Fréttir
30. janúar 2004
Námskeið á vegum Gott að vita!
Nú hafa SFR og St.Rv sett saman námskeið fyrir vorönnina 2004. Um er að ræða blöndu af klassískum og sívinsælum námskeiðum sem og nýlegum námskeiðum. Þeir sem vilja fá nárni upplýsingar um námskeiðin geta smellt hér en allar nánari upplýsingar og skráning fer fram með því að hringja á skrifstofu SFR í síma 525-8340 eða með því að senda tölvupóst á netfangið sfr@bsrb.is. Góða skemmtun.
30. janúar 2004
Enn nokkur sæti laus á námskeið fyrir unga félagsmenn
Enn eru nokkur sæti laus á námskeiðið Vertu þú sjálfur... en hver ertu? sem ætlað er ungum félagsmönnum á aldrinum 17-35 ára. Námskeiðið byggir á ráðgjöf fyrir þá sem vilja móta raunhæfa framtíðarsýn og auka vitund sínu um eigin viðhorf, væntingar og hæfileika. Allt er þetta gert til að ungt fólk fái betur notið sín í starfi, námi og leik. Námskeiðið átti að hefjast fimmtudaginn 5. febrúar en hefur verið frestað um viku eða til fimmtudagsins 12. febrúar. Enn eru sæti laus fyrir 5-7 einstaklinga.
30. janúar 2004
Trúnaðarmannanámskeiðið Samstíga til framtíðar I að hefjast!
SFR og St. Rv munu halda áfram að bjóða trúnaðarmönnum félaganna upp á námskeiðið Samstíga til framtíðar I. Tvö námskeið verða í boði á mismunandi tímum til að sem flestir trúnaðarmenn sjái sér fært að mæta. Fyrra námskeiðið verður eftirfarandi daga:
þriðjudaginn 10. febrúar, miðvikudaginn 11. febrúar og fimmtudaginn 26. febrúar.
Síðara námskeiðið verður eftirfarandi daga:
þriðjudaginn 16. mars, miðvikudaginn 17. mars og fimmtudaginn 1. apríl.
Námskeiðið verður haldið í húsakynnum félaganna að Grettisgötu 89, 4. hæð og hefst stundvíslega kl. 08:15 og stendur yfir til 16:15 nema lokadaginn til 17:00. Kaffi og hádegismatur er í boði félaganna. Allar nánari upplýsingar má finna með því að ýta hér. Skráning og nánari upplýsingar í síma 525-8340 eða með því að senda póst á netfangið sfr@bsrb.is .

29. janúar 2004
Nýfallinn Héraðsdómur vegna ólögmætrar uppsagnar
Nýfallinn er dómur Héraðsdóms vegna ólögmætrar uppsagnar á félagsmanni SFR. Erna Guðmundsdóttir, lögfræðingur BSRB hefur gert úttekt á málsatvikum og niðurstöðum dómsins og má lesa hana hér.
19. janúar 2004
Félagstíðindi á leið til félagsmanna
Á næstu dögum munu félagsmenn fá sent til sín fyrsta tölublað ársins af Félgstíðindum. Blaðið verður í smærra sniðum að þessu sinni enda að baki nokkur stór og vegleg blöð þar með talið jólablaðið. Í blaðinu verður meðal annars sagt frá málefnum Landspítalans er varða uppsagnir starfsmanna þar auk þess sem sagt verður frá nýföllnum dómi Hæstarréttar vegna ólöglegrar uppsagnar starfsmanns ríkislögreglustjóra en SFR lét reka málið fyrir dómi og vann það. Auk þess verða hefbðundir þættir á borð við vinnustaðaheimsóknir og skráargatið.
Áhugasamir geta sent inn efni til birtingar í blaðið en það verður að gerast fyrrihluta þessarar viku eigi það að birtast í næsta tölublaði. Áhugsamir sendi efni á netfangið sara@sfr.bsrb.is<
19. janúar 2004
Fyrirhugaðir trúnaðarmannaráðsfundir
Trúnaðarmenn athugið:
Fyrirhugaðir trúnaðarmannaráðsfundir eru fyrirhugaðir eftirfarandi daga á vorönn 2004:
Miðvikudaginn 25. febrúar kl. 13:00
Laugardaginn 27. mars kl. 11:00
Fimmtudaginn 29. apríl kl. 13:00
Þriðjudaginn 25. maí kl. 13:00
Við minnum einnig á fræðslumorgna sem í boði verða fyrir trúnaðarmannaráðfundina en þeir verða auglýstir nánar síðar. Áhugasamir skrái sig með þvi að senda inn beiðni þess efnis á netfangið sfr@bsrb.is eða með því að hringja í síma 525-8340. Góða skemmtun!

Gott að vita námskeið og trúnaðarmannafræðsla að hefjast
Í næsta tölublaði Félagstíðinda, sem kemur út á næstu dögum, verður kynning á þeim námskeiðum sem félagið býður félagsmönnum sínum upp á vegum Gott að vita. Nokkur ný námskeið verða í boði í bland við gömul og sígild. Einnig fer félagið af stað með trúnaðarmannanámskeiðið Samstíga til framtíðar I í febrúar. Við hvetjum félagsmenn til að kynna sér námskeiðin og skrá sig í tíma með því að senda póst á netfangið sfr@bsrb.is eða með því að hringja í síma 525-8340 og tilkynna þátttöku. Góða skemmtun!!
Trúnaðarmannanámskeiðið Samstíga til framtíðar I verður í boði eftir áramót fyrir nýja trúnarðamenn sem og þá sem hafa starfað lengi en ekki gefið sér tíma til að sækja námskeiðið. Allar nánari upplýsingar verða veittar á heimasíðu félagsins á næstu dögum og í Félagstíðindum. Áhugsamir skrái sig með því að senda póst á netfangið sfr@bsrb.is eða með því að hringja í síma 525-8340.

Námskeið fyrir ungt fólk
Í febrúar mun SFR bjóða upp á námskeið fyrir ungt fólk, í samstarfi við Hrafnhildi Tómasdóttur, náms- og starfsráðgjafa. Um er að ræða námskeiðið Vertu þú sjálfur... en hver ertu? sem byggir á ráðgjöf fyrir þá sem vilja móta raunhæfa framtíðarsýn og auka vitund sínu um eigin viðhorf, væntingar og hæfileika. Allt er þetta gert til að ungt fólk fái betur notið sín í starfi, námi og leik.
13. janúar 2004
Næsti trúnaðarmannaráðsfundur miðvikudaginn 14. janúar
Næsti trúnaðarmannaráðsfundur SFR verður haldinn í húsakynnum félagsins að Grettisgötu 89, miðvikudaginn 14. janúar næstkomandi kl. 13:00. Í ljósi frétta og umræðna í samfélaginu þessa dagana varðandi fyrirhugaðar uppsagnir fjölda fólks á Landspítalanum mun Magnús Pétursson, forstjóri LSH koma og flytja erindi. Málefni tengd innra starfi félagsins verða einnig í hávegum höfð og mun til dæmis eiga sér stað undirbúningur fyrir aðalfund félagsins sem haldinn verður 27. mars næstkomandi. Einnig mun kosning launamálaráðs eiga sér stað á fundinum.
Við hvetjum alla til að mæta og hlýpa á athyglisverð erindi og taka þátt í umræðum þeim tengdum.
8. janúar 2004
Þing ungra félagsmanna SFR laugardaginn 17. janúar
Laugardaginn 17. janúar næstkomandi frá 14-19 verður þing ungra félagsmanna SFR haldið í húsakynnum félagsins að Grettisgötu 89. Þingið er hugsað sem framhaldsskref af ráðstefnu sem SFR stóð fyrir í maí á síðasta ári þegar um 80 manns mættu og hlýddu á ýmiss erindi og atriði auk þess að taka þátt í umræðum er varða þátttöku og hagsmuni ungs fólks innan félagsins. Nú er svo komið að framhald verði á vinnu ungliðanna og hefur nefnd ungliða legið undir feld síðustu mánuði og skipulagt þing sem blásið verður til eftir rétt rúma viku. Sjá nánar síðu ungra félagsmanna SFR hér.