Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

29. desember 2003

Næsti trúnaðarmannaráðsfundur SFR 14. janúar

Næsti trúnaðarmannaráðsfundur SFR er fyrirhugaður þann 14. janúar næstkomandi. Nánari dagskrá verður kynnt þegar nær dregur fundi en við hvetjum alla trúnaðarmenn til að mæta á fundinn sem haldinn verður að Grettisgötu 89 kl. 13:00.  

23. desember 2003

Gleðileg jól

Óskum félagsfólki okkar öllu nær og fjær gleðilegra jóla.
Skrifstofa félagsins verður næst opin mánudaginn 29. desember.

15. desember 2003

Jólaball SFR og St. Rv - miðasala í dag

SFR- stéttarfélag í almannaþjónustu og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar halda sameiginlegt jólaball sunnudaginn 28.desember í Súlnasal Hótel Sögu. Hljómsveitin Saga Klass kemur til með að sjá um fjörið auk þess sem jólasveinar kíkja í heimsókn. Miðasala verður á skrifstofu félagsins að Grettisgötu 89, 3. hæð miðvikudaginn og fimmtudaginn 17. og 18. desember. Miðaverð er 400 kr. Góða skemmtun og gleðileg jól.

11. desember 2003

Morgunverðarfundur með ungum félagsmönnum

Á morgun, föstudaginn 12. desember verður haldinn morgunverðarfundur sem ætlaður er ungum félagsmönnum SFR. Hugmyndin að fundinum byggir á því að fá unga félagsmenn til að leggja mat á störf nefndar sem hefur staðið að undirbúningi þings sem halda laugardaginn 17. janúar 2004. Morgunverðarfundurinn mun saman standa af 15-20 ungliðum sem koma til að viðra hugmyndir sínar um fyrirhugað þing og málefni sem ræða á á því.

11. desember 2003

Síðasti trúnaðarmannaráðsfundur ársins gekk vel

Á þriðjudaginn síðastliðinn, þann 9. desember var haldinn síðasti trúnaðarmannaráðsfundur ársins og var hann með jólalegu ívafi í bland við fræðslu um innra starfs SFR, réttindamál og spaugslegar hliðar af þjóðfélagsmálum en hluti af Spaugstofu helgarinnar var spilaður til að vekja athygli fundarins á meðferð grínara á háalvarlegum málefnum líðandi stundar. Fundurinn var hinn líflegasti enda gáfu mörg erindin færi á því að fólk spyrði áhugaverðra spurninga. 

1. desember 2003

Félagstíðindi með jólalegu ívafi

 
Á allra næstu dögum munu félagsmenn fá Félagstíðindi send heim en þetta er síðasta útgáfa ársins á blaðinu og því einkennist það af jólastemningu svo um munar. Blaðið hefur að geyma líflega umfjöllun um jólin þar sem hugvekja, matar-, bóka- og tónlistargagnrýni bera hæst auk þes sem BSRB þinginu eru gerð nokkur skil. Samfara öllu þessu er síðan sagt frá því sem bert hæst í  starsfemi SFR og er meðal annars sagt frá útgáfu á nýjum þjónustu- og rétindabæklingi SFR, samanburðarvinnu á starfsemi SFR og VR sem og fyrirhuguðu þingi ungliða sem blása á til í janúar á næsta ári. Um leið og SFR óskar félagsmönnum sínum gleði og friðar yfir hátíðarnar þá vona starfsmenn þess að Félagstíðindin verði félagsmönnum góð og skemmtileg lesning rétt fyrir og jafnvel um jólahátíðina. 

1. desember 2003

Trúnaðarmannafundur þriðjudaginn 9. desember næstkomandi

Síðasti trúnaðarmannafundur ársins verður haldinn að Grettisgötu 89, 4. hæð þriðjudaginn 9. desember næstkomandi kl. 13:00. Dagskráin verður með jólalegu ívafi enda koma tveir höfundar jólabókavertíðarinnar og segja frá bókum sínum en þeir eru Gylfi Gröndal og Hlín Agnarsdóttir. Gylfi gaf nýverið út bókina Fólk í fjötrum: baráttusaga íslenskrar alþýðu og Hlín Agnarsdóttir gaf nýverið út bókina  Að láta lífið rætast.  Dagskráin verður blanda af umfjöllun um alvarlegri samfélagsleg málefni, fregnum úr starfsemi SFR sem og jólastemningu. Á allra næstu dögum munu trúnaðarmenn fá sent heim til sín fundarboð auk fundargerðar af síðasta trúnaðarmannaráðsfundi sem var með líflegra móti. Þar munu meðal annars koma fram helstu niðurstöður verkefnavinnunnar sem trúnaðarmenn unnu á fundinum. Látum okkur ekki vanta á fundinn þriðjudaginn 9. desember.  

1. desember 2003

Jólaball SFR og St.Rv sunnudaginn 28.desember í Súlnasal

SFR- stéttarfélag í almannaþjónustu og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar halda sameiginlegt jólaball sunnudaginn 28.desember í Súlnasal Hótel Sögu. Hljómsveitin Saga Klass kemur til með að sjá um fjörið auk þess sem jólasveinar kíkja í heimsókn. Miðasala verður á skrifstofu félagsins að Grettisgötu 89, 3. hæð miðvikudaginn og fimmtudaginn 17. og 18. desember. Miðaverð er 400 kr. Góða skemmtun og gleðileg jól.

18. nóvember 2003

Útskrift trúnaðarmanna af fyrsta trúnaðarmannanámskeiði haustsins

Á fimmtudaginn síðasta, þann 13. nóvember voru tæplega 20 félagsmenn SFR útskrifaðir af trúnaðarmannnámskeiðinu Samstíga til framtíðar I. Námskeiðið stendur yfir í þrjá daga og dreifðust námskeiðsdagarnir yfir rúmlega tveggja vikna tímabil þar sem gert er ráð fyrir að unnið sé verkefni á milli námskeiðsdaga. Hópurinn sem útskrifaðist saman varð afar samstilltur og óskaði eftir því að fá að sitja saman framhaldsnámskeiðið Samstíga til framtíðar II sem hefst eftir áramót. Reynt verður að koma til móts við þær óskir.

7. nóvember 2003

Laus sæti á trúnaðarmannanámskeið

Eins og flestum félagsmönnum ætti að vera orðið kunnugt þá er sameiginleg trúnaðarmannafræðsla á vegum SFR og St.Rv hafin. Um er að ræða námskeiðið Samstíga til framtíðar I og standa til boða þrjár mismunandi dagsetningar til að sem flestir nýir trúnaðarmenn sjái sér fært að mæta. Nú er að hefjast annað námskeiðið eftir helgina og stendur það yfir dagana 11., 12. og 27. nóvember og eru örfá sæti  laus fyrir áhugasama. Þriðja tímasetning námskeiðsins er í lok nóvember og stendur það yfir dagana 25., 26. nóvember og 11. desember og eru laus sæti á það námskeið. Þeir sem vilja skrá sig geta haft samband við skrifstofu SFR að Grettisgötu 89 með því að hringja í síma 525-8340 eða með því að senda beiðni þess efnis á netfangið sfr@bsrb.is
Góða skemmtun 

29. október 2003

Ný afstaðið BSRB þing gekk vel

Dagana 22. til 24. október síðastliðina stóð yfir 40. þing BSRB en það er haldið annað hvert ár. Þingið var haldið í Rúgbrauðsgerðinni að vanda og sóttu það á þriðja hundrað félagsmanna aðildarfélaga  BSRB. Ýmiss mál voru í brennidepli og má þar helst nefna skattamál, jafnréttismál, orlofsmál og húsnæðismál. Á 6. tug félagsmanna SFR sat þingið og tóku þátt í stefnumótun BSRB og málefnalegum umræðum um ýmiss samfélagsleg mein og ómein.

10. október 2003

Gestir morgunverðarfunda sameinast

Gestum morgunverðarfunda SFR var boðið til fundar í sunnusal Hótel Sögu nú í lok september. Tilgangur samkomunnar var meðal annars sá að þakka félagsmönnum fyrir þátttökuna í verkefninu Rágjafanefnd SFR en það verkefni byggði á komu félagsmanna hingað í húsakynni félagsins til að miðla af sjónarmiðum sínum og skoðunum til forsvarsmanna félagsins. Vel var mætt og komu um 80 manns saman þennan dag á Sögu.

9. október 2003

SFR tekur þátt í alþjóðlega geðheilbrigðisdeginum á morgun

Á morgun, fimmtudaginn 10. 10 er haldinn hátíðilegur alþjþóðlegi geðheilbrigðisdagurinn og í því tilefni verður haldið veglegt þing í Iðnó þar sem málefnum er tengjast geðheilsu og geðheilbrigði er gefinn byr undir báða vængi. Þingið er haldið á vegum Geðræktar og er SFR styrktaraðili að þinginu.

23. september 2003

Þingi ungra félagsmanna SFR frestað

Fyrirhuguðu þingi ungra SFR félaga, sem halda átti laugardaginn 18. október næstkomandi hefur verið frestað um nokkurn tíma. Ástæðan er meðal annars sú að framundan er áætlað að halda BSRB þing dagana 22.-24. október og fannst nefndarmönnum, er stóðu að skipulagi ungliðaþingsins hugsanlegt að það væri of þétt að hafa tvö þing með svo stuttu millibili. Vert er að taka það fram að ekki er búið að aflýsa þinginu heldur er einungis um frestun að ræða, hugsanlega fram í janúar. Vonin er sú að þessi breyting komi ekki til með að raska miklu fyrir þau ykkar sem hafið verið búin að ákveða að taka þátt í þinginu.

18. september 2003

Fyrsti trúnaðarmannaráðsfundur haustsins

Trúnaðarmenn SFR komu saman á fyrsta trúnaðarmannaráðsfundi haustsins þann 9. september síðastliðinn. Dagskrá fundarins byggði fyrst og fremst á því að kynna verkefnastöðu félagsins og það sem starsfmenn skrifstofu hafa verið að vinna að á sumarmánuðum.

11. september 2003

Kosingar trúnaðarmanna

Framundan eru kosningar trúnðaramanna meðal félagsmanna SFR og mikilvægt er að allir núverandi trúnaðarmenn sjái til þess að framkvæmd þeirra eigi sér stað á grundvelli tilheyrandi gagna sem þeim hafa verið send. Kosningum þarf að vera lokið fyrir 7. október. Við minnum á þá nýjung að nú er hægt að skila kjörgögnum inn á rafrænu formi með því að fara inn á heimasíðu félagsins á www.sfr.is

11. september 2003

Kosið um fulltrúa á þing BSRB

Tillaga undibúningsnefndar um fulltrúa á þing BSRB, sem haldið verður dagana 22. -24. október næstkomandi, var samþykkt á trúnaðarmannaráðsfundi þann 9. september síðastliðinn.  

12. ágúst 2003

Endurskoðun á trúnaðarmannafræðslu SFR

SFR – stéttarfélag í almannaþjónustu hefur, í samvinnu við Starfsmannafélag Reykjavíkur unnið að því síðustu mánuði að taka trúnaðarmannafræðslu félaganna til heildarendurskoðunar. Ástæða endurskoðunarinnar er meðal annars sú að gera trúnaðarmenn að enn öflugri talsmanni félagsmanna inn á vinnustöðum.

27. júní 2003

Orlofshús á Arnarstapa

SFR hefur keypt nýtt orlofshús á Arnarstapa á Snæfellsnesi. Eftir töluverða íhugun með tilliti til hönnunar og útlit hússins, umhverfisins og fjárhagsstöðu orlofssjóðs varð niðurstaðan sú að slá til og kaupa húsið til útleigu fyrir félagsmenn enda um vinsælan dvalarstað að ræða.

25. júní 2003

Vika símenntunar

Vika símenntunar verður haldin í fjórða sinn dagana 7.-13. september. Mennt - samstarfsvettvangur atvinnulífs og skóla sér um skipulagningu og framkvæmd vikunnar í samvinnu við símenntunarstöðvar um allt land. Þema vikunnar er Fjarnám og aðrar óhefðbundnar leiðir til náms. Einnig verður lögð áhersla á almenna hvatningu og kynningu á mikilvægi símenntunar fyrir almenning.
SFR hefur látið birta upplýsingar um fræðslumál félagsins á heimasíðu viku símenntunar og hægt er að nálgast hér ásamt efni frá öðrum félögum, stofnunum og fyrirtækjum sem taka þátt í viku símenntunar.

23. júní 2003

Félagstíðindi tileinkuð ungum SFR félögum

6. tölublað Félagstíðinda er komið út á netinu. Að þessu sinni er blaðið tileinkað ungum félagsmönnum innan SFR þar sem fjallað er um ráðstefnu ungra sem haldin var í Iðnó 15. maí síðastliðinn. Þar er einnig að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um námskeið á vegum Starfsmenntar meðal annars um Framrás, Rekspöl og starfsnám stuðningsfulltrúa. Blaðið verður sent út til félagsmanna í vikulok.  

16. júní 2003

Félagsliðabraut með starfi

Stuðningsfulltrúar geta fengið mat á námi og starfsreynslu. Stuðningsfulltrúar sem vinna með fötluðum eða gæslumenn/starfsmenn sem vinna hjá Landsspítala háskólasjúkrahúsi og eru félagar í SFR eiga nú möguleika á einstöku tækifæri til að afla sér fagmenntunar sem félagsliðar.

20. maí 2003

Vorferð SFR

Menningar-og skemmtinefnd SFR stóð fyrir vorferð félagsmanna sl. laugardag. Lagt var af stað, frá Grettisgötu 89, með rútu á Þingvöll og ekinn svokallaður pípuvegur um Nesjavelli. Þar var stoppað og ferðalangar nutu útsýnisins. Á Þingvöllum tók landvörður á móti hópnum og sýndi okkur nýju fræðslumiðstöðina. Þá var endað á því að grilla í sumarbústaðarlandi SFR í Vaðnesi.

19. maí 2003

Rætt um stöðu ungs fólks á vinnumarkaði

Staða ungs fólks á vinnumarkaði var rædd á ráðstefnu SFR sem haldin var í Iðnó 15. maí sl. og troðfylltu ungir SFR-félagar salinn. Tilgangur ráðstefnunnar var að hlusta á raddir ungs fólks, hverjar þarfir þeirra eru og vekja það til umhugsunar um rétt sinn. Erindi voru flutt um það hvernig hinum mismunandi kynslóðum gengur að vinna saman á vinnumarkaðnum, hvort stéttabarátta höfði til ungs fólks, hvort ungt fólk sé sumt hvert hneppt í fátæktargildru ásamt umfjöllun um réttindi og kjaramál. Þá flutti Björk Jakobsdóttir leikþátt úr leikritinu Sellófan sem fjallar um lífsgæðakapphlaupið. Þá var einnig hugmyndatorg á ráðstefnunni þar sem ráðstefnugestir skiptu sér í hópa og komu fram margar góðar hugmyndir í þeirri vinnu. 

12. maí 2003

Úthlutun orlofshúsa sumarið 2003

Úthlutun orlofshúsanna fyrir sumarið 2003 er lokið og þessa dagana eru þeir sem fengu úthlutað að ganga frá samningi, en síðasti dagur til þess er á morgun, 13. maí. Flestar umsóknirnar voru fyrir tímabilið frá lokum júní og fram að miðjum ágúst, þannig að því miður voru margir sem ekki komust að.  Þeir eru hins vegar skráðir á biðlista þar sem alltaf er eitthvað um að fólk geti ekki nýtt sér úthlutunina þegar til kemur og þá er jöfnum höndum haft samband við þann sem efstur er á biðlistanum.

12. maí 2003

Fjölskylduferð hjá SFR 17. maí

Menningar- og skemmtinefnd SFR stendur fyrir vorferð fyrir félagsmenn laugardaginn 17. maí nk. Farið verður að Geithálsi og ekin sú leið að Nesjavöllum og þaðan á Þingvöll þar sem þjóðgarðsverðir munu taka á móti okkur með leiðsögn um svæðið. Þá verður farið að orlofshúsasvæði SFR í Vaðnesi, grillað og farið í leiki. Brottför frá Grettisgötu 89 kl. 10. Klæðnaður eftir veðri. Skráning í síma 525-8340 fyrir 14. maí eða á sfr@bsrb.is.

8. maí 2003

Aðalfundur Lífeyrisþegadeildar SFR sendir frá sér ályktun

Þann 26. apríl sl. hélt Lífeyrisþegadeild SFR aðalfund, en á honum var eftirfarandi ályktun samþykkt. Aðalfundur Lífeyrisþegadeildar SFR, haldinn 26.apríl 2003 gerir kröfu um að:

  • Almannatrygginarbætur örorku, elli-og lífeyrisþega verði eftirleiðis hækkaðar og látnar fylgja að fullu launaþróun í landinu.
  • Grunnlífeyrir almannatryggina verði nú þegar hækkaður í sama hlutfall af dagvinnulaunum verkamana og var árið 1991.
  • Persónuafsláttur og frítekjumörk almannatrygginga verði þegar færð til samræmis við almenna launaþróun.
  • Þegar sé leiðréttur mismunur sá sem er á skattlagningu 2/3 hluta lífeyrissjóðsgreiðslna og almennra fjármagnstekna.
  • Áhersla verði lögð á, að jaðarskattar séu óraunhæfir og þess krafist að þeir verði þegar teknir til endurskoðunar og breytinga.

5. maí 2003

Sumarfrí, séreignasparnaður og leikhús í 5. tbl. Félagstíðinda

Fróðleiksmolar um sumarfrí, umfjöllun um séreingasparnað, sérkjör í Þjóleikhúsið og svör frá leiðtogum stjórnmálaflokkanna er meðal efnis í 5. tbl. Félagstíðinda SFR sem kom út í lok apríl.

5. maí 2003

Virðing og velferð - 1. maí

Yfirskrift baráttudags launafólks að þessu sinni var virðing og velferð. Mjög góð þátttaka var í göngunni sem fór frá Skólavörðuholti og útifundinum á Ingólfstorgi. Í 1. maí ávarpi stéttarfélaganna í Reykjavík (BSRB, BHM, KÍ og INSÍ) var m.a. komið inn á atvinnuleysi og atvinnustefnu, velferðarmál, launamisréttið, velferðarkefið og skattana, alþjóðamál, stríðstíma og framtíðarsýn verkalýðshreyfingarinnar. Hér má nálgast 1. maí ávarpið.

30. apríl 2003

Fundur trúnaðarmanna í tilefni af 1. maí

Um 120 trúnaðarmenn mættu á fund sem SFR og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar héldu sameiginlega fyrir trúnaðarmenn á Grand Hótel í gær í tilefni af baráttudegi launafólks 1. maí. Á fundinum flutti Pétur Gunnarsson erindi sem hann kallaði Lífið sem hobbí (eða íslenska leiðin). Þá fjallaði Óskar Dýrmundur Ólafsson, forstöðumaður félagsmiðstöðvar, um af hverju við höldum 1. maí hátíðlegan. Ögmundur Jónasson ávarpaði fundarmenn og hvatti þá til að virkja tilfinningar sínar og réttlætiskennd, því ekkert fær grandað þeim sem hefur baráttuviljann í brjósti. Þá sendi fundurinn frá sér ályktun þar sem krafist er virðingar fyrir vilja fólksins í landinu.... 

28. apríl 2003

SFR - félagar! Stöndum saman og tökum þátt í baráttudegi launafólks 1. maí!

Í Reykjavík verður safnast saman við Hallgrímskirkju kl. 13:30 og lagt af stað á Ingólfstorg kl. 14, þar sem haldinn verður útifundur. Á útifundinum munu Eiríkur Jónsson, formaður KÍ, og Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, flytja ræður og Nína Kristjánsdóttir, formaður IÍ, flytja ávarp. Þá munu Borgardætur skemmta og Anna Kristín Arngrímsdóttir les ljóð.
Á Akureyri verður safnast saman kl. 13:30 fyrir framan Alþýðuhúsið að Skipugötu og lagt af stað í Borgarbíó kl. 14, þar sem haldinn verður fundur. Aðalræðumaður er Halldór Björnsson formaður Starfsgreinasambandsins.

11. apríl 2003

Einelti á vinnustöðum

Einelti er alvarlegt vandamál á sumum vinnustöðum. Ekki hefur verið kannað hér á landi hvað það er algengt en samkvæmt tölum frá nágrannalöndum má ætla að um 3-10% starfsmanna verði fyrir einelti í vinnu. Vinnuhópur sem skipaður var af trúnaðarmannaráði SFR hefur undanfarið unnið að því að skoða með hvaða hætti félagið geti aðstoðað félagsmenn sem lenda í einelti. Tillögur hópsins verða lagðar fyrir stjórn SFR nú í apríl og verður nánar fjallað um þær síðar í Félagstíðindum og einnig hér á vefsíðunni.

11. apríl 2003

Ráðstefna fyrir ungt fólk í SFR

Undanfarið hefur vinnuhópur unnið að undirbúningi ráðstefnu fyrir ungt fólk í SFR. Ráðstefnan verður þann 15. maí nk. í Iðnó. Á ráðstefnunni verður fjallað um stöðu ungs fólks á vinnumarkaði. Á ráðstefnunni mun Björk Jakobsdóttir leikkona flytja leikþátt úr hinu vinsæla leikriti sínu Sellófan þar sem hún fjallar um lífsgæðakapphlaupið sem unga fólkið stendur frammi fyrir. Þá mun Guðmundur Steingrímsson, tónlistarmaður og pistlahöfundur, fjalla um það hvort stéttabarátta höfði til ungs fólks, Sr. Bjarni Karlsson prestur kemur inn á það að ungt fólk er sumt hvert hneppt í fátæktargildru og sumir hafa gripið til örþrifaráða eins og t.d. vændis. Einnig mun Ingrid Kuhlman, þjálfari og ráðgjafi, fjalla um það hvernig hinum mismunandi kynslóðum gengur að vinna saman á vinnumarkaðnum. Þá munu starfsmenn SFR koma inn á starfsemi SFR, réttindi og kjaramál. Ráðstefnustjóri verður Vanda Sigurgeirsdóttir, kennari og knattspyrnuþjálfari.

10. apríl 2003

Friðarsamverur í Fríkirkjunni í Reykjavík

Föstudagskvöldin 11. apríl og 18. apríl kl. 20:30 verða haldnar friðarsamverur í Fríkirkjunni í
Reykjavík. Það eru BSRB og ASÍ sem standa að friðarsamverunni ásamt Fríkirkjunni í Reykjavík. Þjóðþekktir söngvarar munu flytja vandað tónlistarefni tengt friði og flutt verða ávörp og erindi í bundnu og töluðu máli. Fram koma m.a. Sigrún Hjálmtýsdóttir - Diddú, Jóhann Friðgeir Valdimarsson, Jónas Þór, Matthías Nardeau, 9 manna kór, Njörður P. Njarðvík, Guðrún Ásmundsdóttir, Vilborg Dagbjartsdóttir, Grétar Þorsteinsson og Ögmundur Jónasson. Tónlistarflutningur hefst kl. 20.

7. apríl 2003

Náum settu marki

SFR og stefnumiðað árangursmat
Stjórn SFR er að innleiða mæliaðferð sem á íslensku hefur ýmist verið kölluð samhæft árangursmat eða stefnumiðað árangursmat („Balanced scorecard“). Einkennandi fyrir þessa aðferð er sú viðleitni að tengja árangursmælikvarða við markmið eða framtíðarstefnu félagsins og meta frammistöðu og árangur í ljósi þess hversu vel gengur að ná settu marki. Við það mat er ekki einungis horft til fjárhagslegs ávinnings heldur er einnig tekið tillit til væntinga félagsmanna og ánægju þeirra með félagið.

1. apríl 2003

Kosið í stjórnir sjóða á aðalfundi

Aðalfundur SFR var haldinn laugardaginn 29. mars sl. Á dagskrá fundarins voru venjuleg aðalfundarstörf. Í stjórn verkfallssjóðs voru kosin Elín Brimdís Einarsdóttir, Ína H. Jónasdóttir, Rannveig Sveinbjörnsdóttir og Trausti Hermannsson. Til vara voru kosin Gréta Húnfjörð Sigurðardóttir, Jörundur Jónsson, Pétur R. Elísson og Sigrún Geirsdóttir. Einnig var kosið í stjórn Styrktar- og sjúkrasjóðs þau Birna Karlsdóttir, Albert Sævar Guðmundsson, Guðrún Ívars og Magnea Bjarnadóttir, en Gréta Húnfjörð Sigurðardóttir var samkvæmt reglum sjóðsins tilnefnd í stjórn sjóðsins af stjórn SFR. Til vara var kosinn Karl Valdimarsson. Þá voru kjörin skoðunarmenn reikninga þau Eyjólfur Magnússon og Sigríður Jakobsdóttir og til vara Valborg Einarsdóttir og Ólafur Loftsson. Rögnvaldur Dofri Pétursson var kjörinn löggiltur endurskoðandi.

31. mars 2003

Ályktanir aðalfundar 2003

Aðalfundur SFR var haldinn laugardaginn 29. mars sl. og sendi hann frá sér eftirfarandi ályktun.
Á undanförnum árum hefur komið skýrt í ljós að íslenska þjóðin vill að samfélagsþjónustan sé á forræði ríkis og sveitarfélaga. Þannig verði best tryggt að hér þrífist það velferðarþjóðfélag sem byggir öllum þegnum sínum réttlátt samfélag. SFR, stéttarfélag fólks í almannaþjónustu, vill stuðla að velferðarþjóðfélagi sem byggir á samkennd og samábyrgð og velferðarþjóðfélagi sem jafnframt tryggir öllum þegnum jafnan aðgang að menntun, heilbrigðis- og félagsþjónustu án tillits til efnahags.

Enn sem fyrr lýsir SFR sig reiðubúið til að taka virkan þátt í endurskoðun á starfsháttum opinberra stofnana með það að leiðarljósi að verið sé að:

  • Auka gæði þjónustunnar til hagsbóta fyrir þann sem hennar nýtur.
  • Tryggja að opinbert fé sé ávallt nýtt á markvissan hátt.
  • Auka atvinnuöryggi og atvinnulýðræði.
  • Styrkja siðferðislega og lýðræðislega innviði samfélagsins.

Þá krefst SFR þess að:

  • Kjör hinna tekjulægstu, aldraðra og öryrkja verði stórlega bætt og fátækt útrýmt.
  • Öryggi hinna tekjulægstu hvað íbúðarhúsnæði varðar verði treyst.
  • Jafnréttislögum verði framfylgt.
  • Stoðir trúnaðarmannakerfisins verði styrktar.

31. mars 2003

Trúnaðarmaður SFR árið 2002

Guðmundur Ingi Waage var útnefndur trúnaðarmaður SFR árið 2002 á aðalfundi félagsins sem haldinn var 29. mars sl. En þetta er í fjórða skiptið sem trúnaðarmaður ársins er tilefndur. Guðmundur Ingi hefur verið félagsmaður SFR frá því 1975 sem starfsmaður Vegagerðarinnar. Hann hefur verið virkur trúnaðarmaður, setið í samninganefnd félagsins, verið eftirlitsmaður SFR vegna byggingar orlofshúsa í Húsafelli. Einnig hefur hann setið mörg þing BSRB sem fulltrúi SFR. Verið í forsvari fyrir samstarfsnefnd félagsins innan Vegagerðarinnar og þar með komið að vinnu við stofnansamninga. Í dag situr hann sem fulltrúi BSRB í ferðakostnaðarnefnd. Er hann vel að titlinum kominn.

27. mars 2003

SFR styður baráttu systursamtaka í Suður-Kóreu

Formaður og framkvæmdastjóri SFR sóttu ráðstefnu systursamtaka okkar KGEU („Korean Government Employees Unions) í Seoul höfuðborg Suður-Kóreu sem haldin var 20. mars til 24. mars sl. Ferðin var farin til að sína stuðning í verki við baráttu þeirra til ná þeim sjálfsagða rétti að semja um kaup og kjör. Þessi réttur þykir sjálfsagður í öllum iðnvæddum löndum sem eru innan OECD.

24. mars 2003

Áhrif umbóta í ríkisrekstri 1991-2000

Frá Félagi forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála

Morgunmálþing verður þann 28. mars kl. 8.00-10.30 á Grand Hótel um áhrif umbóta í ríkisrekstri 1991-2000.  Hvaða áhrif hafði hin alþjóðlega umbótahreyfing í ríkisrekstri á Íslandi? Hverjar voru þessar umbætur og hverju skiluðu þær? Hvað má læra af því við innleiðingu nýrra stjórnunarhátta í opinberum stofnunum?

Verð er 4.800 kr. og er morgunverður innifalinn. Skráning er hjá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands, 525-4444 eða endurmenntun@hi.is.

20. mars 2003

Útifundir gegn stríði í Reykjavík og á Akureyri kl. 17:30 í dag

Útifundir gegn stríði verða haldnir á Lækjartorgi í Reykjavík og á Ráðhústorginu á Akureyri klukkan 17:30 í dag. Að fundinum á Lækjartorgi standa Alþýðusamband Íslands, BSRB, BHM, Kennarasamband Íslands, Farmanna- og fiskimannasamband Íslands, Samband íslenskra bankamanna, Félag bókagerðarmanna og Átak gegn stríði. Öll verkalýðsfélög í landinu hvetja fólk til að mæta.

19. mars 2003

Liggur þér lífið á?

Á fundi trúnaðarmannaráðs þann 24. febrúar sl. hélt Jón Sigurðsson læknir afar áhrifaríkt erindi þar sem hann fjallaði um umferðaröryggismál, en hann lenti sjálfur í alvarlegu umferðarslysi fyrir fjórum árum, skaddaðist á mænu og er lamaður.

17. mars 2003

Nýr starfskraftur á skrifstofu SFR

Í mars hóf Linda Garðarsdóttir störf hjá SFR. Hún er tímbundið ráðin fram í ágúst  2003 vegna anna á skrifstofu SFR. Linda er fædd 1982 í Reykjavík og útskrifaðist frá Verzlunarskóla Íslands vorið 2002 og hélt þá á vit ævintýranna til Spánar. Hún er boðin velkomin til starfa.

17. mars 2003

Ársfundur Starfsmenntar

Ársfundur og starfsdagur stjórnar Fræðslusetursins Starfsmenntar var haldinn 11. mars sl. að Eldborg í Svartsengi. Á ársfundinum gerði Árni St. Jónsson, formaður Starfsmenntar, grein fyrir síðasta starfsári, ársreikningur var lagður fram og einnig fjárhagsáætlun fyrir árið 2003.  Að loknum ársfundarstörfum voru áherslur í starfi Starfsmenntar næsta árið reifaðar.

13. mars 2003

Samtök launafólks sameinast gegn stríði

Á blaðamannafundiBSRB, Alþýðusamband Íslands, BHM, Kennarasamband Íslands, Farmanna- og fiskimannasamband Íslands, Samband íslenskra bankamanna, Félag bókagerðarmanna og Átak gegn stríði sendu frá sér sameiginlega áskorun um að mótmæla hernaðaraðgerðum gegn Írak og til að hvetja íslensk stjórnvöld til að beita sér í þágu friðar á blaðamannafundi í morgunn. Félagsmenn eru hvattir til að ræða stríðsógnina á hádegi föstudaginn 14. mars.

6. mars 2003

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna

Opinn fundur verður haldinn laugardaginn 8. mars kl. 14 í sal Miðbæjarskólans, Fríkirkjuvegi 1, Reykjavík, í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna fyrir friði og jafnrétti. Yfirskrift fundarins að þessu sinni er LÝÐRÆÐI – VIRKNI – ÁBYRGÐ - HEYRIST RÖDD ÞÍN? Jóhanna K. Eyjólfsdóttir flytur erindið “Þú skiptir máli!” og Kristín Ástgeirsdóttir flytur erindið “Konur í hörðum heimi”. Þá leikur Bryndís Halla Gylfadóttir á selló og Ingibjörg Haraldsdóttir les úr verkum sínum.  Fundarstjóri er Elna Katrín Jónsdóttir.

6. mars 2003

Launajafnrétti - hvernig gengur?

Ráðstefna um launamisrétti verður haldin í Setrinu á Grand hóteli í Reykjavík á morgun, 7. mars, milli kl. 12 og 13. Það eru BSRB, ASÍ, BHM, KÍ, KRFÍ, SÍB, Jafnréttisnefnd Reyjavíkurborgar, Jafnréttisráð og Jafnréttisstofa og Rannsóknarstofa í kvennafræðum sem standa að ráðstefnunni. Erindi verða flutt um þann launamun sem er til staðar í dag, hvað þarf að varast þegar launakerfi eru dreifstýrð og jafnréttisáætlanir/jafnlaunastefnu. Fundarstjóri er Halldóra Friðjónsdóttir, formaður BHM. 

3. mars 2003

Fræðsla fyrir stjórnarmenn og starfsmenn aðildarfélaga BSRB

Fræðslunefnd BSRB hefur skipulagt forystufræðslu fyrir stjórnarmenn og starfsmenn aðildarfélaga BSRB. Námskeiðin hefjast í mars nk. Námskeiðin eru þannig uppbyggð að þrjár tveggja daga staðbundnar lotur verða í Munaðarnesi. Fyrsta lotan hefst nú í vor, lota tvö næsta haust og lota þrjú vorið 2004. Á milli staðbundnu lotanna verður fjarnám í gangi og stendur hver fjarnámslota í þrjá mánuði.

28. febrúar 2003

Er offita og heilsuvakning þversögn í þjóðarsálinni?

Út er komið 2. tbl. Félagstíðinda SFR. Á forsíðunni birtist dagskrá aðalfundar SFR sem í ár verður haldinn laugardaginn 29. mars kl. 13. Viðtal er við Önnu Sigríði Ólafsdóttur, starfsmann Manneldisráðs, þar sem fjallað er um hvort offita og heilsuvakning sé þversögn í þjóðarsálinni. Í viðtalinu er því haldið fram að skyndibitar þurfi ekki að vera slæmir og að hollusta bjóði upp á fjölbreytni. Einnig er viðtal við Bridget Mcevoy, starfsmann Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands en hún er félagsmaður SFR. Í viðtalinu kemur fram að 45% þeirra sem sótt hafa námskeið hjá þeim til að hætta að reykja eru enn reyklausir.

28. febrúar 2003

Atvinnuleysið er böl - en böl má bæta

SFR lýsir yfir miklum áhyggjum vegna þeirrar þróunar sem átt hefur sér stað á vinnumarkaðinum undanfarna mánuði. Atvinnuleysi hefur aukist mjög mikið og nú eru rúmlega 6200 manns án atvinnu skv. nýjustu tölum frá Vinnumálastofnun. Til staðfestingar á þessari geigvænlegu þróun er vísað í tölur frá Hagstofunni, en þær sýna að atvinnuleysið hefur aukist mikið á fyrstu 45 dögum ársins og bara í síðustu viku fjölgaði atvinnulausum á skrá Vinnumálastofnunar um 115. Önnur nærtæk viðmiðun, úr okkar ranni, er að í nóvember sl. voru 8 félagsmenn SFR skráðir atvinnulausir en núna um miðjan febrúar eru atvinnulausir félagsmenn orðnir 55 og hafa aldrei verið fleiri síðan þessi skráning hófst hjá félaginu.

26. febrúar 2003

Hugmyndir félagsmanna um SFR

Um 10% félagsmanna SFR hafa sótt morgunverðar- og hádegisverðarfundi SFR, en 21 slíkur fundur hefur verið haldinn frá því í september 2002. Þar af hafa 16 verið haldnir í Reykjavík, 1 á Selfossi, 1 á Akureyri, 1 í Borgarnesi, 1 á Ísafirði og 1 á Egilsstöðum. Þá voru 4 af fundunum í Reykjavík tileinkaðir ungum SFR félögum. Tilgangurinn með fundunum var að hlusta á hinn almenna félagsmann um hvaða  áherslur SFR ætti að hafa og hvort félagið væri á réttri leið í kjarabaráttu sinni. Á þessum fundum voru einnig veittar upplýsingar um þjónustu félagsins og hver væri réttur félagsmanna. Þetta er ein leið til að efla skoðanaskipti, fá fram gagnrýni og hugmyndir félagsmanna og þannig auka tengsl milli stjórnar SFR og félagsmanna, ásamt því að stuðla að meiri samheldni og virkni innan félagsins. Verkefnið hefur fengið nafnið Ráðgjafanefnd SFR.

25. febrúar 2003

Fangaverðir kalla eftir skýrri starfsmannastefnu

Fundur trrúnaðarmannaráðs SFR sem haldinn var 24. febrúar sl. samþykkti eftirfarandi ályktun: Mannvænt vinnustaðaumhverfi er öllum mikilvægt. Á undanförnum árum  hefur víða verið tekið til hendinni við að bæta starfsumhverfið og laga það sem misfarist hefur. Hrósa ber mörgum ríkisstofnunum sem hafa á undanförnum árum verið að bæta aðstöðu starfsmanna sinna. Einn hluti af því sem forráðamenn stofnana hafa tekið upp er skýr og skilmerkileg starfsmannastefna.
Því skýtur það skökku við að félagar okkar hjá Fangelsismálastofnun ríkisins hafa séð sig knúna til þess að kalla eftir skýrri starfsmannastefnu. Krafa þeirra er sett fram vegna langvarandi samstarfsörðugleika milli yfirstjórnar og starfsmanna.

19. febrúar 2003

Fangverðir langþreyttir á stöðu starfsmannamála

Fundur fangavarða haldinn á Eyrarbakka 13. febrúar sl. sendir frá sér eftirfarandi ályktun.
Fundarboðendur voru Starfsmannafélag ríkisstofnana og Fangavarðafélag Íslands. Fundurinn skorar á dómsmálaráðherra að taka starfsmannamál fangavarða til rækilegrar skoðunar þar sem fangaverðir eru orðnir langþreyttir á þeirri ringulreið sem ríkir í starfsmannamálum þeirra.
Krafa fundarins er að til verði nú þegar skýr og nútímaleg starfsmannastefna hjá Fangelsismálastofnun ríkisins.

17. febrúar 2003

Samstarf og samningar

Aðilar kjarasamninga ríkisins hafa ákveðið að efna til sameiginlegrar fræðslu fyrir trúnaðarmenn, samstarfsnefndir og forstöðumenn til þess að efla samstarf starfsmanna og stjórnenda, stuðla að faglegri gerð og virkri framkvæmd stofnanasamninga. Þetta er gert í samræmi við bókun 3 í kjarasamningi SFR og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs frá 25. mars 2001.

Um er að ræða eftirfarandi fjórar hálfsdags lotur sem saman mynda eina heild:

  • Lota 1 - stjórnun starfsmannamála, mannauðsstjórnun
  • Lota 2 - launastjórnun, samstarfsnefndir og stjórnun breytinga
  • Lota 3 - samstarf og samvinna
  • Lota 4 - hvatning og matskerfi

23. janúar 2003

Dagskrá fyrir „Gott að vita“ á vorönn 2003

Dagskrá fyrir námskeið og fyrirlestra, á vorönn 2003, á vegum SFR er tilbúin. Um er að ræða námskeið í Reykjavík, á Selfossi og Akureyri og eru þau sett upp í samvinnu við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, Starfsmannafélag Akureyrarbæjar og Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi.  Reynt er að bjóða upp á fjölbreytt námskeið, bæði stutt og löng, á mismunandi tíma svo flestir finni eitthvað við sitt hæfi. Meðal annar er boðið upp á námskeið um hvernig takast á við breytingar, vellíðan á vinnustað, áhugasviðsgreiningu - sjálfsmat, fjölgreindarkenningar og fleira. 

21. janúar 2003

Jafnréttislögum verði framfylgt

Á síðasta fundi trúnaðarmannaráðs SFR sem haldinn var 17. janúar sl. var eftirfarandi ályktun samþykkt.

Fundur trúnaðarmannaráðs SFR krefst þess að lögum nr. 96/2000 um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna verði framfylgt og vísar þar sérstaklega til greina nr. 13 og 14 í lögunum. Í 13. grein segir að fyrirtæki og stofnanir þar sem starfa fleiri en 25 starfsmenn skuli setja sér jafnréttisáætlun eða kveða sérstaklega á um jafnrétti kvenna og karla í starfsmannastefnu sinni. Grein 14 segir að konum og körlum er starfa hjá sama atvinnu-rekanda skuli greidd jöfn laun og að þau skuli njóta sömu kjara fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf.

21. janúar 2003

Smæð ríkisstofnana stendur starfsþróun fyrir þrifum

Fyrsta tölublað Félagstíðinda SFR á árinu 2003 er komið út. Í blaðinu er fjallað um starfsþróun og  í viðtali við Gunnar Björnsson, forstöðumann starfsmannaskrifstofu Fjármálaráðuneytisins, kemur fram að smæð ríkisstofnana stendur starfsþróun fyrir þrifum. Einnig er rætt við Gylfa Dalmann Aðalsteinsson, lektor við Háskóla Íslands, um starfsþróun, starfsmannaviðtöl og breyttar áherslur í starfsmannamálum. Þá er dagskrá „Gott að vita“ námskeiðanna fyrir vorönn 2003 birt í blaðinu, en þar er um að ræða fyrirlestra/námskeið opin félagsmönnum.

8. janúar 2003

Jólaball SFR og St.Rv.

Færri komust að en vildu á jólaball félagsins sunnudaginn 29. desember á Hótel Sögu.  Afar og ömmur, pabbar og mömmur mættu með börnunum og voru allir í sínu fínasta pússi. Hljómsveitin Saga Klass hélt uppi fjörinu og jólasveinar komu í heimsókn. Almenn ánægja virtist vera með þetta fyrirkomulag sem væntanlega verður endurtekið að ári.

8. janúar 2003

REKSPÖLUR I og REKSPÖLUR II - laus pláss

- báðar námskeiðslínur í boði á vorönn 2003.
Fræðslusetrið Starfsmennt stendur fyrir átta Rekspalarnámskeiðum á vorönn 2003. Þar af verður eitt haldið á Egilsstöðum, eitt á Akureyri / Illugastöðum, eitt á Ísafirði, þrjú í Reykjavík og tvö í Reykjavík / Munaðarnesi.
Enn eru laus pláss á Rekspalarnámskeiðunum og eru félagsmenn hvattir til að skrá sig sem fyrst. Ennfremur skal sérstaklega vakin athygli á því að starfsmenn stofnana ríkis, borgar og sveitarfélaga, sem ekki eiga beina aðild að setrinu gegnum félög sín, geta sótt námskeiðin gegn greiðslu námskeiðsgjalds.
Allar upplýsingar er að finna á www.smennt.is eða í síma 525-8395. Ekki hika við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna.

8. janúar 2003

Lykilnámskeið fyrir félagsmenn á Landspítala - háskólasjúkrahúsi

Lykilnámskeið I og II verða áfram í boði á vorönn 2003 fyrir félagsmenn sem vinna á Landspítala - háskólasjúkrahúsi. Bæði lykilnámskeiðin eru 60 kennslustundir sem skiptast í almennan hluta og sérhæfðan hluta.  Almennur hluti Lykils I er 40 kst. og sérhæfði hlutinn 20 kst. Lykill II hefur hins vegar 20 kst. almennan og 40 kst. sérhæfðan hluta. Á vorönn verður boðið upp á Lykil I, almennan og sérhæfðan hluta, og Lykil II almennan hluta.

8. janúar 2003

FRAMRÁS - nám fyrir skrifstofufólk – laus pláss

Haustið 2002 bauð Fræðslusetrið Starfsmennt í fyrsta sinn upp á FRAMRÁS - nám fyrir skrifstofufólk . Námið hlaut mjög góðar viðtökur og umsóknir voru langtum fleiri en hægt var að sinna. Því er það gleðiefni að Starfsmennt hefur ákveðið að bjóða áfram upp á þetta nám.
Skráning er hafin, en þó eru enn einhver laus pláss  á Framrásarnámskeiðunum og eru félagsmenn hvattir til að skrá sig sem fyrst. Ennfremur skal vakin sérstök athygli á að starfsmenn stofnana ríkis, borgar og sveitarfélaga, sem ekki eiga beina aðild að setrinu gegnum félög sín, geta sótt námskeiðin gegn greiðslu námskeiðsgjalds.
Allar upplýsingar er að finna á www.smennt.is eða í síma 525-8395. Ekki hika við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna.


Slóðin þín:

Fréttir