Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

9. desember 2002

Ályktun trúnaðarmannaráðs SFR um persónuvernd

Fundur trúnaðarmannaráðs SFR, haldinn þann 5. desember sl., tekur undir ályktun aðalfundar BSRB frá 15. nóvember sl. um að settar verði reglur sem tryggi persónuvernd starfsmanna á vinnustöðum. Á mörgum vinnustöðum hefur hvers kyns eftirlit með starfsmönnum færst í vöxt. Má í því sambandi m.a. nefna eftirlitsmyndavélar, skráningu á símtölum starfsmanna, ökusírita og ökulagssírita í vinnubílum og almenningsvögnum.

9. desember 2002

Nýjar úthlutunarreglur styrktar- og sjúkrasjóðs

Stjórn styrktar- og sjúkrasjóðs SFR samþykkti nýjar úthlutunarreglur á fundi þann 5. desember sl. og munu nýjar reglur gilda frá og með 1. janúar 2003.
Breytingar urðu á sjúkradagpeningum, sjúkraþjálfun, styrk til líkamsræktar auk þess sem framvegis verður greitt fyrir meðferð á Heilsustofnun NLFÍ sem og meðferð hjá sálfræðingi, fjölskylduráðgjafa eða félagsráðgjafa.

6. desember 2002

Nýtt merki SFR og breytt útlit heimasíðu

SFR hefur að undanförnu unnið að endur-skoðun á ímynd félagsins. Ábendingar hafa komið fram um að merki félagsins, sem verið hefur í notkun á undanförnum árum, sé ekki nógu skýrt, það sé „þungt“og erfitt að lesa út úr því. Stjórn SFR ákvað að taka í notkun nýtt merki fyrir félagið og hefur útlit heimasíðu SFR verið aðlagað að því.

5. desember 2002

Ráðgjafanefnd SFR

Á haustdögum 2002 ákvað SFR að fara af stað með morgunverðarfundi með félagsmönnum í samvinnu við fyrirtækið IMG - alþjóðlega stjórnunarfræðslu. Hugmyndin á bak við þessa fundi er að auka tengsl milli stjórnar SFR og félagsmanna, ásamt því að stuðla að meiri samheldni og virkni innan félagsins. Verkefnið hefur fengið nafnið Ráðgjafanefnd SFR.

7. nóvember 2002

Brjóta þarf upp fákeppni á bankamarkaði

Á fundi trúnaðarmannaráðs sem haldinn var í gær var eftirfarandi ályktun samþykkt. Trúnaðarmannaráð SFR - stéttarfélags í almannaþjónustu telur að niðurstöður nýlegrar könnunar á þjónustugjöldum bankanna sýni svo ekki verði um villst að tilfinnanlegur skortur er á samkeppni milli bankanna. Ennfremur er ljóst að verðþróun þjónustugjalda lýtur að litlu eða engu leyti lögmálum markaðarins eða almennri verðþróun. Því er nauðsynlegt að mati trúnaðarmannaráðsins að gerðar verði ráðstafanir til þess að auka samkeppni milli bankanna og auka almennt aðhald að þeim.

1. nóvember 2002

Laus pláss á fyrirlestra og námskeið

Í nóvember eru laus pláss á námskeið um siðfræði og fyrirlestrana "Aðeins einn líkami" og "Heimilisbókhald". Áhugasamir geta skráð sig með því að senda tölvupóst á johanna@sfr.bsrb.is.

30. október 2002

Ný verðskrá fyrir dagpeninga og akstursgjald

Ferðakostnaðarnefnd hélt fund í gær þar sem ákveðin var ný verðskrá yfir dagpeninga og akstursgjald ríkisstarfsmanna. Nýju verðskránna má finna hér undir kaup og kjör

30. september 2002

Veist þú hvaða styrki SFR félagar fengu í síðasta mánuði?

Styrkir úr starfsmenntunarsjóði og styrktar- og sjúkrasjóði eru greiddir út mánaðarlega. Næsti fundur í starfsmenntunarsjóði er 16. október og stjórn styrktar- og sjúkrasjóðs fundar eftir 20. október.  Sem dæmi um styrki á síðasta úthlutnartímabili starfsmenntunarsjóðs þá fengu 13 styrki til tölvunáms, 34 fengu greidd skráningargjöld í Háskóla Íslands, 40 fengu skólagjöld í framhaldsskólum ...

27. september 2002

Konur á þingpalla við setningu Alþingis 1. október

SFR sendi öllum konum í félaginu bréf í ágúst þar sem vakin var athygli á verkefni nefndar um aukinn hlut kvenna í stjórnmálum sem gengur undir heitinu „Konur í læri - dagar í lífi stjórnmálakvenna“ og þær hvattar til að taka þátt. Einnig kom formaður nefndarinnar, Hildur Helga Gísladóttir, á fund trúnaðarmanna sem haldinn var 20. september sl. og sagði frá störfum nefndarinnar sem hefur starfað síðan í október 1998. Hún hvatti konur til að mæta á þingpalla við setningu Alþingis þann 1. október hvort sem þær hefðu skráð sig til þáttöku í verkefninu eður ei. Því fleiri konur sem mæta því meiri athygli vekur verkefnið.

6. september 2002

Vika símenntunar

Vika símenntunar verður haldin 8.-14. september. 
Yfirskriftin í ár er Símenntun í atvinnulífinu. Ýmsir viðburðir tengdir þema átaksins verða í gangi alla Vikuna, um allt land, auk þess sem Vika símenntunar er ætluð til að vekja athygli fólks á mikilvægi þess að afla sér þekkingar allt lífið.
Dagskrá og nánari upplýsingar má finna á www.mennt.net/simenntun/.

26. ágúst 2002

FRAMRÁS - nám fyrir skrifstofufólk

Haustið 2002 mun Fræðslusetrið Starfsmennt bjóða upp á FRAMRÁS - nám fyrir skrifstofufólk. Námið er ætlað þeim starfsmönnum ríkisins sem eru í starfsmannafélögum sem aðild eiga að Starfsmennt, þar á meðal SFR-félögum. Námið hefst þann 30. september og fer kennsla fram hjá Endurmenntun Háskóla Íslands, sem sér um rekstur námsins samkvæmt samningi við Starfsmennt. Námið skiptist upp í þrjár námskeiðslínur og er hægt er að sækja um einstakar línur eða allar. Kennt verður tvo morgna í viku og fer kennsla fram í húsnæði Endurmenntunar að Dunhaga 7 Reykjavík (sjá nánar um tímasetningar á www.smennt.is).

7. ágúst 2002

Vika símenntunar

Vika símenntunar verður haldin dagana 8.-14. september nk. Vikan, sem er á vegum menntamálaráðuneytisins, er nú haldin í þriðja sinn hér á landi og sér Mennt – samstarfsvettvangur atvinnulífs og skóla um skipulagningu og framkvæmd hennar í  samvinnu við símenntunarmiðstöðvar um land allt.

7. ágúst 2002

Tölvufræðsla BSRB

Námskrá tölvufræðslu BSRB fyrir höfuðborgarsvæðið og Selfoss haustið 2002 er nú tilbúin. Lýsingu á námskeiðunum ásamt dagskrá og tímasetningum er hægt að nálgast hér. Námskeið á annars staðar á landsbyggðinni verða kynnt síðar.

Tölvufræðsla BSRB er í samvinnu við Nýja tölvu- og viðskiptaskólann í Hafnarfirði, Kópavogi og á Selfossi. Einnig hefur Tölvufræðsla BSRB samvinnu við ýmsa tölvuskóla á landsbyggðinni. Samningurinn sem gerður var við þessa aðila gerir ráð fyrir að á skólaárinu 2002 - 2003 verði haldin fjölmörg tölvunámskeið fyrir félagsmenn BSRB.

20. júlí 2002

Sumarferð Lífeyrisþegadeildar til Reykhóla

Árleg sumarferð Lífeyrisþegadeildar SFR var farin 26. júní sl. í blíðskaparveðri. Að þessu sinni var farið til Reykhóla og lá leiðin um Klofning, Skarðsströnd og Fellsströnd. Á leiðinni var stoppað og sögufrægir staðir skoðaðir.

 

7. júní 2002

Nýjar auglýsingar um akstursgjald og dagpeninga

Ferðakostnaðarnefnd hefur sent frá sér auglýsingu nr. 1/2002 um akstursgjald ríkisstarfsmanna, auglýsingu nr. 2/2002 um dagpeninga ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands og auglýsingu nr. 3/2002 um dagpeninga ríkisstarfsmanna á ferðalögum erlendis. Sjá nánar.

7. júní 2002

Nýtt tölublað Félagstíðinda SFR

6. tbl. Félagstíðinda SFR er farið í prentun og verður borið út til félagsmanna í næstu viku. Í blaðinu er m.a. grein um eftirlit vinnuveitanda með tölvupósts- og netnotkun starfsmanna sem er skrifuð af Ernu Guðmundsdóttur, lögfræðingi BSRB. Þá er auglýsing um grunnnám stuðningsfulltrúa sem hefst næstkomandi haust og er umsóknarfrestur til 1. ágúst. Smellið hér til að skoða blaðið.

28. maí 2002

Nýtt starfsnám fyrir hjúkrunar- og móttökuritara

Undanfarna mánuði hefur starfsgreinaráð um heilbrigðis- og félagslega þjónustu, ásamt fulltrúum frá hjúkrunarriturum, unnið að gerð starfsnáms fyrir þessar stéttir. Þessa dagana er afraksturinn að koma í ljós í formi námsbrautar fyrir hjúkrunar- og móttökuritara er verður samtals 73 námseiningar.

24. apríl 2002

SFR fordæmir hörku Ísraelsmanna gegn palestínsku þjóðinni

Trúnaðarmannaráðsfundur SFR, haldinn 23. apríl 2002, lýsir alvarlegum áhyggjum sínum yfir ástandinu fyrir botni Miðjarðarhafs og fordæmir taumlausa hörku Ísraelsmanna í hernaðaraðgerðum þeirra gegn palestínsku þjóðinni, áratuga kúgun og niðurlægingu hennar og lýsir yfir fullum stuðningi við réttmætar kröfur palestínumanna til að stofna sitt eigið ríki.

23. mars 2002

Aðalfundur SFR

Aðalfundur 23. mars 2002Aðalfundur SFR var haldinn kl. 13 í dag að Grettisgötu 89. Á dagskrá fundarins voru venjubundin aðalfundarstörf. Úrslit í stjórnakjöri voru kynnt, en að þessu sinni var listi uppstillinganefndar samþykktur án mótframboðs. Í stjórn SFR sitja nú Jens Andrésson formaður SFR, Ari Björn Thorarensen frá Fangelsismálastofnun, Gréta Húnfjörð Sigurðardóttir frá Landspítala – Háskólasjúkrahúsi, Guðjón Steinsson frá Fasteignamati ríkisins, Guðrún Ívars frá Háskóla Íslands, Ína H. Jónasdóttir frá Tryggingastofnun ríkisins, Kristrún B. Jónsdóttir frá Ríkisskattstjóra, Ólafur Hallgrímsson frá Listaháskóla Íslands, Svala Norðdahl frá Listdansskóla Íslands, Tryggvi Þorsteinsson frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Valdimar Leó Friðriksson frá Sambýlinu Trönuhólum.

22. mars 2002

Sumarúthlutun orlofshúsa

Orlofsblað SFR var sent félagsmönnum í lok mars. Í blaðinu er sagt frá þeim tilboðum sem félagsmönnum býðst þetta sumarið. Umsóknarfrestur að þessu sinni er til 15. apríl og er stefnt að því að úthlutun verði lokið 24. apríl.

22. febrúar 2002

Ályktun vegna umræðu um lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna

Á undanförnum vikum hefur orðið töluverð umræða um lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna og viðbótarlífeyrissparnað, sem stéttarfélög ríkisstarfsmanna sömdu um við fjármálaráðherra í síðustu kjarsamningum.  Sveitarfélögin, sem eru viðsemjendur bæjarstarfsmannafélaganna, höfnuðu hins vegar að semja um hið sama við sína starfsmenn. Ástæða þeirrar höfnunar var útskýrð  þannig að ...


Slóðin þín:

Fréttir