Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

20. desember 2000

Nýtt samkomulag um lífeyrissparnað

Í dag var skrifað undir samkomulag um viðbótarframlag til lífeyrissparnaðar. Samningurinn var gerður af BSRB, BHM og KÍ annars vegar og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs hins vegar. Um er að ræða valfrjálsan séreignasparnað sem kemur til framkvæmdar í tveimur þrepum:

  • Frá 1. janúar 2001 skal mótframlag vinnuveitenda vera 1% gegn 2% framlagi starfsmanns.
  • Frá 1. janúar 2002 skal mótframlag vinnuveitenda nema 2% gegn 2% framlagi starfsmanns.

Slóðin þín:

Fréttir