launin hjá ríkinu verði þegar í stað leiðrétt til samræmis við það sem gert hefur verið hjá sveitarfélögunum.

5. apríl 2006

SFR tók þátt í frjálsíþróttamóti ÍR

Átta manna sveit vaskra fulltrúa SFR tók þátt í frjálsíþróttamóti ÍR sem haldið var um síðustu helgi. Þótt fulltrúar SFR færu ekki á verðlaunapall í þetta skiptið veittu þau öðrum liðum harða samkeppni enda tilgangurinn „að taka þátt og vera með, frekar en að einblína á sigur“ eins og Árni Stefán Jónsson formaður SFR orðaði það eftir mótið. 

30. mars 2006

Orlofshús í sumar

Orlofsblað SFR er farið í prentun og mun berast félagsmönnum í byrjun næstu viku. Á svipuðum tíma verður opnað fyrir umsóknir á netinu. Umsóknar-frestur er til miðnættis 18. apríl.

Félagsmönnum gefst kostur á að sækja um dvöl í orlofshúsum í Vaðnesi, Akurgerði, Syðra-Langholti, Brekkuskógi sem er nýr valkostur, Reykjavík, Munaðarnesi/Stóruskógum, Húsafelli, Arnarstapa, Súðavík, Akureyri, Kjarnaskógi, Illugastöðum, Eiðum, Djúpavogi og á Lindarbakka. 

30. mars 2006

Ný stjórn skiptir með sér verkum

Fyrsti fundur nýrrar stjórnar SFR var haldinn síðastliðinn þriðjudag. Á honum var ákveðið að Svala Norðdahl myndi áfram vera varaformaður og Valdimar Leó Friðriksson ritari. 

25. mars 2006

Árni Stefán Jónsson nýr formaður SFR

Árni Stefán Jónsson tók í dag við af Jens Andréssyni sem nýr formaður SFR - stéttarfélags í almannaþjónustu. Jens sem verið hefur formaður félagsins síðast liðin 10 ár og í stjórn SFR frá árinu 1990 hættir nú en lög félagsins takmarka setu formanns við 10 ár. Á aðalfundinum voru Jens þökkuð góð störf í þágu félagsins. Tillaga uppstillinganefndar um Árna Stefán Jónsson sem næsta formann SFR og um nýja stjórn var samþykkt á fjölmennum fundi trúnaðarmannaráðs félagsins í síðasta mánuði. Þar sem ekki komu fram mótframboð var Árni Stefán Jónsson sjálfkjörinn næsti formaður SFR. 

24. mars 2006

Aðalfundur SFR

Aðalfundur SFR verður haldinn á morgun, laugardaginn 25. mars, kl. 13 á Grettisgötu 89. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf. Kaffiveitingar. Hér má nálgast ársreikninga félagsins og skýrslu stjórnar.

16. mars 2006

SFR vinnur mál gegn ríkinu

SFR vann mál gegn ríkinu þar sem tekist var á um veikindi í orlofi. Málið varðaði starfsmann fangelsismálastofnunar sem hafði meiðst á fæti í orlofi. Ákvað yfirstjórn fangelsins sem viðkomandi starfaði hjá að 8 vaktir væru ekki veikindadagar heldur orlofsdagar. Niðurstaða Héraðsdóms er að vaktirnar átta væru veikindadagar en ekki orlofsdagar.

15. mars 2006

Góð stemming á keilunámskeiði SFR

Menningar og skemmtinefnd SFR - stéttarfélags stóð fyrir keilunámskeiði fyrir félagsmenn í Keiluhöllinni við Öskjuhlíð í gær. Námskeiðið var vel sótt og sigurvegari í keppni sem sett var upp í lok námskeiðsins var Laufey Harðardóttir hjá Lögreglu-stjóranum í Reykjavík.

8. mars 2006

Endurskoðun stofnanasamninga í góðum gír

Vinna við endurskoðun stofnanasamninga er nú víðast í góðum gír. En eins og félagsmenn vita þá verður tekin upp ný launatafla frá og með 1. maí. Nú þegar eru nokkrir samningar í höfn.

7. mars 2006

Framlengdur skilafrestur - stofnun ársins

Skilafrestur svara í könnun SFR á stofnun ársins er framlengdur til þriðjudagsins 14. mars. Undirtektir félagsmanna SFR og annarra þátttakenda hafa verið mjög ánægjulegar, en samtals fengu tæplega 30 þúsund manns á opinberum og almennum vinnumarkaði könnunina senda.
 
Við hvetjum alla til að senda inn svörin sem fyrst því þátttaka þín skiptir máli. Ef þú tekur þátt áttu möguleika á að vinna flugmiða fyrir tvo til Evrópu með Icelandair.

24. febrúar 2006

Tillögur uppstillingarnefndar samþykktar á trúnaðarmannaráðsfundi

Á fjölmennum trúnaðarmannaráðsfundi í gær voru tillögur uppstillingarnefndar afgreiddar um stjórnar SFR og stjórnir ýmissa sjóða. Ríkti almennur einhugur um tillögur nefndarinnar hjá trúnaðarmönnum, nema hvað hlutur ungra félagsmanna kom til umræðu sem leiddi til breytinga.
Endanleg afgreiðsla á tillögunum verður síðan gerð á aðalfundi félagsins þann 25. mars nk. Aðrar tillögur til stjórnar SFR verða hins vegar að koma fram 25 dögum fyrir aðalfund, en ef svo verður ekki, þá eru tillögur ráðsins sjálfkjörnar.

22. febrúar 2006

Vöktun tölvupósts

Persónuvernd leiðbeinir Fasteignamati
Fasteignamat ríkisins tók á síðasta ári upp eigin reglur varðandi reglur og leiðbeiningar um öryggi í upplýsingatækni. Þar áskilur Fasteignamatið sér m.a. rétt til að skrá notkun á internetinu í þeim tilgangi að fylgjast með að reglum þessum sé fylgt. Eftir ósk SFR fór BSRB yfir þessar reglur með tilliti til reglna um persónuvernd starfsmanna og sendi erindi til Persónuverndar. Nú hefur Persónuvernd sent Fasteignamatinu leiðbeiningar þar sem bent er á að ýmislegt í þessum reglum þurfi að lagfæra.

16. febrúar 2006

Stofnun ársins

Þessa dagana eru starfsmenn IMG-Gallup að hringja í félagsmenn SFR vegna könnunarinnar Stofnun ársins, sem við leitum nú að í fyrsta sinn.

Þátttaka þín í könnuninni er afar mikilvæg til að hún verði marktæk. Niðurstöðurnar geta starfsmenn notað til að meta eigin vinnustað í samanburði við aðrar stofnanir og fyrirtæki. Hér er líka gott tækifæri fyrir forstöðumenn og stjórnendur til að kortleggja stöðu stofnunarinnar – hvort sem það er staðfesting á því sem vel er gert í starfsmannamálum, eða hvatning til þeirra sem geta gert betur. Góð þátttaka starfsmanna er því mjög mikilvæg.

10. febrúar 2006

Vinnuhópur sem skoðar launamun kynja fær aukið svigrúm

Samkomulag um framkvæmd á bókun 2 um jafnréttismál
Í dag skrifuðu Jens Andrésson, formaður SFR, og Gunnar Björnsson, formaður samninganefndar ríkisins, undir samkomulag um að vinnuhópur sem skoða á launamun kynjanna innan SFR fái lengri tíma til að skila niðurstöðum.

8. febrúar 2006

Vatn...Sumarfrí...Launajafnrétti...Kjaramál...Sjálfsímynd...

Nokkur ný námskeið eru í boði að þessu sinni undir yfirskriftinni Gott að vita. Þar má nefna fyrirlestur um launajafnrétti 7. mars nk. og um Vatnið í náttúru Íslands sem haldinn verður á alþjóðlega vatnadeginum, 22. mars nk.

Eflaust eru margir farnir að velta vöngum yfir komandi sumarfríi og er nú í fyrsta sinn boðið upp á vinnustofu um skipulagningu sumarfrís.  Sígild námskeið eru í boði eins og Hvort ég get? Ekki málið - Sjálfsímynd og samskipti  og  tvö ljósmyndanámskeið sem nú þegar er uppbókað á.

3. febrúar 2006

Helga Braga fór á kostum

Fyrsti spjallfundur fyrir unga var haldinn í gær á Litla ljóta andarunganum og fór Helga Braga á kostum þar sem hún velti vöngum yfir samskiptamynstri í íslensku þjóðfélagi og því álagi sem oft fylgir þjónustustörfum. Hún veitti meðal annars nokkur góð ráð varðandi uppbyggjandi andrúmsloft á vinnustöðum. Það er hins vegar umhugsunarefni að tæplega 20 manns sátu spjallið þrátt fyrir að rúmlega 1300 póstkort voru send heim til markhópsins, 17-35 ára SFR félaga. 

30. janúar 2006

Allt og ekkert

Spjall fyrir Unga í SFR
Allt og ekkert eru opnir fundir fyrir ungt fólk (17-35 ára) í SFR og vini þeirra þar sem rædd eru málefni líðandi stundar. Hittast á fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði nú á vorönn á Litla ljóta andarunganum, Lækjargötu 6b, kl. 20.30. Stýrihópur ungra hefur skipulagt dagskrá sem samanstendur af spennandi fyrirlesurum.

18. janúar 2006

Á annað hundrað trúnaðarmanna á fundi

Trúnaðarmannaráð SFR fundaði í dag og sátu á annað hundrað trúnaðarmanna fundinn. Gestur fundarins var Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda (TN), og fór hann yfir hlutverk TN og hvaða verkefni hann myndi beita sér fyrir á næstunni. Á dagskrá var m.a. staðan í endurskoðun stofnanasamninga og undirbúningur aðalfundar. Þá var vefsíða Fræðslusetursins Starfsmenntar kynnt, sérstaklega vakin athygli á viðburðardagatali sem gefur gott yfirlit yfir námsframboð, og að hægt er að skrá sig þar á póstlista.

16. janúar 2006

Stofnun ársins - allir geta tekið þátt

SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu stendur í fyrsta skipti að könnun á starfsskilyrðum og líðan félagsmanna sinna á vinnustað. Könnunin er gerð í samstarfi við VR og nær hún til hátt í þrjátíu þúsund manns á íslenskum vinnumarkaði.

Forstöðumenn stofnana og fyrirtækja geta boðið öllum starfsmönnum sínum að taka þátt í könnuninni, óháð því hvort þeir séu í SFR eða ekki.

10. janúar 2006

Krabbameinssjúk börn í Palestínu styrkt

Svala Norðdahl, varaformaður SFR, afhendir í dag Amneh Agha, stofn-anda Maher Center, styrk að upphæð krónur 700.000  fyrir krabbameinssjúk börn í Palestínu. Afhendingin fer fram kl. 16.30 á Grettisgötu 89, 4. hæð.

3. janúar 2006

Launahækkanir um áramót

Þann 1. janúar 2006 hækka laun félagsmanna SFR sem starfa hjá ríki og sjálfseignastofnunum um 2,50%. Hækkunin nú er í gegnum launatöflu, en þann 1. maí nk. verða frekari launabreytingar þegar breytingar verða gerðar á stofnanasamningum og ný launatafla tekin í gagnið.

Laun starfsmanna Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf. og Fríhafnarinnar ehf. hækka skv. kjarasamningi um 3,00% frá sama tíma.


Slóðin þín:

Fréttir