Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

22. desember 2005

Úthlutunarreglur Styrktar- og sjúkrasjóðs endurskoðaðar

Nú í desember var gerð úttekt á stöðu Styrktar- og sjúkrasjóðs SFR, þar sem ljóst er að fjárhagsstaða sjóðsins hefur farið versnandi. Þannig hafa greiðslur úr sjóðnum ríflega tvöfaldast á milli áranna 2004 og 2005, eða um 112%.

21. desember 2005

Ráðuneytið samþykkir reglur um fatapeninga

Félagsmálaráðuneytið hefur í samráði við svæðisskrifstofur um málefni fatlaðra í Reykjavík og á Reykjanesi fallist á að greiða fatapeninga til stuðningsfulltrúa og félagsliða sem starfa við umönnun fatlaðra. Samkvæmt reglum sem  ráðuneytið hefur sett eiga starfsmenn rétt á fatapeningum eftir þriggja mánaða samfleytt starf og verður greitt hlutfallslega miðað við starfshlutfall en þó ekki fyrir lægra starfshlutfall en 40%.

14. desember 2005

167 sótt samstarfsnefndanámskeið

Í desember hafa verið haldin 6 námskeið vegna þeirrar vinnu sem framundan er við endurskoðun stofnanasamninga. Nú þegar hafa 167 fulltrúar í samstarfsnefndum sótt námskeiðin og koma þeir frá 63 mismunandi stofnunum.

14. desember 2005

SFR blaðið, desember '05

Í 9. tölublaði SFR blaðsins er sagt frá samstarfi SFR og VR um leitina að stofnun / fyrirtæki ársins. Einnig er rætt um endurskipun samstarfsnefnda í nóvember, en í desember hafa fulltrúar í þessum nefndum sótt námskeið vegna endurskoðunar stofnanasamninga. Þá er í blaðinu friðarhugleiðing eftir Stefán Pálsson og rætt við Amal Tamimi um lífsbaráttu hennar og annarra innflytjenda á Íslandi. Einnig fjalla félagsmenn um bækur og hljómdiska sem koma út núna fyrir jólin.

6. desember 2005

SFR og VR sameinast um tæplega 30 þúsund manna vinnumarkaðskönnun

Við leitum að stofnun ársins!
SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu og VR, standa sameiginlega að könnun í upphafi næsta árs á ánægju, starfsskilyrðum og líðan fólks á vinnustað. VR hefur undanfarin ár staðið fyrir þessari könnun undir heitinu Fyrirtæki ársins en samstarfið við SFR þýðir að könnunin á næsta ári muni taka til hátt í þrjátíu þúsund starfsmanna hjá fyrirtækjum og stofnunum. Þetta verður því umfangsmesta könnun á íslenskum vinnumarkaði sem gerð hefur verið.

30. nóvember 2005

Verðkönnun NS og SFR á þjónustugjöldum bankanna

Allt að 300% munur á þjónustu bankanna
Samkvæmt nýrri könnun Neytendasamtakanna og SFR á þjónustugjöldum banka og sparisjóða eru dæmi um allt að 300% verðmun á sambærilegri þjónustu milli stofnana. Könnunin fór fram í sumar og í haust og var borið saman verð á þjónustu hjá Landsbanka, Íslandsbanka, KB banka og SPRON. Könnunin náði til 17 þjónustuliða og var Landsbankinn oftast með hæsta verðið eða í sjö tilfellum. Næstur var KB banki með hæsta verðið í fimm tilvikum af sautján. Verðið var hins vegar oftast lægst í Íslandsbanka og KB banka eða fimm sinnum í hvorum banka, fjórum sinnum var verðið ódýrast í SPRON og tvisvar í Landsbanka.

28. nóvember 2005

Samkomulag um eingreiðslu til SFR félaga

Fimmtudaginn 24. nóvember sl. skrifaði BSRB f.h. aðildarfélaga sinna undir samkomulag við fjármálaráðuneytið um útfærslu á 26 þúsund kr. eingreiðslu sem ASÍ og SA gerðu fyrir skömmu. Gert er ráð fyrir að eingreiðslan verði greidd þann 1. desember nk. Einnig var samið um að launataflan hækki um 2,90% þann 1. janúar 2007 í stað 2,25% áður.

24. nóvember 2005

Félagsmálaráðherra og jafnréttismál á fundi trúnaðarmanna

Um 120 trúnaðarmenn sátu fund trúnaðarmannaráðs SFR 22. nóvember sl. Árni Magnússon félagsmálaráðherra var gestur fundarins og var megininnleggið í erindi hans um jafnréttismál sem hann sagði vera eitt af forgangsverkefnum síns ráðuneytis.

16. nóvember 2005

"Vongóður um að hreyfing sé að komast á fatapeningamálið"

-Segir formaður SFR eftir fund með félagsmálaráðherra 

“ Við áttum ágætan fund með ráðherra í morgun þar sem við áréttuðum kröfur SFR um að staðið verði við ákvæði samningsins sem gerður var í vor um greiðslu fatapeninga til stuðningsfulltrúa og félagsliða á sambýlum fyrir fatlaða. Ég er vongóður um að hreyfing komist á þetta mál í framhaldinu” sagði Jens Andrésson formaður SFR

16. nóvember 2005

Samkomulagið hefur áhrif á kjör SFR félaga

“Það er ánægjuefni að fulltrúar Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins skuli með aðstoð ríkisvaldsins hafa náð samkomulagi um breytingar á kjarasamningum án þess að til uppsagnar samninga þyrfti að koma. Sérstaklega fagna ég innspýtingu ríkisstjórnarinnar í lífeyrissjóðina til að létta undir með þeim vegna örorkubóta, en það tel ég að hafi verið ákaflega tímabær og skynsamleg ráðstöfun” segir Jens Andrésson formaður SFR.

15. nóvember 2005

Endurskoðun stofnanasamninga

Undirbúningur vegna endurskoðunar stofnanasamninga er í fullum gangi. Trúnaðarmönnum hefur verið sent bréf varðandi skipun samstarfsnefnda og jafnframt er búið að boða nefndirnar á námskeið um endurskoðunina nú í lok nóvember og desember, en alls verða haldin sex námskeið.

15. nóvember 2005

Fyrirlestur um afleiðingar einkavæðingar vatnsveitna

David Hall, prófessor við háskólann í Greenwich í Englandi, heldur erindi um rannsóknir á afleiðingum einkavæðingar á vatnsveitum kl. 09:00 til 10:30 að Hótel Loftleiðum föstudaginn 18. nóvember nk. En hann er staddur hér á landi í tengslum við aðalfund BSRB sem haldinn er 17. og 18. nóvember. Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Erindið verður túlkað.

11. nóvember 2005

Auglýsingaherferð vegna vatns

BSRB og þau samtök sem stóðu að ráðstefnunni Vatn fyrir alla eru nú að undirbúa auglýsingaherferð til að fylgja eftir sameiginlegri yfirlýsingu samtakanna. Frá því að ráðstefnan var haldin hefur Ungmennafélag Íslands bæst í hóp þeirra samtaka sem undirritað hafa yfirlýsinguna og von er á að fleiri samtök geri það.

3. nóvember 2005

Vaxandi reiði vegna vanefnda á samningi

Vaxandi reiði er nú meðal stuðningsfulltrúa og félagsliða vegna þess að ríkið hefur enn ekki staðið við ákvæði samningsins frá í vor um greiðslu fatapeninga. Jónína S.Gunnarsd. stuðningsfulltrúi á sambýlinu í Tindaseli segir það kaldar kveðjur mitt í öllum vandræðunum við að manna heimilin að ríkið skuli ekki sjá sóma sinn í að standa við gerða samninga.

 

 

Stuðnignsfulltrúar og félagsliðar á fundi um fatapeningamálið 11. okt. sl.

3. nóvember 2005

Stefnúmótunarvinna að hefjast

Á vegum SFR er nú að hefjast vinna við að móta stefnu félagsins til næstu 3ja til 5 ára.  Kallaðir hafa verið til 30 félagar sem líta má á sem nokkurs konar þverskurð af félaginu og munu þeir vinna að þessu verkefni ásamt stjórninni.

2. nóvember 2005

Óskað eftir fundi með félagsmálaráðherra

Nú er unnið að því að þoka “fatapeningamálinu” áfram, en nokkuð hljótt hefur verið um það undanfarið. Eins og kunnugt er hafa atvinnurekendur ekki enn staðið við samninga um fatapeninga til stuðningsfulltrúa og félagsliða sem samið var um í kjarasamningum síðastliðið vor.

1. nóvember 2005

Sameiginleg yfirlýsing um vatn

“Þótt enginn vatnsskortur sé á Íslandi þá er staðan önnur víðast hvar í heiminum. Gnótt vatns gefur því ekki tilefni til skeytingarleysis af okkar hálfu. Þvert á móti ber okkur að færa lagaumgjörð um vatn í þann búning að hún tryggi rétta forgangsröðun varðandi vatnsvernd og nýtingu og geti verið öðrum þjóðum til fyrirmyndar”. Svo segir meðal annars í sameiginlegri yfirlýsingu...

26. október 2005

Ráðstefnan Vatn fyrir alla

Ráðstefna um vatn verður haldin laugardaginn 29. október á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38, og hefst kl. 13. BSRB er meðal aðstandenda ráðstefnunnar en hún er haldin til að efla lýðræðislega umræðu um vatn sem er takmörkuð auðlind og almannagæði - undirstaða alls lífs og heilbrigðis. Mörg áhugaverð erindi verða um vatn í lögum, vatn sem auðlind, réttindi til vatns og fleira. Í lokin eru pallborðsumræður þar sem fulltrúar stjórnmála-flokkanna munu fjalla um framtíðarsýn á vatn. Ráðstefnan hefst kl. 13 og eru allir velkomnir! Enginn aðgangseyrir.

26. október 2005

Kjörtímabil nýs trúnaðarmannaráðs fer vel af stað

Um 130 trúnaðarmenn sóttu ráðstefnu nýkjörins trúnaðarmannaráðs sem haldin var í Rafveituheimilinu í Elliðaárdal 19. október sl. Ráðstefnan var liður í því að byggja upp samstöðu og tenslanet meðal trúnaðarmanna. Dagskráin fór að mestu fram utandyra í mildu haustveðri og var almenn ánægja meðal trúnaðarmanna með þessa nýbreytni.

18. október 2005

Konur höfum hátt

Baráttuhátíð verður haldin þann 24. október næstkomandi í tilefni af því að þá verða þrjátíu ár liðin frá kvennafrídeginum árið 1975. Heildarsamtök launafólks (ASÍ, BHM, BSRB, KÍ) og mörg kvennasamtök standa saman að undirbúningi og framkvæmd dagsins. Kröfuganga verður farin frá Skólavörðuholti að Ingólfstorgi og er mæting í hana klukkan 15.00. Yfirskrift göngunnar er “Konur höfum hátt”. Baráttufundur verður síðan á Ingólfstorgi klukkan 16:00 með stuttum hvatningaræðum og menningardagskrá.

11. október 2005

Staðið verði við gerða samninga

-Stuðningsfulltrúar og félagsliðar skora á félagsmálaráðherra

Fjölmennur fundur stuðningsfulltrúa og félagsliða innan SFR sem haldinn var í dag samþykkti ályktun þar sem skorað er á félagsmálaráðherra að hann hlutist til um að þær faglegu stofnanir sem undir hann heyra standi við gerða samninga og greiði stuðningsfulltrúum og félagsliðum sem vinna með fötluðum þegar í stað fatapeninga sem samið var um í síðustu kjarasamningum.

7. október 2005

Skilafrestur á trúnaðarmannakjöri rennur út í dag

Kosning trúnaðarmanna SFR félaga á vinnustöðum hefur staðið yfir frá því um miðjan september og rennur formlegur út í dag. Enn eru einhverjir vinnustaðir sem eiga eftir að skila inn tilkynningu um kosninguna. Nauðsynlegt er að tilkynningin berist skrifstofu SFR sem allra fyrst vegna skipulagningar vetrarstarfsins.

7. október 2005

Opinn fundur starfsmanna um fatapeningamálið

Aðgerðarhópur um fatapeningamálið svokallaða fundaði sl. þriðjudag. Ákveðið var að blása til opins fundar stuðningsfulltrúa og félagsliða hjá Svæðis-skrifstofum um málefni fatlaðra og Styrktarfélagi vangefinna. Fundurinn verður þriðjudaginn 11. október nk. kl. 13 á Grettisgötu 89. Stuðningsfulltrúar og félagsliðar eru hvattir til að sýna samstöðu og fjölmenna á fundinn.

29. september 2005

Raunhæfar aðgerðir í jafnréttismálum

Kvenréttindafélag Íslands hélt málþing 29. september þar sem misjöfn staða kynjanna í atvinnulífinu var til umræðu. Í fyrsta sinn í sögu KRFÍ voru allir frummælendur karlkyns. Jens Andrésson formaður SFR, stéttarfélags í almannaþágu gerði grein fyrir þeirri áherslu SFR að útrýma óútskýrðum kynbundnum launamun í kjarasamningum.

29. september 2005

Trúnaðarmenn funda um fatapeningamálið

Í dag var fundur trúnaðarmanna svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra og Styrktarfélags vangefinna þar sem rædd var sú staðreynd að atvinnurekandur hafa ekki staðið við kjarasanmning, þ.e. greiðslu fatapeninga sbr. gr. 8.3.1* í kjarasamnigi SFR og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs. Fram komu ýmsar skoðanir um hvernig bæri að bregðast við, m.a. hugmyndir um harkalegar aðgerðir.

27. september 2005

Nýtt þjónustusvæði Fræðslusetursins Starfsmenntar á vefnum

Geir H. Haarde fjármálaráðherra opnaði nýjan þjónustu- og gagnagrunnsvef Fræðslusetursins Starfsmenntar á Listasafni Íslands í gær. Verkið var unnið af Íslenskum fyrirtækjum og er verulegur ávinningur af nýju kerfi sem kemur fram í því að vinnuálag við umsjón námskeiða snarminnkar. SFR er aðili að setrinu en það þjónar starfsmönnum og stofnunum ríkisins.

26. september 2005

Nýr kjarasamningur SFR og SFH samþykktur

Nýr kjarasamningur milli SFR - stéttarfélags í almannaþjónustu og SFH (Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu) var samþykktur í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna SFR. Talningu atkvæða lauk síðdegis í dag. Þátttaka í atkvæðagreiðslunni var um 56%. Já sögðu 71% en nei sögðu 28%. 

23. september 2005

Járnsíða – skóli fyrir starfsmenn sýslumannsembættanna opnaður formlega

Í dag var Járnsíða - skóli fyrir starfsmenn sýslumannsembættanna opnaður formlega af Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra og Jens Andréssyni, formanni SFR, á aðalfundi Sýslumannafélags Íslands (SÍ). Við opnunina afhentu þeir Ólafi Haukssyni, formanni SÍ, námsskrá skólans og lykilorð að vefhluta skólans.

22. september 2005

Næstu skref í fatapeningamálinu

Ákveðið hefur verið að boða trúnaðarmenn stuðningsfulltrúa til fundar á skrifstofu SFR á Grettisgötu klukkan 13:00 fimmtudaginn 29. september til að ræða um næstu skref í fatapeningamálinu...

21. september 2005

Atkvæðagreiðsla um samning við SFH er hafin

Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning SFR við Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH) stendur nú yfir en kjörgögn voru send til félagsmanna sem starfa hjá SFH í byrjun vikunnar.  Frestur til að skila atkvæðaseðli til kjörstjórnar er til klukkan 16:00 næsta mánudag 26. september.

21. september 2005

SFR blaðið, september '05

Í sjöunda tölublaði SFR blaðsins er spurt hvað líði fatapeningum stuðningsfulltrúa, en ráðuneytin vísa hvort á annað. Einnig er sagt frá helstu atriðum kjarasamnings SFR og SFH, en nú stendur yfir atkvæðagreiðsla um samninginn. Fjallað er um kosningu trúnaðarmanna sem fram fer nú í september og sagt frá námskeiðum sem félagsmönnum stendur til boða nú á haustönn.

14. september 2005

Erfiðlega gengur að fá fatapeningana greidda

Í kjarasamningunum sem SFR og fjármálaráðherra gengu frá í febrúar síðast liðnum var samið um fatapeninga fyrir stuðningsfulltrúa, sem vinna hjá svæðisskrifstofum um málefni fatlaðra. Enn er ekki farið að greiða fatapeningana þrátt fyrir að ríflega hálft ár sé liðið frá því gengið var frá samningum...

13. september 2005

Kynning og atkvæðagreiðsla - kjarasamningur SFR og SFH

Undirbúningur fyrir atkvæðagreiðslu um kjarasamning SFR og SFH og kynningu hans stendur yfir. Kjörgögn verða send út mánudaginn 19. september og verða að skila sér til kjörstjórnar fyrir kl. 16 mánudaginn 26. september nk. Nú þegar hafa verið skipulagðir kynningarfundir á ...

13. september 2005

Þróun opinbera geirans

Fyrsti fundur trúnaðarmanna SFR þetta haustið var haldinn 8. september sl. og mættu um 90 trúnaðarmenn. Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari flutti erindi um stöðu og framtíð opinberrar starfsemi og starfsmanna þar sem hann setti fram áleitnar spurningar um þróun opinbera geirans á komandi árum. Erindið byggði á fyrirlestri sem hann flutti á ráðstefnu norrænna ríkisstarfsmanna fyrr í sumar þar sem það vakti athygli.

9. september 2005

Skrifað undir nýjan kjarasamning við SFH

Um miðjan dag var skrifað undir nýjan kjarasamning fyrir SFR félaga sem starfa hjá Samtökum fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH).  Með undirskriftinni er bundinn endir á 6 mánaða kjaradeilu og fallið frá atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun hjá SFH.  Jens Andrésson formaður SFR segist bærilega sáttur við samninginn en hann felur í sér 20% launahækkun á samningstímanum.

7. september 2005

Samningar hafa tekist við SFH

Samningar hafa tekist í kjaradeilu SFR og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH).  Á fundi hjá ríkissáttasemjara í hádeginu í dag staðfesti samninganefnd SFH að staðið verður við kjarasamninginn sem gengið var frá í gærkvöld. Að sögn Jens Andréssonar verður formleg undirskrift fyrir hádegi á föstudag, en nýr kjarasamningur verður kominn til framkvæmda fyrir lok þessa mánaðar verði hann samþykktur í atkvæðagreiðslu félagsmanna SFR. 

7. september 2005

„Óttast að slitni upp úr viðræðum við SFH“

-Segir Jens Andrésson formaður SFR
Samningaviðræður SFR við Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH) hanga nú á bláþræði eftir að samninganefnd SFH tilkynnti seint í gærkvöld þegar nýr samningur lá fyrir að hún treysti sér ekki til að skrifa undir. Samningafundur sem hófst hjá ríkissáttasemjara klukkan níu í gærmorgun lauk ekki fyrr en undir miðnætti. Það skýrist á hádegi í dag hvort SFH hefur slitið viðræðunum eða hvort þeir staðfesta samninginn með undirskrift.

6. september 2005

Sáttasemjari leggur fram „innanhúss“ tillögu

Á samningafundi í kjaradeilu SFR við Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH) sem hófst klukkan 9 í morgun lagði ríkissáttasemjari fram svokallaða „innanhúss“ sáttatillögu sem samningsaðilar eru núna að skoða.  Hlé var gert á fundinum um hádegisbil en ráðgert er að honum verði framhaldið klukkan 14:00 í dag.

5. september 2005

Byrjað verður með tveimur stuttum verkföllum hjá SFH

Stjórn SFR ákvað í morgun að efna til atkvæðagreiðslu dagana 7.-12. september um verkfall SFR félaga sem starfa hjá Samtökum fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH). Ekki hefur tekist að ganga frá nýjum kjarasamningi fyrir SFR félaga sem starfa hjá þessum fyrirtækjum þrátt fyrir 6 mánaða samningaþóf. Ákvörðun um að hefja undirbúning verkfalls var tekin í framhaldi af ályktun frá fjölmennum fundi starfsmanna hjá þessum fyrirtækjum í síðustu viku.

1. september 2005

SFH bað um frest fram á þriðjudag

Fundi hjá sáttasemjara í kjaradeilu SFR við Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH) sem boðað var til eftir hádegi í dag er lokið. Á fundinum var samninganefnd SFH kynnt ályktun sem samþykkt var á fjölmennum félagsfundi í gær en þar var stjórn SFR falið að byrja að undirbúa atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun hjá SFH. Að sögn Árna Stefáns Jónssonar framkvæmdastjóra SFR skynjuðu menn jákvæðara viðhorf hjá viðsemjendunum í dag en oft áður en atvinnurekendur báðu þó um frest fram yfir helgi til að fara yfir málið.

1. september 2005

Staða og framtíð opinberrar starfsemi og starfsmanna

Á fyrsta fundi trúnaðarmanna þetta haust, fimmtudaginn 8. september,  mun Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari flytja erindi um stöðu og framtíð opinberrar starfsemi og opinberra starfsmanna. Þá verður sagt frá því námi sem er í boði á haustönn og farið yfir verkefni vetrarins.

31. ágúst 2005

Atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun hjá SFH samþykkt

Á fjölmennum fundi félagsmanna í SFR sem vinna hjá stofnunum innan Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH) var samþykkt mótatkvæðalaust að fela stjórn SFR að hefja undirbúning að atkvæðagreiðslu um verkfall hjá stofnunum innan SFH.  Um 130 manns sóttu fundinn og var hvert sæti í fundarsal SFR skipað en fundinum lauk á sjötta tímanum síðdegis. Þrátt fyrir sex mánaða samningaþóf hefur ekki tekist að ljúka samningum fyrir starfsmenn sem vinna hjá stofnunum innan SFH. 

31. ágúst 2005

Áríðandi fundur um kjaradeilu SFR og SFH

Félagsmenn SFR á Hrafnistu, Grund, Ás, Skógarbæ, Sunnuhlíð, SÁÁ, Sjálfs-bjargarheimilinu og Heilsustofnun í Hveragerði.  Áríðandi fundur um kjaradeiluna í dag kl. 16.15 að Grettisgötu 89.
Samninganefnd SFR - stéttarfélags í almannaþjónustu

29. ágúst 2005

Tölvunám - nýtt fjarnám!

Fræðslusetrið Starfsmennt hefur ákveðið að fara fram með tilraunaverkefni á sviði tölvunámskeiðs. Námskeiðið er í fjarnámi undir traustri stjórn Bjartmars Kristinssonar frá Tölvuskólanum NEMANDI, en Bjartmar hefur sýnt eftirtektarverðan árangur á þessu sviði undanfarin misseri. 

26. ágúst 2005

Félagsfundur boðaður vegna kjaradeilunnar við SFH

Samninganefnd SFR hefur boðað starfsfólk þeirra heilbrigðisstofnana sem eru innan Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH) til félagsfundar næst komandi miðvikudag til að ræða stöðuna í kjaradeilu SFR og SFH og til að taka ákvörðun um framhaldið. Undanfarna mánuði hefur SFR gert ítrekaðar tilraunir til að gera kjarasamning fyrir félagsmenn sína hjá þeim stofnunum sem eru innan SFH en þegar útséð var um að aðilar næðu saman vísaði SFR málinu til Ríkissáttasemjara. Þrátt fyrir milligöngu sáttasemjara og ýmsar hugmyndir SFR til lausnar hefur SFH ekki fallist á neina lausn. Síðustu daga hafa átt sér stað óformlegar þreifingar milli aðila.

18. ágúst 2005

Enn hafnar SFH sáttatillögum SFR

Á fundi hjá Ríkissáttasemjara sem lauk síðdegis í dag í kjaradeilu SFR og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH) lögðu fulltrúar SFR fram endurnýjaða miðlunartillögu sem var strax hafnað af SFH. Fundurinn var því árangurslaus og er nýr sáttafundur boðaður eftir tvær vikur.

11. ágúst 2005

Útlitið í kjaradeilunni við SFH ekki bjart

Fundur sem haldinn var í gær hjá ríkissáttasemjara í kjaradeilu SFR og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH) reyndist árangurslaus. Fyrir fundinn höfðu fulltrúar SFR lagt fram hugmyndir um málamiðlun en þeim var hafnað á fundinum.  Nýr fundur hefur...

9. ágúst 2005

Enn ósamið við SFH

Enn er ósamið í kjaradeilu SFR við Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH) en deilunni var í síðasta mánuði vísað til ríkissáttasemjara að ósk SFR. Næsti fundur í deilunni hefur verið boðaður á morgun miðvikudag 10. ágúst. Að sögn Árna Stefáns Jónssonar framkvæmdastjóra SFR lagði félagið fram drög að málamiðlun á síðasta sáttafundi en að hans mati getur brugðið til beggja vona á fundinum á morgun.

12. júlí 2005

Góð aðsókn í orlofshús SFR

Það er óhætt að segja að undanfarnar vikur hafi verið annatími hjá þeim starfsmönnum SFR sem sjá um útleigu orlofshúsanna til félagsmanna. Alls hefur félagið til ráðstöfunar orlofshús á 12 stöðum á landinu, allt frá einu húsi á viðkomandi stað og upp í 8 hús í Vaðnesi og 21 hús í Munaðarnesi, þar sem þau eru flest.

11. júlí 2005

Kjaradeilu við SFH vísað til sáttasemjara

Í dag vísaði SFR kjaradeilu við Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH) til ríkissáttasemjara sem hefur brugðist skjótt við og boðað deiluaðila til fundar um miðja vikuna. 

1. júlí 2005

Brúum bilið – byggjum almannaþjónustuna!

Davíð Oddsson utanríkisráðherra tók í dag við ályktun stjórnar BSRB þar sem stjórnvöld og almenningur eru hvattur til að taka virkan þátt í að brúa þá gjá sem er á milli ríkra og snauðra. Það voru Ögmundur Jónasson formaður BSRB, Sjöfn Ingólfsdóttir og Jens Andrésson varaformenn bandalagsins sem afhentu utanríkisráðherra ályktunina. Einnig var honum afhent hvítabandið sem verkalýðshreyfingin um allan heim setur upp í dag en á það er letrað: "bridge the poverty gaps" eða brúum fátæktarbilið.

1. júlí 2005

Hægt gengur að semja við SFH

Treglega hefur gengið að ná samningi við Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH) en þau stóðu utan kjarasamningsins sem gerður var við fjármálaráðherra. Samningur við SFH er stærsti einstaki kjarasamningurinn sem enn er ófrágenginn hjá SFR  Að sögn Árna Stefáns Jónssonar framkvæmdastjóra SFR er lending í kjaraviðræðum við SFH ekki enn í sjónmáli en...

24. júní 2005

Opin og hreinskiptin umræða á ráðstefnu NSO á Akureyri

Á aðalfundi NSO Samtaka ríkisstarfsmanna á Norðurlöndum (Nordiske Statstjenestemænds Organisation) sem haldin var á Akureyri síðast liðinn miðvikudag var Tommy Agerskov Thomsen kosinn nýr formaður samtakanna.  Hann tók við formennskunni af Jens Andréssyni formanni SFR sem gengt hefur embættinu síðast liðið ár.  Með aðalfundinum lauk þriggja daga ráðstefnu Samtaka ríkisstarfsmanna á Norðurlöndum en hana sóttu liðlega 50 fulltrúar frá Finnlandi, Svíþjóð, Danmörku, Noregi og Íslandi.  Ákveðið var að næsta ráðstefna verði haldin í Silkiborg í Danmörku í júní á næsta ári. Eins og undanfarin ár tóku fulltrúar viðsemjenda norrænna ríkisstarfsmanna þátt í ráðstefnunni.

20. júní 2005

Samtök norrænna ríkisstarfsmanna halda ráðstefnu á Akureyri

Í dag hófst á Akureyri árleg ráðstefna Samtaka ríkisstarfsmanna á Norðurlöndum, NSO (Nordiske Statstjenestemænds Organisation) en hún er haldin til skiptis á Norðurlöndunum samhliða aðalfundi samtakanna. Fundarhöldunum lýkur á miðvikudag með aðalfundi NSO þar sem kosinn verður nýr formaður samtakanna í stað Jens Andréssonar formanns SFR sem jafnframt hefur gengt formennsku í NSO undanfarið ár.

6. júní 2005

SFR blaðið, júní '05

Í sjötta tölublaði SFR blaðsins er sagt frá því að yfirlýsingu LSH, sem lögð var fram við undirritun nýs stofnanasamnings, er harðlega mótmælt. Einnig er m.a. umfjöllun um vaktavinnu,  sagt frá því að meðaltalsreglan er yfirleitt betri fyrir SFR félaga þegar þeir fara á lífeyri og að tölvupóstur frá Veraldarvinum var kveikjan að öðruvísi sumarfríi. 

6. júní 2005

Ný íbúð á Akureyri tilbúin

Ný íbúð á Akureyri var tekin í notkun á föstudaginn var en SFR festi kaup á henni í byrjun árs 2005. Um er að ræða íbúð í parhúsi á efri hæð í Hamratúni 26, sem er í um 15 mín. göngufæri frá sundlauginni og með golfvöll þeirra norðanmanna nánast handan við hornið. Í henni eru 3 svefnherbergi og öll helstu þægindi.

6. júní 2005

Félag heilsuritara

Stofnfundur Félags heilbrigðisritara (FHR) var haldinn 31. maí sl. Stofnfélagar eru um 35 konur sem starfa bæði hjá LSH og Heilsugæslunni.  Aðgang að félaginu eiga þeir sem lokið hafa námi fyrir hjúkrunar- og móttökuritara. Markmið félagsins er að efla samvinnu, samstarf og bæta þekkingu og hag félagsmanna. Auk þess að vernda réttindi og vinna að kjarabótum fyrir félagsmenn.

1. júní 2005

Nám með vinnu

Fyrstu hópar félagsliða og hjúkrunar- og móttökuritara útskrifast.
Laugardaginn 21. maí sl. voru fyrstu hópar félagsliða og hjúkrunar- og móttökuritara, sem stunda nám með starfi sem kallað hefur verið Brú, útskrifaðir með pomp og prakt. Jens Andrésson, formaður SFR, var viðstaddur og afhenti útskriftarnemunum rós með kveðju frá félaginu. 

31. maí 2005

Ný stjórn Lífeyrisþegadeildar SFR

Aðalfundur Lífeyrisþegadeildar SFR var haldinn 23. apríl sl. Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf. Gróa Salvars lét af formennsku að eigin ósk eftir 15 ára stjórnarsetu, þar af 12 ár sem formaður. Jarmila Hermannsdóttir var kosin nýr formaður.

25. maí 2005

Kjarasamningur SFR við Styrktarfélag vangefinna samþykktur

Kosið var um kjarasamning SFR og Styrktarfélags vangefinna í gær, og var samningurinn samþykktur með 74% atkvæða. 

20. maí 2005

Styrktarfélag vangefinna og SFR skrifa undir kjarasamning

Í gær skrifuðu SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu og Styrktarfélag vangefinna undir nýjan kjarasamning.  Samningurinn er á svipuðum nótum og gerður var milli SFR og ríkissjóðs í mars sl., en nánari atriði stofnanasamningins hafa verið útfærð. Samningurinn verður kynntur félagsmönnum þriðjudaginn 24. maí kl. 16.30 og fer kynningin fram í Bjarkarási

17. maí 2005

SFR mótmælir yfirlýsingu LSH harðlega

SFR hefur krafist þess í sérstakri bókun að yfirlýsing sem fulltrúar Landspítala - háskólasjúkrahúss (LSH) lögðu fram við undirritun nýs stofnanasamnings nýlega verði dregin til baka og að áfram verði haldið því góða samstarfi sem verið hafi við SFR um launamál félagsmanna SFR á LSH. 

13. maí 2005

Stýrihópur ungra stofnaður

Í gær var stofnaður stýrihópur ungra SFR félaga. Markmið hópsins er að virkja unga félagsmenn og efla áhuga þeirra fyrir stéttarfélagsstarfi. Í hópnum sitja 10 aðalmenn og 2 varamenn. Virkt ungliðastarf hefur verið í gangi hjá SFR síðan haustið 2002 þegar undirbúningsvinna vegna ráðstefnu fyrir ungt fólk hófst en ráðstefnan var haldin í Iðnó í maí 2003.

11. maí 2005

Hægt gengur að semja við SFH

Það hefur gengið fremur brösulega að ná samningi við Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH) en þau stóðu fyrir utan kjarasamninginn sem gerður var við fjármálaráðherra og semja nú saman við SFR í fyrsta skipti.

4. maí 2005

Einn réttur - ekkert svindl

Einn réttur – Ekkert svindl var yfirskrift baráttufundar stéttarfélaganna sem haldinn var á Ingólfstorgi í Reykjavík á 1. maí. Safnast var saman við Hallgrímskirkju á Skólavörðuholti og farin kröfuganga niður á Ingólfstorg þar sem baráttufundur lsamtaka launafólks var haldinn.  Þar voru flutt ávörp, gamanmál og tónlist.

4. maí 2005

Sérstök hækkun inn í stofnanasamninga

Í kjarasamningi SFR við fjármálaráðherra frá því í mars síðast liðnum var ákvæði um viðbótar launahækkun til einstakra skilgreindra hópa, sem talið var að þyrfti að styrkja sérstaklega. Undanfarið hefur verið unnið að því að útfæra þetta atriði og er nú búið að ganga frá þessari hækkun í stofnanasamningum við fimm af þeim 19 stofnunum sem ákvæðið tekur til.

3. maí 2005

Úthlutun orlofshúsa

Úthlutun orlofshúsa er nú lokið, en aðsókn var góð að venju. Þeir sem fengu úthlutað eru þessa dagana að ganga frá samningum og ætla má að um miðjan maí skýrist hvað stendur út af, en þeir sem sóttu um og fengu neitun fara sjálfkrafa á biðlista. Þó liggur fyrir að nokkuð er inni af húsum í maí og júní, sérstaklega í Munaðarnesi þar sem flest hús eru. Júlí er fullbókaður eins og er. Ákveðið hefur verið að bjóða upp á helgarleigu í Munaðarnesi um hvítasunnuna. Fyrstir koma fyrstir fá.

29. apríl 2005

Samkomulag um starfs- og hæfnismat í HÍ

Í dag undirrituðu fulltrúar SFR og Háskóla Íslands samkomulag um stigaskala starfs- og hæfnismats sem hefur verið í vinnslu undanfarið. Unnið hefur verið að starfs- og hæfnismatinu frá árinu 2001, en samið var um að launatenging matsins tæki gildi frá og með 1. maí 2002.  Sameiginleg kynning á niðurstöðum matsins og stigaskalanum verður miðvikudaginn 4. maí nk., en staðsetning og tími verður auglýstur eftir helgi.

29. apríl 2005

Fjölmennum á baráttufundi 1. maí

SFR hvetur félagsmenn til að fjölmenna í kröfugöngur og á baráttufundi 1. maí. Krafan um réttlátara þjóðfélag er enn í fullu gildi. Í Reykjavík verður safnast saman framan við Hallgrímskirkju kl. 13, en gangan leggur af stað kl. 13.30. Útifundurinn hefst á Ingólfstorgi kl. 14.10 og þar verða flutt ávörp, gamanmál og tónlist.

28. apríl 2005

Stuðningsyfirlýsing við verkalýðshreyfingu Palestínu

Í dag ályktaði trúnaðaramannaráð SFR til stuðnings félögum sínum í verkalýðshreyfingu Palestínu, en ástandið á herteknu svæðunum í Palestínu var eitt af umræðuefnum fundarins. Viðtal við Svölu Norðdahl, varaformann SFR, er að finna í SFR-blaðinu, en hún var í hópi Íslendinga sem nýverið heimsóttu herteknu svæðin ásamt Magnúsi Þór Hafsteinssyni alþingismanni sem sagði frá heimsókninni á fundinum.  

Einnig kom fram á fundinum að Svala tók að sér að safna peningum til að koma upp tölvusamskiptabúnaði fyrir börn sem dvelja á krabbameinsdeild palestínska sjúkrahússins í Betlehem. Trúnaðarmenn voru ánægðir með framtak hennar og á fundinum safnaðist alls 27.456 krónur ásamt fullt af loforðum. Þeim sem vilja aðstoða hana í söfnuninni geta sennt henni póst á svala@listdans.is.

26. apríl 2005

Nýr kjarasamningur SFR við FLE samþykktur

Nýr kjarasamningur starfsmanna hjá Flugstöð Leifs Eiríkssonar, sem greidd hafa verið atkvæði um síðustu daga, hefur verið samþykktur af félagsmönnum SFR. Talningu atkvæða lauk síðdegis í dag. Þátttaka í atkvæðagreiðslunni var um 87% en alls greiddu 100 atkvæði um samninginn af 115 sem voru á kjörskrá.  Já sögðu 60 en nei sögðu 40. 

25. apríl 2005

Atkvæðagreiðsla um Flugstöðvarsamning framlengd

Að ósk starfsmanna í Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur verið ákveðið að framlengja atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning til kvölds en miðað hafði verið við að ljúka henni á hádegi í dag.  Stefnt er að því að atkvæði verði talin á morgun, þriðjudag 26. apríl, og verða úrslit birt strax og þau liggja fyrir.

22. apríl 2005

Rammasamningur BSRB og BHM við SA

Kjaradeila SFR og Hjartaverndar tók nýja stefnu á fundi síðast liðinn þriðjudag þegar Hjartavernd mætti með fulltrúa Samtaka atvinnulífsins sér til fulltingis en Hjartavernd hefur ákveðið að ganga til liðs við samtökin. Á fundinum var ákveðið að bíða með frekari viðræður milli SFR og Hjartaverndar á meðan skýrist hvort SA nær að gera heildar rammasamning við stéttarfélög innan BSRB og BHM...

22. apríl 2005

Atkvæðagreiðsla um samning í Flugstöðinni hafin

Kosning stendur nú yfir um nýjan samning SFR við Flugstöð Leifs Eiríkssonar sem gengið var frá þann 14. mars síðast liðinn, en fyrra samkomulag var fellt í atkvæðagreiðslu starfsmanna í mars síðast liðnum.

14. apríl 2005

Nýtt samkomulag um kjarasamning milli SFR, FLE hf. og Fh ehf.

Í dag náðist  að nýju samkomulag um kjarasamning á milli SFR annars vegar og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf. og Fríhafnarinnar ehf. hins vegar en fyrra samkomulag var fellt í atkæðagreiðslu starfsmanna í mars sl. Nýtt samkomulag verður kynnt starfsmönnum mánudaginn 18. apríl nk. kl. 17:30 á Flughótelinu Keflavík.

12. apríl 2005

Kjaradeilu SFR og Hjartaverndar vísað til sáttasemjara

Hjartavernd hefur hafnað því að endurnýja kjarasamning við SFR og er nú svo komið að SFR hefur vísað málinu til ríkissáttasemjara. Kjarasamningur SFR og Hjartaverndar rann út 30. nóvember sl. SFR reyndi ítrekað að ganga frá viðræðuáætlun við Hjartavernd og þegar fullreynt þótti setti ríkissáttasemjari deiluaðilum viðræðuáætlun í febrúar sl.

12. apríl 2005

113% aukning á heimsóknum á vefsíðu SFR

Heimsóknum á vefsíðu SFR hefur fjölgað um 113% þegar borin er saman mars 2004, en þá voru þær 5.799 alls, og mars 2005 þegar þær voru 12.343 talsins.

1. apríl 2005

Kjarasamningur SFR og fjármálaráðherra samþykktur

Atkvæðagreiðslu um kjarasamning SFR - stéttarfélags í almannaþjónustu og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs er lokið. Já sögðu 70% og nei 28%. Auð og ógild atkvæði voru 2%. Á kjörskrá voru 4672 og þar af greiddu 1957 atkvæði eða 42% þátttaka.

31. mars 2005

Umsóknarfrestur um orlofshús

Umsóknarfrestur um orlofshús SFR sumarið 2005 er til miðnættis þann 13. apríl nk. Hægt er að sækja um rafrænt en einnig fylgir umsóknarform orlofsblaðinu, sem póstlagt verður á morgun. Nýr valkostur þetta árið er glæsilegt hús að Lindarbakka við Höfn í Hornafirði, eða um 10 km vestan Hafnar. Í ár gefst félagsmönnum kostur á að sækja um hús á 14 mismunandi stöðum víðs vegar um landið, auk tjaldvagna og gistimiða á bæði Eddu-  og Fosshótelin. Orlofshúsunum á Spáni var úthlutað í janúar sl.

31. mars 2005

Fundir fyrir unga SFR félaga

Nú í apríl verða haldnir þrír fundir sem ungir SFR félagar geta skráð sig á. Tilgangur fundarins er að skiptast á skoðunum um það sem ungir félagsmenn leggja áherslu á, kynna ungliðastarf SFR og bjóða upp á ör-námskeið af ýmsu tagi. Ungir SFR félagar eru um 25% félagsmanna og vill SFR að gildismat og skoðanir þeirra eigi greiða leið inn í starf og áherslur félagsins.

21. mars 2005

Trúnaðarmaður ársins

Pétri Reyni Elíssyni voru færðar þakkir fyrir margra ára starf í þágu félagsins þegar hann var útnefndur trúnaðarmaður SFR árið 2004 á aðalfundi félagsins sem haldinn var 19. mars sl. Þetta er í sjötta skiptið sem trúnaðarmaður ársins er valinn. Pétur Reynir hefur verið félagsmaður SFR frá því á ágúst 1974. Þá hefur hann verið trúnaðarmaður félagsins til margra ára hjá RARIK á Egilsstöðum.

21. mars 2005

Stéttarfélög eiga að stuðla að velferð samfélagsins

Í ályktun sem aðalfundur SFR, haldinn 19. mars sl., sendi frá sér kemur fram að það sé hlutverk stéttarfélaga að stuðla að velferð samfélagsins. Sú velferð er hvorki eingöngu né fyrst og fremst mæld á mælikvarða hagvaxtarhugtaksins. Sú velferð er miklu frekar mæld á mælikvarða lífsgæða. Skýrslu stjórnar má nálgst hér.

15. mars 2005

Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SFR og ríkisins

Í lögum SFR segir að allsherjaratkvæðagreiðslu skuli viðhafa eins fljótt og kostur er um samkomulag um kjarasamning, en samninganefnd félagsins undirritar samkomulagið með fyrirvara um samþykki félagsmanna. Kjörgögn eru nú í prentun og verða send út í lok vikunnar.

14. mars 2005

Kynning á nýgerðum kjarasamningi

Verið er að skipuleggja kynningarherferð á nýgerðum kjarasamning SFR við ríkið. Opinn fundur fyrir SFR félaga verður haldinn miðvikudaginn 16. mars kl. 16.30 að Grettisgötu 89, 4. hæð (BSRB húsið).
Einnig verða fundir úti á vinnustöðum, bæði á höfuðborgarsvæðinu og úti á landi.

11. mars 2005

Kjarasamningur við FLE hf og Fh ehf. felldur

Kjarasamningur við Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf og Fríhöfnina ehf. felldur
Talningu atkvæða í kosningu um kjarasamning SFR og FLE/Fh er lokið.
Á kjörskrá voru 113 starfsmenn.
96 greiddu atkvæði, eða 85%.

10. mars 2005

Nýr kjarasamningur undirritaður

- Mikilvægt skref gegn kyn-bundnum launamun segir Jens Andrésson formaður SFR
“Það er margt í þessum samningi sem er mjög til bóta, en mestu skiptir að við teljum okkur vera að tryggja félagsmönnum SFR áframhaldandi kaupmáttaraukningu um leið og tekin eru mikilvæg skref til að vinna gegn kynbundnum launamun” segir Jens Andrésson formaður SFR um nýjan kjarasamning sem undirritaður var síðdegis í gær. 

9. mars 2005

SFR og ríkið undirrita kjarasamning

Nýr kjarasamningur SFR og fjármálaráðherra var undirritaður í húsakynnum sáttasemjara síðdegis í dag. Aðilar skrifuðu undir samkomulag að morgni 5. mars sl., en texti þess var færður inn í heildarsamninginn sem var undirritaður í dag. 
Samkomulagið má nálgast hér.

9. mars 2005

Undirskrift kjarasamnings SFR og ríkisins

Fyrirhugað er að skrifað verði undir nýjan kjarasamning SFR og fjármálaráðherra, f.h. ríkissjóðs,  kl. 15 í dag í húsakynnum ríkissáttasemjara. Verið er að leggja lokahönd á að fella samkomulagið sem skrifað var undir 5. mars sl. inn í heildartexta kjarasamningsins, en nú stendur yfir fundur launamálaráðs SFR þar sem verið er að kynna samkomulagið.

7. mars 2005

Helstu atriði samkomulagsins

Helstu atriði samkomulagsins sem undirritað var þann 5. mars sl.

5. mars 2005

“Bærilega sáttur við nýjan kjarasamning”

-Segir Jens Andrésson formaður SFR

"Ég er alveg bærilega sáttur við þennan samning, hann er ekki síðri en síðasti samningur sem félagið gerði við fjármálaráðuneytið og við teljum okkur vera að ná því markmiði að tryggja áframhaldandi kaupmáttaraukningu hjá félagsmönnum okkar” segir Jens Andrésson formaður SFR um nýjan kjarasamning félagsins við fjármálaráðuneytið sem gengið var frá um klukkan 5:30 í morgun eftir næturlangan fund. 

5. mars 2005

Kjarasamningur SFR og ríkisins

Klukkan 5.30 í morgun, laugardaginn 5. mars, rituðu Jens Andrésson, formaður SFR - stéttarfélags í almannaþjónustu, og Gunnar Björnsson, formaður samninganefndar ríkisins, undir samkomulag um breytingar á kjarasamningi félagsins við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.

4. mars 2005

Úrslitatilraun til að ganga frá samningi

Samninganefnd SFR hefur setið á samningafundi í húsakynnum Ríkissáttasemjara síðan á hádegi í dag og freistað þess að ganga frá nýjum kjarasamningi við samninganefnd fjármálaráðuneytisins. Nú undir kvöld voru enn nokkur mál óleyst.

4. mars 2005

Atkvæðagreiðsla í næstu viku um kjarasamning FLE hf.

Tveir kynningarfundir um nýjan kjarasamning SFR og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf. og Fríhafnarinnar ehf. hafa verið haldnir en atkvæðagreiðsla um samninginn fer fram á þriðjudag og miðvikudag í næstu viku. Á kjörskrá eru 111 starfsmenn.

3. mars 2005

Nýr kjarasamningur í augsýn

“Það er búinn að vera góður gangur í viðræðunum síðan í gær og við erum að gera okkur vonir um að hægt verði að klára samningsgerðina á næsta sólarhringnum” segir Jens Andrésson formaður SFR um ganginn í viðræðumSamninganefnd SFR um nýjan kjarasamning við samninganefnd ríkisins.

2. mars 2005

Viðræður í fullum gangi

Samninganefndir SFR og ríkisins hafa verið á fundi í allan dag um nýjan kjarasamning milli félagsins og ríkisins.  Fulltrúar þeirra félaga innan BSRB sem hittust í gær og ræddu sameiginlega afstöðu til launatöflu hafa einnig haldið því áfram í dag.

1. mars 2005

Tekist á um nýja launatöflu

“Það sem máli skiptir og enn stendur út af borðinu er að komast að niðurstöðu um útfærslu og fyrirkomulag launatöflu, annað er nokkurn vegin frágengið” segir Jens Andrésson formaður SFR um stöðuna í samningaviðræðum við ríkið.

28. febrúar 2005

Jákvæður tónn í samningsviðræðum - hádegisfréttir RÚV

Í hádegisfréttum á Rás 1 í dag kom fram að skriður væri komin á samningaviðræður félagsins við ríkið. Jákvæð skilaboð bárust frá samninganefnd ríkisins um helgina og metur Árni Stefán Jónsson, framkvæmdastjóri SFR stöðuna svo að undirritun nýs kjarasamnings geti farið fram á næstu dögum.

25. febrúar 2005

SFR semur fyrir starfsmenn Leifsstöðvar

Í gær var undirritaður kjarasamningur milli SFR – stéttarfélags í almanna-þjónustu, og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf. og Fríhafnarinnar ehf. Fyrirvari er á samþykkt félagsmanna SFR og stjórna FLE og Fh.

24. febrúar 2005

Trúnaðarmannaráð gagnrýnir seinagang

Ályktun trúnaðarmannaráðs
Trúnaðarmannaráð SFR lýsir óánægju sinni með að ekki er enn búið að ganga frá nýjum kjarasamningi við félagið en tæpir þrír mánuðir eru frá því að kjarasamningar félagsins runnu út við fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs. Ráðið lýsir fullum stuðningi við störf samninganefndar félagsins í þeim viðræðum...

22. febrúar 2005

Kjarasamningur eða aðgerðir

“Við erum núna að nálgast þann tímapunkt í samningaviðræðunum við ríkið þegar það skýrist hvort það er samningur í augsýn, eða hvort þarf að grípa til aðgerða til að knýja hann fram” segir Jens Andrésson, formaður SFR, um stöðuna í samningamálum félagsins. Á morgun munu formenn samninganefndanna hittast...

21. febrúar 2005

Kynnisferð ungra SFR félaga til Svíþjóðar

Ungir SFR félagar hafa fundað reglulega að undanförnu og vinna nú að því að skipuleggja starf ungra félaga til framtíðar. Hugmyndir eru uppi um að stofna sérstakan ungliðahóp innan SFR. Einn liður í undirbúningnum var ferð þriggja félagsmanna til Svíþjóðar þar sem Stéttarfélagið ST, sem er systurfélag SFR í Svíþjóð, var sótt heim.

21. febrúar 2005

Félagstíðindi, febrúar '05

Í öðru tölublaði Félagstíðinda SFR 2005 er auglýstur umsóknarfrestur til og með 28. febrúar fyrir orlofshús um páskana. Einnig er m.a. sagt frá íbúðarkaupum félagsins á Akureyri, breytingum á lögum um fæðingar- og foreldrarorlof, undirbúngingsvinnu fyrir læknaritaranám og námskeiðahald starfsfólks sýslumannsembættanna.

21. febrúar 2005

Vaktavinnufyrirkomulag endurskoðað

Fulltrúar BSRB, BHM og ríkisins hafa undirritað yfirlýsingu um að skipaður verði vinnuhópur til að fara í gagngera endurskoðun á málefnum vaktavinnu-starfsmanna með það að markmiði að bæta vinnufyrirkomulag þeirra og gera vaktavinnuna eftirsóknarverðari.

18. febrúar 2005

Foreldrar langveikra barna fá greiðslur í allt að þrjá mánuði

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að foreldrar langveikra barna fái greiðslur í allt að þrjá mánuði vegna tekjutaps. Sama á við um foreldra barna sem greinast með alvarlega fötlun. Greiðslan nemur 90.000 kr. á mánuði og koma greiðslurnar til framkvæmda í áföngum á þremur árum. Þannig verður greitt fyrir einn mánuð í ár, tvo mánuði næsta ár og þrjá mánuði á þriðja ári. Það var nefnd á vegum félagsmálaráðuneytisins sem mótaði tillögurnar og var Jens Andrésson, formaður SFR, fulltrúi BSRB í nefndinni. 

16. febrúar 2005

Línurnar í kjarasamningagerðinni að skýrast

“Það er búinn að vera ágætis gangur í viðræðum um nýjan kjarasamning við samninganefnd ríkisins síðustu daga og ef ekki kemur neitt óvænt upp á erum við hæfilega bjartsýn á að það takist að ljúka samningsgerðinni á næstu viku til tíu dögum” segir Jens Andrésson formaður SFR.
Af öðrum samningamálum er það að segja að vel hefur miðað í viðræðum um nýjan kjarasamning fyrir starfsfólk í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. 

10. febrúar 2005

Styrkir vegna starfsmenntunar

Starfsmenntaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu, sbr. lög nr. 19/1992 um starfsmenntun í atvinnulífinu. Verkefni innan eftirfarandi tveggja flokka njóta forgangs....

9. febrúar 2005

Aftur komin hreyfing á samningamálin

“Það má segja að það sé aftur að komast hreyfing á málin eftir ákveðna kyrrstöðu í síðustu viku” segir Jens Andrésson formaður SFR eftir samningafund með samninganefnd ríkisins í gær.  Jens segir að meginkröfur SFR sem lagt var upp með séu allar enn uppi á borðunum og til umræðu. 

6. febrúar 2005

Helstu breytingar á lögum um fæðingar- og foreldraorlof

Þann 1. janúar 2005 tóku gildi breytingar á lögum um fæðingar- og foreldraorlof. Erna Guðmundsdóttir lögfræðingur BSRB hefur tekið saman helstu breytingar á lögunum sem taka meðal annars til lágmarkstíma orlofs, viðmiðunartímabils greiðslna og hámarksgreiðslna í fæðingarorlofi.

4. febrúar 2005

Áfram tekist á um sömu mál

Samninganefnd SFR og ríkisins hittust á samningafundi í gær og þar var haldið áfram að ræða þau mál sem helst var tekist á um á síðasta fundi fyrr í vikunni, en það eru upphafshækkun í nýjum samningi og byrjun launatöflu. 

1. febrúar 2005

Upphafshækkun meðal þess sem tekist er á um

Þráðurinn í samningaviðræðum SFR og ríkisins var tekinn upp að nýju á samningafundi í morgun. Þar voru lögð fram viðbrögð SFR við hugmyndum sem settar voru fram í minnispunktum samninganefndar ríkisins í síðustu viku. Að sögn Jens Andréssonar...

28. janúar 2005

„Vongóður um nýjan samning fyrir miðjan febrúar“

- Segir formaður SFR
Á fjölsóttum trúnaðarmannaráðsfundi á miðvikudag fór samninganefnd SFR yfir stöðuna í kjaraviðræðum við ríkið. Að sögn Jens Andréssonar formanns SFR fékkst þar góður stuðningur við vinnubrögð og viðmið samninganefndarinnar í þessum viðræðum. Á samningafundi í gær lagði samninganefnd ríkisins...

25. janúar 2005

Félagstíðindi komin út

Nýtt tölublað Félagstíðinda SFR er komið út. Meðal efnis í blaðinu eru upplýsingar um námskeið á vorönn, þ.e. Gott að vita námskeiðin, námskeið á vegum Fræðslusetursins Starfsmenntar, tungumálanám BSRB og Lykilnámskeið á LSH. Þá er grein um laun innan og utan SFR, leiðari formanns um launamun kynjanna og umsóknareyðublað um orlofshús á Spáni sumarið 2005. Sagt er frá áhugamannahópi gegn umskurði kvenna og Margrét K. Sverrisdóttir skrifar um aukin útgjöld sjúklinga.

25. janúar 2005

Stöðugleikinn og samningar opinberra starfsmanna

Eins og svo oft áður hafa viðsemjendur á hinum almenna vinnumarkaði þungar áhyggjur af því að samningar við opinbera starfsmenn setji efnahagslífið á annan endann skrifar Jens Andrésson, formaður SFR, í grein sem birtist í Morgunblaðinu sl. laugardag.
Þessa dagana eru fjölmörg stéttarfélög opinberra starfsmanna í viðræðum við fulltrúa fjármálaráðu-neytisins um nýja kjarasamninga. Nokkrir samningar liggja þegar fyrir en viðræður um aðra eru mislangt á veg komnar.  Meðal þeirra sem nú ræða við ríkið um nýjan kjarasamning er SFR...

21. janúar 2005

„Málin þokast í rétta átt“

- Segir Árni Stefán um samningaviðræðurnar við ríkið
„Það er óhætt að segja að menn eru nokkuð sáttir með gang mála á meðan þau halda áfram að þokast í rétta átt“ segir Árni Stefán Jónsson framkvæmdastjóri SFR um samningaviðræður félagsins við ríkið.  Á samningafundi  í gær var haldið áfram viðræðum um launatöfluna og um óútskýrðan launamun karla og kvenna, en ein af kröfum SFR er að óútskýrðum launamun kynjanna verði útrýmt. 

12. janúar 2005

Launamálaráð SFR ályktar um stöðuna í kjaramálum

Launamálaráð SFR kom saman í dag til að fara yfir stöðuna í kjaraviðræðum félagsins við fjármálaráðuneytið. Jens Andrésson formaður SFR segir að eins og staðan er núna sé hann vongóður um að hægt verði að ganga frá nýjum kjarasamningi innan tíðar.  Hann segir að mikil samstaða og einhugur sé í Launamálaráðinu...

11. janúar 2005

Tungumálafræðsla BSRB að hefjast

Tungumálafræðsla BSRB er að fara af stað. Á höfuðborgarsvæðinu er það Framvegis, miðstöð um símenntun, sem sér um námskeiðin og á landsbyggðinni eru það símenntunarmiðstöðvarnar. Fyrstu námskeiðin hefjast í lok mánaðarins og er skráning á námskeiðin hafin.
Boðið verður upp á námskeið í ensku, dönsku, spænsku, íslensku ritmáli, þýsku og frönsku fyrir félagsmenn BSRB árin 2005 og 2006.

Nánari upplýsingar um námskeiðin og skráning.
Nánari upplýsingar um styrki.

6. janúar 2005

„Viljum ljúka nýjum samningi á næstu vikum“

-Segir Jens Andrésson formaður SFR
Fyrsti fundur samninganefnda SFR og ríkisins á nýju ári var haldinn í gær miðvikudag 5. janúar. Þar var þráðurinn tekinn upp að nýju þar sem frá var horfið fyrir jól og farið yfir helstu þætti í kröfugerð SFR og gerð áætlun til næstu þriggja vikna. Jens Andrésson formaður SFR segir mikinn hug í samninganefnd félagsins.

6. janúar 2005

Lokað vegna starfsdags

Skrifstofa SFR verður lokuð frá kl. 12 til 16 föstudaginn 7. janúar vegna starfsdags.


Slóðin þín:

Fréttir