Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

29. desember 2004

Endurskoðaðar úthlutunarreglur styrktar- og sjúkrasjóðs

Stjórn styrktar- og sjúkrasjóðs hefur unnið að enduskoðun á úthlutunarreglum sjóðsins og taka nýjar reglur gildi frá og með 1. janúar 2005. Nýmæli í reglunum eru styrkir til tannviðgerða, ættleiðingar, glasafrjóvgunar, tæknisæðingar og kaupa á heyrnartækum. Þá hefur ákvæði um gleraugnastyrk verið breytt...

29. desember 2004

Glaðir krakkar á jólaballi

SFR – stéttarfélag í almannaþjónustu og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar héldu sameiginlegt jólaball þriðjudaginn 28. desember kl. 16 í Súlnasal Hótel Sögu. Hljómsveitin Mistilteinn sá um að halda uppi fjörinu með dansi í kringum jólatréð, söngi og skemmtilegum leikjum.

28. desember 2004

Ársþing NSO haldið á Íslandi næsta sumar

NSO samtök norrænna ríkisstarfsmanna munu halda ársþing sitt hér á landi næsta sumar.  Gert er ráð fyrir að um 50 fulltrúar aðildarfélaga NSO sæki fundinn sem verður á Akureyri dagana 19. til 22. júní.  Jens Andrésson formaður SFR er jafnframt formaður NSO og er ársþing samtakanna jafnan haldið í landi þess sem er í formennsku hverju sinni.

20. desember 2004

Samningur um tungumálafræðslu BSRB undirritaður

BSRB og Framvegis miðstöð um símenntun, undirrituðu samning um tungumálafræðslu BSRB, fimmtudaginn 9. desember, í BSRB-húsinu Grettisgötu 89. Hér er um að ræða afar metnaðarfullt átak í að efla tungumálakunnáttu félagsmanna í BSRB.  Boðið verður upp á námskeið í ensku, dönsku, spænsku, íslensku ritmáli, þýsku og frönsku...

20. desember 2004

Skuldir íslenskra heimila nífaldast

Samfara auknum hagvexti hafa skuldir íslenska þjóðarbúsins farið stigvaxandi og virðist lítið lát vera á þeirri þróun. Nú er svo komið að Íslendingar skulda meira en flestar aðrar þjóðir í heiminum. Þegar litið er til iðnþróaðra ríkja eru aðeins Finnar og Nýsjálendingar skuldugri en Íslendingar.

20. desember 2004

Öflug námskeið fyrir félagsmenn SFR

Fræðslusetrið Starfsmennt býður upp á fjölbreytt námskeið á nýju ári. Eins og fyrr er um að ræða blöndu af almennum og sértækum námskeiðum, og leggur Starfsmennt áherslu á að bjóða upp á framúrskarandi efni og framsetningu á þeim.

15. desember 2004

Reglugerð um forvarnir gegn einelti á vinnustöðum

Vinnueftirlitið kynnti nýja reglugerð, Aðgerðir gegn einelti á vinnustað, á morgunverðarfundi 8. desember sl. og tekur hún gildi 20. des. nk. eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum. Markmiðið með reglugerðinni er að innan vinnustaða verði stuðlað að forvörnum og aðgerðum gegn einelti á vinnustöðum.

14. desember 2004

SFR gerir tillögu um nýja launatöflu

Samninganefnd SFR kom með nýtt útspil í kjaraviðræðum við samninganefnd ríkisins á fundi sem haldin var í dag. Samninganefnd SFR lagði fram hugmynd að nýrri launatöflu þar sem gert er ráð fyrir að svokölluðum skilgreiningarömmum A,B,C og D verði fækkað úr fjórum í þrjá.

10. desember 2004

Er stöðugleika ógnað?

Umræður um launamál og samanburður á launum ríkisstarfsmanna annars vegar og launum á almenna markaðinum hins vegar er vinsælt umræðuefni þessa dagana. Þar er gjarnan staðhæft að ríkisstarfsmenn, faglærðir sem ófaglærðir, hafi fengið ríflegan skerf af hinu efnahagslega góðæri síðustu ára, umfram starfsmenn á almenna markaðinum.  Þessi söngur hefur hljómað bæði úr herbúðum...

2. desember 2004

Sameiginleg sýn á starfsmenntamál

“Eftir að hafa á nokkrum fundum farið yfir viðfangsefni nýs samnings og skipulagt fyrirkomulag viðræðna má segja að í gær hafi í raun verið fyrsti eiginlegi samningafundurinn við ríkið þar sem kröfur okkar voru til efnislegrar umræðu” segir Jens Andrésson formaður SFR eftir fund með samninganefnd ríkisins í gær þriðjudaginn 30. nóvember.


Slóðin þín:

Fréttir