Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

17. september 2004

Samningaviðræður um réttindamál hafnar

Samningaviðræður BSRB,BHM og KÍ við ríkið um réttindamál eru hafnar. Samtökin leggja áherslu á að bæta stöðu trúnaðarmanna, tryggingar, bættan veikindarétt, eflingu styrktarsjóða, lífeyrisréttindi, rétt tímavinnufólks, lengingu uppsagnarfrests, vinnuumhverfismál og starfsmannastefnu.

14. september 2004

Gott að vita

Gott að vita námskeið haustsins munu innihalda fjölbreytta blöndu af klassískri og nýrri fræðslu þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Dæmi um slík námskeið eru Heimilisbókhald, Vídeóupptökur og Breytingar sem tækifæri.

8. september 2004

Kröfur SFR fyrir komandi kjarasamninga

Á fundi trúnaðarmannaráðs SFR, 8. sept. sl., var kröfugerð félagsins fyrir komandi kjarasamninga samþykkt einróma, en kjarasamningar eru lausir frá og með 1. desember nk. Megináherslan er á 150.000 kr. lágmarkslaun og fjölskylduvæna kjarasamninga sem birtist í kröfu um styttingu vinnuvikunnar, aukinn rétt vegna veikinda barna o.fl. Einnig er lögð sérstök áhersla á að launamismunur kvenna og karla verði leiðréttur.

7. september 2004

Kröfugerð SFR að verða tilbúin

Fréttatilkynning
Fundur trúnaðarmannaráðs SFR, sem haldinn verður 8. september nk., mun taka til afgreiðslu kröfugerð félagsins vegna komandi kjarasamninga, en þeir eru lausir frá og með 1. desember nk.

2. september 2004

Menntun fagfólks og meðferð kynferðisbrotamála

Námsstefna verður haldin í Kennnaraháskólanum við Stakkahlíð föstudaginn 17. september kl. 9-15. Hún er haldin á vegum Stígamóta, Kvennaathvarfsins, Neyðarmóttöku vegna nauðgana, Kvenfélagasambands Íslands, Kvennaráðgjafarinnar, Kvenréttindafélagsins og Öryggisráðs Feministafélags Íslands. Markmiðið með verkefninu er að hreyfa við menntakerfinu með jákvæðum hætti og auka vitundina um umfang kynbundins ofbeldis og þá ábyrgð sem á fagfólki hvílir að bregðast rétt við. 


Slóðin þín:

Fréttir