Fréttir
29. desember 2004
Endurskoðaðar úthlutunarreglur styrktar- og sjúkrasjóðs
Stjórn styrktar- og sjúkrasjóðs hefur unnið að enduskoðun á úthlutunarreglum sjóðsins og taka nýjar reglur gildi frá og með 1. janúar 2005. Nýmæli í reglunum eru styrkir til tannviðgerða, ættleiðingar, glasafrjóvgunar, tæknisæðingar og kaupa á heyrnartækum. Þá hefur ákvæði um gleraugnastyrk verið breytt...
29. desember 2004
Glaðir krakkar á jólaballi
SFR – stéttarfélag í almannaþjónustu og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar héldu sameiginlegt jólaball þriðjudaginn 28. desember kl. 16 í Súlnasal Hótel Sögu. Hljómsveitin Mistilteinn sá um að halda uppi fjörinu með dansi í kringum jólatréð, söngi og skemmtilegum leikjum.
28. desember 2004
Ársþing NSO haldið á Íslandi næsta sumar
NSO samtök norrænna ríkisstarfsmanna munu halda ársþing sitt hér á landi næsta sumar. Gert er ráð fyrir að um 50 fulltrúar aðildarfélaga NSO sæki fundinn sem verður á Akureyri dagana 19. til 22. júní.
20. desember 2004
Samningur um tungumálafræðslu BSRB undirritaður
BSRB og Framvegis miðstöð um símenntun, undirrituðu samning um tungumálafræðslu
20. desember 2004
Skuldir íslenskra heimila nífaldast
Samfara auknum hagvexti hafa skuldir íslenska þjóðarbúsins farið stigvaxandi og virðist lítið lát vera á þeirri þróun. Nú er svo komið að Íslendingar skulda meira en flestar aðrar þjóðir í heiminum. Þegar litið er til iðnþróaðra ríkja eru aðeins Finnar og Nýsjálendingar skuldugri en Íslendingar.
20. desember 2004
Öflug námskeið fyrir félagsmenn SFR
Fræðslusetrið Starfsmennt býður upp á fjölbreytt námskeið á nýju ári. Eins og fyrr er um að ræða blöndu af almennum og sértækum námskeiðum, og leggur Starfsmennt áherslu á að bjóða upp á framúrskarandi efni og framsetningu á þeim.
15. desember 2004
Reglugerð um forvarnir gegn einelti á vinnustöðum
Vinnueftirlitið kynnti nýja reglugerð, Aðgerðir gegn einelti á vinnustað, á morgunverðarfundi 8. desember sl. og tekur hún gildi 20. des. nk. eftir birtingu hennar í Stjórnartíðindum. Markmiðið með reglugerðinni er að innan vinnustaða verði stuðlað að forvörnum og aðgerðum gegn einelti á vinnustöðum.
14. desember 2004
SFR gerir tillögu um nýja launatöflu
Samninganefnd SFR kom með nýtt útspil í kjaraviðræðum við samninganefnd ríkisins á fundi sem haldin var í dag. Samninganefnd SFR lagði fram hugmynd að nýrri launatöflu þar sem gert er ráð fyrir að svokölluðum skilgreiningarömmum A,B,C og D verði fækkað úr fjórum í þrjá.
10. desember 2004
Er stöðugleika ógnað?
Umræður um launamál og samanburður á launum ríkisstarfsmanna annars vegar og launum á almenna markaðinum hins vegar er vinsælt umræðuefni þessa dagana. Þar er gjarnan staðhæft að ríkisstarfsmenn, faglærðir sem ófaglærðir, hafi fengið ríflegan skerf af hinu efnahagslega góðæri síðustu ára, umfram starfsmenn á almenna markaðinum. Þessi söngur hefur hljómað bæði úr herbúðum...
2. desember 2004
Sameiginleg sýn á starfsmenntamál
“Eftir að hafa á nokkrum fundum farið yfir viðfangsefni nýs samnings og skipulagt fyrirkomulag viðræðna má segja að í gær hafi í raun verið fyrsti eiginlegi samningafundurinn við ríkið þar sem kröfur okkar voru til efnislegrar umræðu” segir Jens Andrésson formaður SFR eftir fund með samninganefnd ríkisins í gær þriðjudaginn 30. nóvember.
25. nóvember 2004
Ályktun Trúnaðarmannaráðs SFR um boðaðar skattalækkanir
Á fundi trúnaðarmannaráðs SFR 24. nóvember var samþykkt eftirfarandi álytkun um skattalækkunaráform ríkisstjórnarinnar: “Trúnaðarmannaráð SFR hefur áhyggjur af þeim skattalækkunum sem nú hafa verið boðaðar, þar sem líkur eru á að með þeim hagnast hinir best settu mest, en hinir tekjulægstu minnst".
23. nóvember 2004
Samninganefnd ríkisins dró tilbaka tillögu um trúnaðarmenn
Nokkur afturkippur kom í viðræðum um sameiginlegar kröfur BSRB, BHM og KÍ þegar samninganefnd ríkisins dró tilbaka tillögur sem hún hafði gert um trúnaðarmenn sem samtökin höfðu metið sem gott innlegg í viðræðurnar. Að sögn Árna Stefáns Jónssonar, framkvæmdastjóra SFR, var lítið um haldbærar skýringar á þessum sinnaskiptum...
19. nóvember 2004
Breytt útlit á vefsíðum um málefni starfsmanna ríkisins
Undanfarið hefur starfsmannaskrifstofa fjármálaráðuneytisins unnið að endurskoðun á vefsíðum um starfsmannamál ríkisins og m.a. hefur efnisflokkunin tekið nokkrum breytingum.
17. nóvember 2004
Ágrip af 65 ára sögu SFR birt á heimasíðunni
Í dag, miðvikudaginn 17. nóvember, eru liðin 65 ár frá stofnun SFR. Starfsmannafélag ríkisstofnana eins og félagið hét í upphafi var stofnað í Alþýðuhúsinu í Reykjavík 1939. Guð
17. nóvember 2004
Hefðbundin fyrstu viðbrögð við kröfugerð SFR
Fyrsti fundur samninganefndar SFR og ríkisins um nýjan kjarasamning var haldinn síðast liðinn mánudag. Á fundinum var kröfugerð SFR lögð formlega fram og gerð grein fyrir meginkröfum félagsins.....
17. nóvember 2004
Tímaskortur og staðan í kjaramálum
Næsti trúnaðarmannaráðsfundur SFR verður haldinn klukkan 13, miðvikudaginn 24. nóvember. Reikna má með að þetta verði síðasti fundur ráðsins á þessu ári, nema til sérstakra tíðinda dragi sem trúnaðarmannaráðið þarf að fjalla um.
15. nóvember 2004
Fyrsti fundur um Flugstöðina
Fyrsti fundur um nýjan kjarasamning starfsmanna fríhafnarinnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur verið boðaður næstkomandi fimmtudag 18. nóvember. Núgildandi kjarasamningur rann út um síðustu mánaðamót og er vinnu við kröfugerð lokið og hefur verið fjallað um hana meðal starfsfólks flugstöðvarinnar.
12. nóvember 2004
Samningaviðræður um kröfur SFR að hefjast
12.11.2004
- Viðræðum um sameiginlegar kröfur að ljúka
Fyrsti samningafundur samninganefndar SFR og samninganefndar ríkisins um kröfur SFR hefur verið boðaður mánudaginn 15. nóvember. Undanfarið hafa verið haldnir 17 samningafundir um sameiginlegar kröfur BSRB, BHM og KÍ og standa vonir til að þeim viðræðum ljúki í næstu viku. Árni Stefán Jónsson framkvæmdastjóri SFR sem sæti á í samninganefndinni segir að í ljósi þess að nú sjái fyrir endann á þessum sameiginlegu viðræðum hafi verið ákveðið að óska eftir því að hefja strax viðræður um kröfur SFR.
12. nóvember 2004
Eftirminnileg átakaferð
-
“Það var mjög sterk upplifun að koma til Suður Kóreu sem fulltrúi Norðurlandanna og fylgjast með baráttunni sem samtök opinberra starfsmanna eiga í þar í landi og hafa aðstöðu til að ræða milliliðalaust við fulltrúa stjórnvalda um ástandið og styðja með þeim hætti við bakið á félögum okkar” segir
2. nóvember 2004
Námskeið úti á landi - laus pláss
Þessa haustönn býður SFR félagsmönnum sínum upp á námskeið/fyrirlestra á Akureyri, Dalvík, Siglufirði, Borgarnesi, Selfossi, Ísafirði, Hólmavík, Neskaupstað og Eskifirði í samstarfi við símenntunarmiðstövar úti á landi. Enn eru laus pláss og hvetjum við félagsmenn til að kynna sér hvað er í boði.
22. október 2004
Viðræður fram undan við Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Vinna við kröfugerð starfsmanna sem vinna hjá Fríhöfninni í Flugstöð Leifs Eiríkssonar er nú á lokastigi en núgildandi kjarasamningur rennur út þann 31. október næst komandi. Gert er ráð fyrir að samningaviðræður hefjist mjög fljótlega...
22. október 2004
Aukinn þungi að færast í samningaviðræður
Á mánudag og þriðjudag munu samninganefndir BSRB, BHM, KÍ og ríkisins hittast á vinnufundum þar sem farið verður yfir réttindamál aðildarfélaga BSRB sem samkomulag er um að taka fyrir á hinum sameiginlega vettvangi. „Við lítum svo á að með þessum vinnufundum sé að færast meiri þungi í viðræðurnar” segir
21. október 2004
Framtíð velferðarþjónustu - réttindi launafólks í Evrópusambandinu
Föstudaginn 29. október kl. 9.15 mun BSRB efna til fundar með framkvæmdastjóra og varaformanni EPSU, Evrópusambands starfsfólks í almannaþjónustu, þeim Carola Fischbach-Pyttel og Anne-Marie Perret. EPSU, Evrópusamband starfsfólks í almannaþjónustu, er málsvari 193 stéttarfélaga og sambanda í 33 löndum Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins. EPSU kemur fram fyrir hönd starfsfólks í almannaþjónustu gagnvart valdastofnunum ESB.
20. október 2004
17% launamunur kynja
![]()
Óútskýrður launamunur kynja er 17% meðal félaga í BSRB, BHM og KÍ. Þessar niðurstöður koma fram í könnun Hagrannsóknastofnunar samtaka launafólks í almannaþjónustus (HASLA) sem kynnt var í morgun. Um er að ræða 17% mun á heildarlaunum þegar borin eru saman karl og kona sem eru í fullu starfi, hafa sömu menntun, vinna sambærilegt starf og jafnlangan vinnutíma.
15. október 2004
Stytting vinnuvikunnar
Fundur trúnaðarmannaráðs SFR, haldinn 14. október, sendir frá sér eftirfarandi ályktun:
Í kröfugerð heildarsamtaka opinberra starfsmanna, BSRB, BHM og KÍ, er krafa um styttingu vinnuvikunnar svo hún verði ekki lengri en almennt gerist í nágrannalöndum okkar. Þetta ákvæði er einnig í kröfugerð
15. október 2004
Samningaviðræður hafnar
15.10.2004
Nokkrir fundir hafa verið haldnir með samninganefnd ríkisins um réttindamál sem varða alla ríkisstarfsmenn BSRB, BHM og KÍ. Á þessum fyrstu fundum hafa réttindamál trúnaðarm
15. október 2004
Ályktun um Sólbaksdeiluna
Fundur trúnaðarmannaráð SFR, haldinn 14. október, sendir frá sér eftirfarandi ályktun:
Sterk hreyfing launþega og öflug samtök atvinnulífs eru hornsteinar á íslenskum vinnumarkaði. Nú ber svo við að forsvarsmenn útgerðarfélagsins Brims á Akureyri þjösnast fram og sniðganga lög og leikreglur vinnumarkaðarins. Slíkt er aðför að samningsrétti stéttarfélaga og til þess fallið að grafa undan verkalýðshreyfingunni og réttindabaráttu launafólks almennt.
11. október 2004
Málþing um jafnréttisáætlanir
Jafnréttisráð stendur fyrir málþingi um jafnréttisáætlanir á Grand - Hótel 26. október nk. Fjallað verður um gildi jafnréttislaga, jafréttisáætlanir, fyrirtæki og jafnrétti, jafnréttisstefnu Reykjavíkur-borgar o.fl.
8. október 2004
SFR afhenti 10 milljónir til stuðnings kjarabaráttu grunnskólakennara
Ályktun til stuðnings
grunnskólakennurum.
Stjórn SFR-stéttarfélags í almannaþjónustu lýsir eindregnum stuðningi við kjarabaráttu grunnskólakennara og sendir ykkur baráttu-kveðjur.
Skólastarf er samfélagslegt viðfangsefni og krafan er að hér séu starfræktir góðir skólar. Grundvöllur að góðu skólastarfi er m.a. viðunandi laun og gott vinnuumhverfi starfsmanna skólanna.
Mjög brýnt er að samningar takist hið fyrsta því langvinnt verkfall getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir alla hlutaðeigandi. Sem stuðning í vinnudeilu ykkar við Launanefnd sveitarfélaga hefur vinnudeilusjóður SFR ákveðið að styrkja kjarabaráttu ykkar með 10 milljóna króna framlagi.
1. október 2004
Norðurlandasamstarf SFR
Formannafundur NSO (Nordiske Statstjenestemenns Organisasjon) var haldinn í Osló dagana 28. – 29. september sl., en SFR er í forsvari fyrir samtökin starfsárið 2004-2005. Á fundinum var fjallað um réttindabaráttu ríkisstarfsmanna í Suður-Kóreu sem NSO hefur stutt við bakið á. Einnig var tekin ákvörðun um að þema ráðstefnun NSO, sem haldin verður næstkomandi sumar á Akureyri, yrði ungt fólk til starfa hjá ríkinu.
17. september 2004
Samningaviðræður um réttindamál hafnar
Samningaviðræður BSRB,BHM og KÍ við ríkið um réttindamál eru hafnar. Samtökin leggja áherslu á að bæta stöðu trúnaðarmanna, tryggingar, bættan veikindarétt, eflingu styrktarsjóða, lífeyrisréttindi, rétt tímavinnufólks, lengingu uppsagnarfrests, vinnuumhverfismál og starfsmannastefnu.
14. september 2004
Gott að vita
Gott að vita námskeið haustsins munu innihalda fjölbreytta blöndu af klassískri og nýrri fræðslu þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Dæmi um slík námskeið eru Heimilisbókhald, Vídeóupptökur og Breytingar sem tækifæri.
8. september 2004
Kröfur SFR fyrir komandi kjarasamninga
Á fundi trúnaðarmannaráðs SFR, 8. sept. sl., var kröfugerð félagsins fyrir komandi kjarasamninga samþykkt einróma, en kjarasamningar eru lausir frá og með 1. desember nk. Megináherslan er á 150.000 kr. lágmarkslaun og fjölskylduvæna kjarasamninga sem birtist í kröfu um styttingu vinnuvikunnar, aukinn rétt vegna veikinda barna o.fl. Einnig er lögð sérstök áhersla á að launamismunur kvenna og karla verði leiðréttur.
7. september 2004
Kröfugerð SFR að verða tilbúin
![]()
Fréttatilkynning
Fundur trúnaðarmannaráðs SFR, sem haldinn verður 8. september nk., mun taka til afgreiðslu kröfugerð félagsins vegna komandi kjarasamninga, en þeir eru lausir frá og með 1. desember nk.
2. september 2004
Menntun fagfólks og meðferð kynferðisbrotamála
Námsstefna verður haldin í Kennnaraháskólanum við Stakkahlíð föstudaginn 17. september kl. 9-15. Hún er haldin á vegum Stígamóta, Kvennaathvarfsins, Neyðarmóttöku vegna nauðgana, Kvenfélagasambands Íslands, Kvennaráðgjafarinnar, Kvenréttindafélagsins og Öryggisráðs Feministafélags Íslands. Markmiðið með verkefninu er að hreyfa við menntakerfinu með jákvæðum hætti og auka vitundina um umfang kynbundins ofbeldis og þá ábyrgð sem á fagfólki hvílir að bregðast rétt við.
30. ágúst 2004
Undirbúningur kjarasamninga hafinn
Á fundi launamálaráðs í sumarbyrjun var kosið í samninganefnd félagsins. Hún samanstendur af 13 einstaklingum og koma þeir úr mörgum öngum félagsins. Nefndin er hæfilega skipuð af miklu reynsluboltum sem og nýju fólki. Nefndin kom fyrst saman í byrjun júní og ræddi verkefnin sem eru framundan. Nú í lok ágúst fór nefndin í tveggja daga vinnuferð á Hótel Heklu á Skeiðum, þar sem hópurinn kynntist innbyrðis og fór ítarlega yfir drög að kröfugerð félagsins fyrir komandi kjarasamninga.
30. ágúst 2004
Vika símenntunar
Vika símenntunar verður haldin dagana 12.-18. september en hún er nú haldin í fimmta sinn hér á landi. Vika símenntunar er á vegum menntamálaráðuneytisins en Mennt - samstarfsvettvangur atvinnulífs og skóla sér um skipulagningu og framkvæmd hennar í samvinnu við símenntunarmiðstöðvarnar níu á landsbyggðinni. Um er að ræða kynningarátak þar sem athyglinni er að þessu sinni beint að ungu fólki undir slagorðinu EKKI BARA HUGSA UM ÞAÐ!
18. ágúst 2004
Jens Andrésson formaður NSO
18. ágúst 2004
Opinberir starfsmenn Norðurlandanna ræða málin
Verkaskipting ríkis og sveitarfélaga á Norðurlöndum var meðal umræðuefna á árlegri ráðstefna NSO (Nordiske Statstjenestemenns Organisasjon) sem var haldin í Ouluborg í Finnlandi 11. – 14. ágúst sl. Að þessu sinni var hún haldin í samvinnu við norræn samtök starfsmanna sveitarfélaganna, NTR (Nordisk Tjenestemannsråd).
14. júlí 2004
SFR dæmdur sigur í máli fyrir Félagsdómi
Mánudaginn 12. júlí sl. birti Félagsdómur úrskurð sinn í máli SFR gegn ríkinu og Eflingu, og dæmdi SFR í vil. Fallist var á allar kröfur SFR.
28. júní 2004
Jónsmessuferð Lífeyrisþegadeildar SFR
7. júní 2004
Tiltekt í Munaðarnesi
Hreinsunarátak sem stjórn fulltrúaráðs orlofsheimila BSRB stóð fyrir um síðustu helgi tókst mjög vel. En eins og kunnugt er þá hefur verið unnið að miklum hitaveituframkvæmdum í orlofshúsabyggðinni í Munaðarnesi með tilheyrandi jarðraski. Því skoraði stjórnin á stjórnarmenn í BSRB, sjálfa sig, orlofsnefndir aðildarfélaga og hverja þá aðra sem vildu leggja góðu málefni liðsinni að mæta í Munaðarnes og taka til hendi 4.-6. júní. Á laugardeginum voru um 70 dagsverk unnin við jarðvegsfrágang og þrif á húsum.7. júní 2004
Samninganefnd kosin á kjaramálaráðstefnu
Síðasta föstudag var kjaramálaráðstefna SFR haldin hér á Grettisgötunni. Fulltrúar úr launamálaráði komu saman og héldu áfram að vinna að undirbúningi komandi samninga. Vinnuhópar sem voru skipaðir á síðasta fundi launamálaráðs gerðu grein fyrir niðurstöðum sínum, sem voru um margt fróðlegar og áhugaverðar. Seinnipart dags var unnið í hópum og 10 kjarakröfum forgagnsraðað. Flestir hóparnir settu 150 þúsund króna lágmarkslaun í fyrsta sætið, en einnig kom stytting vinnuvikunnar ofarlega á blað. Þá var kosið í samninganefnd félagsins. Fram var lögð tillaga um 11 einstaklinga í nefndina og var hún samþykkt einróma.
28. maí 2004
Áminningarfrumvarpinu frestað
27. maí 2004
Verðbólga hefur aukist hraðar en reiknað var með
Trúnaðarmannaráð SFR fundaði 25. maí sl. Á fundinn kom Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður Greiningardeildar Landsbankans, og fjallaði um stöðu efnahagsmála við upphaf kjarasamninga. Í erindi hennar kom m.a. fram að sennilegt er að verðbólga verði yfir 2,5% markmiði Seðlabanka Íslands næstu 18 mánuðina. Verðbólgan hefur aukist hraðar en reiknað var með og má rekja ástæðurnar til gengisáhrifa, hærra bensínverðs, hækkun á fasteignamarkaðari og vaxandi innlendrar eftirspurnar.24. maí 2004
Ársfundur LSR og LH
18. maí 2004
STÖNDUM VÖRÐ UM LÝÐRÆÐIÐ!
ALLIR Á VÖLLINN! SÝNUM ÞEIM RAUÐA SPJALDIÐ!
Fjöldafundur á Austurvelli miðvikudaginn 19. maí kl. 12:10. Hingað og ekki lengra!
Lýðræði byggist á umræðum, gagnsæi, ábyrgð, virðingu og trausti. Íslensk stjórnvöld sniðganga lýðræðislega umræðu í hverju málinu á fætur öðru og beita handafli til að koma fram málum. Írak, útlendingalög, umhverfismál, öryrkjar, réttindi launafólks, Hæstiréttur, Umboðsmaður Alþingis, kærunefnd jafnréttismála, og nú síðast fjölmiðlar. Nú er mælirinn meira en fullur. Leikreglur lýðræðisins eru ekki virtar.
17. maí 2004
Hvað þýðir breyting fjármálaráðherra á starfsmannalögunum fyrir þig?
13. maí 2004
Eiga duttlungar að ráða uppsögn?
12. maí 2004
Undirbúningur komandi kjarasamninga
Launamálaráð SFR fundaði í gær vegna komandi kjarasamninga, en kjarasamningar SFR og ríkisins eru lausir 1. desember nk. Á fundinum var einnig fjallað um fyrirliggjandi frumvarp til breytinga á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Frumvarpið felur í sér breytingar á ráðningarfestu og telur launamálaráð þær ganga það langt að það er óásættanlegt fyrir ríkisstarfsmenn .
Á fundinum var farið yfir árangurinn á samningstímanum.
10. maí 2004
Miðar í Hvalfjarðargöng. Gistimiðar á Hótel Eddu og Fosshótel.
Félagsmönnum stendur til boða að kaupa miða í Hvalfjarðargöngin á 700 kr. aðra leiðina, eða 1.400 kr. fram og til baka.
Eins og undanfarin sumur þá verða miðar á Hótel Eddu til sölu á skrifstofu SFR frá og með 1. júní nk. Þá býðst félagsmönnum í fyrsta sinn að kaupa gistimiða sem gilda á öllum Fosshótelunum, sem eru alls 13 á landinu. Um takmarkað magn gistimiða verður að ræða og getur hver félagsmaður mest fengið 7 miða.
7. maí 2004
Vinnustaðafundir
Þessa dagana er SFR að hefja fundarherferð í tilefni af komandi kjarasamningum. Vinnustaðir félagsmanna verða heimsóttir þar sem fjallað verður um árangur af síðasta samningstímabili og rætt um það helsta sem er að gerast hjá félaginu. Síðast en ekki síst viljum við heyra í félagsmönnum hvað þeim finnst skipta máli í komandi samningsviðræðum. Byrjað verður á því að fara inn á stærstu vinnustaðina og síðan minni eftir því sem óskað verður eftir.6. maí 2004
Styrkir til „laser“ aðgerða, sjónglerjakaupa og útfara
16. apríl 2004
1. maí framundan
.jpg)
1. maí, alþjóðlegur frídagur verkalýðsins er á næsta leyti. Saga dagsins á sér langa ögu en hátíðarhöldin spruttu upp úr baráttu verkafólks í Bandaríkjunum fyrir átta stunda vinnudegi árið 1886. SFR hvetur alla félagsmenn til að taka þátt í hátíðarhöldum en dagskrá dagsins er full af áhugaverðum erindum og atriðum og vonast félagið til að sem flestir sjái sér fært að mæta. Dagskrá dagsins má finna hér.
16. apríl 2004
Sumarúthlutun orlofshúsa
13. apríl 2004
Næsti trúnaðarmannaráðsfundur 29. apríl
30. mars 2004
Orlofsblað Félagstíðinda komið út
30. mars 2004
Orlofsuppbót fyrir árið 2004
24. mars 2004
Eineltisbæklingurinn Samstaða gegn einelti á vinnustöðum lítur dagsins ljós
8. mars 2004
Orlofsblað Félagstíðinda að koma út
1. mars 2004
Aðalfundur SFR laugardaginn 20. mars nk.
30. janúar 2004
Námskeið á vegum Gott að vita!
30. janúar 2004
Enn nokkur sæti laus á námskeið fyrir unga félagsmenn
30. janúar 2004
Trúnaðarmannanámskeiðið Samstíga til framtíðar I að hefjast!
þriðjudaginn 10. febrúar, miðvikudaginn 11. febrúar og fimmtudaginn 26. febrúar.
Síðara námskeiðið verður eftirfarandi daga:
þriðjudaginn 16. mars, miðvikudaginn 17. mars og fimmtudaginn 1. apríl.
Námskeiðið verður haldið í húsakynnum félaganna að Grettisgötu 89, 4. hæð og hefst stundvíslega kl. 08:15 og stendur yfir til 16:15 nema lokadaginn til 17:00. Kaffi og hádegismatur er í boði félaganna. Allar nánari upplýsingar má finna með því að ýta hér. Skráning og nánari upplýsingar í síma 525-8340 eða með því að senda póst á netfangið sfr@bsrb.is .
29. janúar 2004
Nýfallinn Héraðsdómur vegna ólögmætrar uppsagnar
19. janúar 2004
Félagstíðindi á leið til félagsmanna
19. janúar 2004
Fyrirhugaðir trúnaðarmannaráðsfundir
Miðvikudaginn 25. febrúar kl. 13:00
Laugardaginn 27. mars kl. 11:00
Fimmtudaginn 29. apríl kl. 13:00
Þriðjudaginn 25. maí kl. 13:00
Við minnum einnig á fræðslumorgna sem í boði verða fyrir trúnaðarmannaráðfundina en þeir verða auglýstir nánar síðar. Áhugasamir skrái sig með þvi að senda inn beiðni þess efnis á netfangið sfr@bsrb.is eða með því að hringja í síma 525-8340. Góða skemmtun!
19. janúar 2004
Gott að vita námskeið og trúnaðarmannafræðsla að hefjast
Trúnaðarmannanámskeiðið Samstíga til framtíðar I verður í boði eftir áramót fyrir nýja trúnarðamenn sem og þá sem hafa starfað lengi en ekki gefið sér tíma til að sækja námskeiðið. Allar nánari upplýsingar verða veittar á heimasíðu félagsins á næstu dögum og í Félagstíðindum. Áhugsamir skrái sig með því að senda póst á netfangið sfr@bsrb.is eða með því að hringja í síma 525-8340.
19. janúar 2004
Námskeið fyrir ungt fólk
13. janúar 2004
Næsti trúnaðarmannaráðsfundur miðvikudaginn 14. janúar
Næsti trúnaðarmannaráðsfundur SFR verður haldinn í húsakynnum félagsins að Grettisgötu 89, miðvikudaginn 14. janúar næstkomandi kl. 13:00. Í ljósi frétta og umræðna í samfélaginu þessa dagana varðandi fyrirhugaðar uppsagnir fjölda fólks á Landspítalanum mun Magnús Pétursson, forstjóri LSH koma og flytja erindi. Málefni tengd innra starfi félagsins verða einnig í hávegum höfð og mun til dæmis eiga sér stað undirbúningur fyrir aðalfund félagsins sem haldinn verður 27. mars næstkomandi. Einnig mun kosning launamálaráðs eiga sér stað á fundinum.
Við hvetjum alla til að mæta og hlýpa á athyglisverð erindi og taka þátt í umræðum þeim tengdum.

