Fréttir
29. september 2005
Raunhæfar aðgerðir í jafnréttismálum
Kvenréttindafélag Íslands hélt málþing 29. september þar sem misjöfn staða kynjanna í atvinnulífinu var til umræðu. Í fyrsta sinn í sögu KRFÍ voru allir frummælendur karlkyns.
29. september 2005
Trúnaðarmenn funda um fatapeningamálið
Í dag var fundur trúnaðarmanna svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra og Styrktarfélags vangefinna þar sem rædd var sú staðreynd að atvinnurekandur hafa ekki staðið við kjarasanmning, þ.e. greiðslu fatapeninga sbr. gr. 8.3.1* í kjarasamnigi SFR og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs. Fram komu ýmsar skoðanir um hvernig bæri að bregðast við, m.a. hugmyndir um harkalegar aðgerðir.
27. september 2005
Nýtt þjónustusvæði Fræðslusetursins Starfsmenntar á vefnum
Geir H. Haarde fjármálaráðherra opnaði nýjan þjónustu- og gagnagrunnsvef Fræðslusetursins Starfsmenntar á Listasafni Íslands í gær. Verkið var unnið af Íslenskum fyrirtækjum og er verulegur ávinningur af nýju kerfi sem kemur fram í því að vinnuálag við umsjón námskeiða snarminnkar. SFR er aðili að setrinu en það þjónar starfsmönnum og stofnunum ríkisins.
26. september 2005
Nýr kjarasamningur SFR og SFH samþykktur
23. september 2005
Járnsíða – skóli fyrir starfsmenn sýslumannsembættanna opnaður formlega
Í dag var Járnsíða - skóli fyrir starfsmenn sýslumannsembættanna opnaður formlega af Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra og Jens Andréssyni, formanni SFR, á aðalfundi Sýslumannafélags Íslands (SÍ). Við opnunina afhentu þeir Ólafi Haukssyni, formanni SÍ, námsskrá skólans og lykilorð að vefhluta skólans.
22. september 2005
Næstu skref í fatapeningamálinu
Ákveðið hefur verið að boða trúnaðarmenn stuðningsfulltrúa til fundar á skrifstofu SFR á Grettisgötu klukkan 13:00 fimmtudaginn 29. september til að ræða um næstu skref í fatapeningamálinu...
21. september 2005
Atkvæðagreiðsla um samning við SFH er hafin
Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning SFR við Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH) stendur nú yfir en kjörgögn voru send til félagsmanna sem starfa hjá SFH í byrjun vikunnar. Frestur til að skila atkvæðaseðli til kjörstjórnar er til klukkan 16:00 næsta mánudag 26. september.
21. september 2005
SFR blaðið, september '05
Í sjöunda tölublaði SFR blaðsins er spurt hvað líði fatapeningum stuðningsfulltrúa, en ráðuneytin vísa hvort á annað. Einnig er sagt frá helstu atriðum kjarasamnings SFR og SFH, en nú stendur yfir atkvæðagreiðsla um samninginn. Fjallað er um kosningu trúnaðarmanna sem fram fer nú í september og sagt frá námskeiðum sem félagsmönnum stendur til boða nú á haustönn.
14. september 2005
Erfiðlega gengur að fá fatapeningana greidda
Í kjarasamningunum sem SFR og fjármálaráðherra gengu frá í febrúar síðast liðnum var samið um fatapeninga fyrir stuðningsfulltrúa, sem vinna hjá svæðisskrifstofum um málefni fatlaðra. Enn er ekki farið að greiða fatapeningana þrátt fyrir að ríflega hálft ár sé liðið frá því gengið var frá samningum...
13. september 2005
Kynning og atkvæðagreiðsla - kjarasamningur SFR og SFH
Undirbúningur fyrir atkvæðagreiðslu um kjarasamning SFR og SFH og kynningu hans stendur yfir. Kjörgögn verða send út mánudaginn 19. september og verða að skila sér til kjörstjórnar fyrir kl. 16 mánudaginn 26. september nk. Nú þegar hafa verið skipulagðir kynningarfundir á ...
13. september 2005
Þróun opinbera geirans
Fyrsti fundur trúnaðarmanna SFR þetta haustið var haldinn 8. september sl. og mættu um 90 trúnaðarmenn. Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari flutti erindi um stöðu og framtíð opinberrar starfsemi og starfsmanna þar sem hann setti fram áleitnar spurningar um þróun opinbera geirans á komandi árum. Erindið byggði á fyrirlestri sem hann flutti á ráðstefnu norrænna ríkisstarfsmanna fyrr í sumar þar sem það vakti athygli.
9. september 2005
Skrifað undir nýjan kjarasamning við SFH
Um miðjan dag var skrifað undir nýjan kjarasamning fyrir SFR félaga sem starfa hjá Samtökum fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH). Með undirskriftinni er bundinn endir á 6 mánaða kjaradeilu og fallið frá atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun hjá SFH. Jens Andrésson formaður SFR segist bærilega sáttur við samninginn en hann felur í sér 20% launahækkun á samningstímanum.
7. september 2005
Samningar hafa tekist við SFH
Samningar hafa tekist í kjaradeilu SFR og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH). Á fundi hjá ríkissáttasemjara í hádeginu í dag staðfesti samninganefnd SFH að staðið verður við kjarasamninginn sem gengið var frá í gærkvöld. Að sögn Jens Andréssonar verður formleg undirskrift fyrir hádegi á föstudag, en nýr kjarasamningur verður kominn til framkvæmda fyrir lok þessa mánaðar verði hann samþykktur í atkvæðagreiðslu félagsmanna SFR.
7. september 2005
„Óttast að slitni upp úr viðræðum við SFH“
-Segir Jens Andrésson formaður SFR
Samningaviðræður SFR við Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH) hanga nú á bláþræði eftir að samninganefnd SFH tilkynnti seint í gærkvöld þegar nýr samningur lá fyrir að hún treysti sér ekki til að skrifa undir. Samningafundur sem hófst hjá ríkissáttasemjara klukkan níu í gærmorgun lauk ekki fyrr en undir miðnætti. Það skýrist á hádegi í dag hvort SFH hefur slitið viðræðunum eða hvort þeir staðfesta samninginn með undirskrift.
6. september 2005
Sáttasemjari leggur fram „innanhúss“ tillögu
Á samningafundi í kjaradeilu SFR við Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH) sem hófst klukkan 9 í morgun lagði ríkissáttasemjari fram svokallaða „innanhúss“ sáttatillögu sem samningsaðilar eru núna að skoða. Hlé var gert á fundinum um hádegisbil en ráðgert er að honum verði framhaldið klukkan 14:00 í dag.
5. september 2005
Byrjað verður með tveimur stuttum verkföllum hjá SFH
Stjórn SFR ákvað í morgun að efna til atkvæðagreiðslu dagana 7.-12. september um verkfall SFR félaga sem starfa hjá Samtökum fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH). Ekki hefur tekist að ganga frá nýjum kjarasamningi fyrir SFR félaga sem starfa hjá þessum fyrirtækjum þrátt fyrir 6 mánaða samningaþóf. Ákvörðun um að hefja undirbúning verkfalls var tekin í framhaldi af ályktun frá fjölmennum fundi starfsmanna hjá þessum fyrirtækjum í síðustu viku.
1. september 2005
SFH bað um frest fram á þriðjudag
Fundi hjá sáttasemjara í kjaradeilu SFR við Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH) sem boðað var til eftir hádegi í dag er lokið. Á fundinum var samninganefnd SFH kynnt ályktun sem samþykkt var á fjölmennum félagsfundi í gær en þar var stjórn SFR falið að byrja að undirbúa atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun hjá SFH. Að sögn Árna Stefáns Jónssonar framkvæmdastjóra SFR skynjuðu menn jákvæðara viðhorf hjá viðsemjendunum í dag en oft áður en atvinnurekendur báðu þó um frest fram yfir helgi til að fara yfir málið.
1. september 2005
Staða og framtíð opinberrar starfsemi og starfsmanna
Á fyrsta fundi trúnaðarmanna þetta haust, fimmtudaginn 8. september, mun Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari flytja erindi um stöðu og framtíð opinberrar starfsemi og opinberra starfsmanna. Þá verður sagt frá því námi sem er í boði á haustönn og farið yfir verkefni vetrarins.

