Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

23. janúar 2003

Dagskrá fyrir „Gott að vita“ á vorönn 2003

Dagskrá fyrir námskeið og fyrirlestra, á vorönn 2003, á vegum SFR er tilbúin. Um er að ræða námskeið í Reykjavík, á Selfossi og Akureyri og eru þau sett upp í samvinnu við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, Starfsmannafélag Akureyrarbæjar og Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi.  Reynt er að bjóða upp á fjölbreytt námskeið, bæði stutt og löng, á mismunandi tíma svo flestir finni eitthvað við sitt hæfi. Meðal annar er boðið upp á námskeið um hvernig takast á við breytingar, vellíðan á vinnustað, áhugasviðsgreiningu - sjálfsmat, fjölgreindarkenningar og fleira. 

21. janúar 2003

Jafnréttislögum verði framfylgt

Á síðasta fundi trúnaðarmannaráðs SFR sem haldinn var 17. janúar sl. var eftirfarandi ályktun samþykkt.

Fundur trúnaðarmannaráðs SFR krefst þess að lögum nr. 96/2000 um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna verði framfylgt og vísar þar sérstaklega til greina nr. 13 og 14 í lögunum. Í 13. grein segir að fyrirtæki og stofnanir þar sem starfa fleiri en 25 starfsmenn skuli setja sér jafnréttisáætlun eða kveða sérstaklega á um jafnrétti kvenna og karla í starfsmannastefnu sinni. Grein 14 segir að konum og körlum er starfa hjá sama atvinnu-rekanda skuli greidd jöfn laun og að þau skuli njóta sömu kjara fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf.

21. janúar 2003

Smæð ríkisstofnana stendur starfsþróun fyrir þrifum

Fyrsta tölublað Félagstíðinda SFR á árinu 2003 er komið út. Í blaðinu er fjallað um starfsþróun og  í viðtali við Gunnar Björnsson, forstöðumann starfsmannaskrifstofu Fjármálaráðuneytisins, kemur fram að smæð ríkisstofnana stendur starfsþróun fyrir þrifum. Einnig er rætt við Gylfa Dalmann Aðalsteinsson, lektor við Háskóla Íslands, um starfsþróun, starfsmannaviðtöl og breyttar áherslur í starfsmannamálum. Þá er dagskrá „Gott að vita“ námskeiðanna fyrir vorönn 2003 birt í blaðinu, en þar er um að ræða fyrirlestra/námskeið opin félagsmönnum.

8. janúar 2003

Jólaball SFR og St.Rv.

Færri komust að en vildu á jólaball félagsins sunnudaginn 29. desember á Hótel Sögu.  Afar og ömmur, pabbar og mömmur mættu með börnunum og voru allir í sínu fínasta pússi. Hljómsveitin Saga Klass hélt uppi fjörinu og jólasveinar komu í heimsókn. Almenn ánægja virtist vera með þetta fyrirkomulag sem væntanlega verður endurtekið að ári.

8. janúar 2003

REKSPÖLUR I og REKSPÖLUR II - laus pláss

- báðar námskeiðslínur í boði á vorönn 2003.
Fræðslusetrið Starfsmennt stendur fyrir átta Rekspalarnámskeiðum á vorönn 2003. Þar af verður eitt haldið á Egilsstöðum, eitt á Akureyri / Illugastöðum, eitt á Ísafirði, þrjú í Reykjavík og tvö í Reykjavík / Munaðarnesi.
Enn eru laus pláss á Rekspalarnámskeiðunum og eru félagsmenn hvattir til að skrá sig sem fyrst. Ennfremur skal sérstaklega vakin athygli á því að starfsmenn stofnana ríkis, borgar og sveitarfélaga, sem ekki eiga beina aðild að setrinu gegnum félög sín, geta sótt námskeiðin gegn greiðslu námskeiðsgjalds.
Allar upplýsingar er að finna á www.smennt.is eða í síma 525-8395. Ekki hika við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna.

8. janúar 2003

Lykilnámskeið fyrir félagsmenn á Landspítala - háskólasjúkrahúsi

Lykilnámskeið I og II verða áfram í boði á vorönn 2003 fyrir félagsmenn sem vinna á Landspítala - háskólasjúkrahúsi. Bæði lykilnámskeiðin eru 60 kennslustundir sem skiptast í almennan hluta og sérhæfðan hluta.  Almennur hluti Lykils I er 40 kst. og sérhæfði hlutinn 20 kst. Lykill II hefur hins vegar 20 kst. almennan og 40 kst. sérhæfðan hluta. Á vorönn verður boðið upp á Lykil I, almennan og sérhæfðan hluta, og Lykil II almennan hluta.

8. janúar 2003

FRAMRÁS - nám fyrir skrifstofufólk – laus pláss

Haustið 2002 bauð Fræðslusetrið Starfsmennt í fyrsta sinn upp á FRAMRÁS - nám fyrir skrifstofufólk . Námið hlaut mjög góðar viðtökur og umsóknir voru langtum fleiri en hægt var að sinna. Því er það gleðiefni að Starfsmennt hefur ákveðið að bjóða áfram upp á þetta nám.
Skráning er hafin, en þó eru enn einhver laus pláss  á Framrásarnámskeiðunum og eru félagsmenn hvattir til að skrá sig sem fyrst. Ennfremur skal vakin sérstök athygli á að starfsmenn stofnana ríkis, borgar og sveitarfélaga, sem ekki eiga beina aðild að setrinu gegnum félög sín, geta sótt námskeiðin gegn greiðslu námskeiðsgjalds.
Allar upplýsingar er að finna á www.smennt.is eða í síma 525-8395. Ekki hika við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna.


Slóðin þín:

Fréttir