Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

9. desember 2002

Ályktun trúnaðarmannaráðs SFR um persónuvernd

Fundur trúnaðarmannaráðs SFR, haldinn þann 5. desember sl., tekur undir ályktun aðalfundar BSRB frá 15. nóvember sl. um að settar verði reglur sem tryggi persónuvernd starfsmanna á vinnustöðum. Á mörgum vinnustöðum hefur hvers kyns eftirlit með starfsmönnum færst í vöxt. Má í því sambandi m.a. nefna eftirlitsmyndavélar, skráningu á símtölum starfsmanna, ökusírita og ökulagssírita í vinnubílum og almenningsvögnum.

9. desember 2002

Nýjar úthlutunarreglur styrktar- og sjúkrasjóðs

Stjórn styrktar- og sjúkrasjóðs SFR samþykkti nýjar úthlutunarreglur á fundi þann 5. desember sl. og munu nýjar reglur gilda frá og með 1. janúar 2003.
Breytingar urðu á sjúkradagpeningum, sjúkraþjálfun, styrk til líkamsræktar auk þess sem framvegis verður greitt fyrir meðferð á Heilsustofnun NLFÍ sem og meðferð hjá sálfræðingi, fjölskylduráðgjafa eða félagsráðgjafa.

6. desember 2002

Nýtt merki SFR og breytt útlit heimasíðu

SFR hefur að undanförnu unnið að endur-skoðun á ímynd félagsins. Ábendingar hafa komið fram um að merki félagsins, sem verið hefur í notkun á undanförnum árum, sé ekki nógu skýrt, það sé „þungt“og erfitt að lesa út úr því. Stjórn SFR ákvað að taka í notkun nýtt merki fyrir félagið og hefur útlit heimasíðu SFR verið aðlagað að því.

5. desember 2002

Ráðgjafanefnd SFR

Á haustdögum 2002 ákvað SFR að fara af stað með morgunverðarfundi með félagsmönnum í samvinnu við fyrirtækið IMG - alþjóðlega stjórnunarfræðslu. Hugmyndin á bak við þessa fundi er að auka tengsl milli stjórnar SFR og félagsmanna, ásamt því að stuðla að meiri samheldni og virkni innan félagsins. Verkefnið hefur fengið nafnið Ráðgjafanefnd SFR.

Slóðin þín:

Fréttir