Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

20. desember 2000

Nýtt samkomulag um lífeyrissparnað

Í dag var skrifað undir samkomulag um viðbótarframlag til lífeyrissparnaðar. Samningurinn var gerður af BSRB, BHM og KÍ annars vegar og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs hins vegar. Um er að ræða valfrjálsan séreignasparnað sem kemur til framkvæmdar í tveimur þrepum:

  • Frá 1. janúar 2001 skal mótframlag vinnuveitenda vera 1% gegn 2% framlagi starfsmanns.
  • Frá 1. janúar 2002 skal mótframlag vinnuveitenda nema 2% gegn 2% framlagi starfsmanns.

25. október 2000

Nýtt samkomulag um réttindamál

Nýtt samkomulag um réttindamál var undirritað í gær. Samkomulagið fjallar um fæðingarorlof og veikinda-og slysarétt. Þeir sem vilja kynna sér samkomulagið geta nálgast það hér.

20. október 2000

Norræn starfsmannaskipti

Norræna ráðherranefndin hefur frá árinu 1979 veitt styrki til að gera ríkisstarfsmönnum kleift að stunda tímabundið nám eða störf á starfsvettvangi sínum hjá ríkisstofnunum á hinum Norðurlöndunum.

3. maí 2000

Ræða Jens Andréssonar, formanns SFR, á 1. maí

Ræða Jens Andréssonar, formanns SFR, á 1. maí

29. mars 2000

Viðhorfskönnun fyrir Starfsmannafélag ríkisstofnana

Könnunin fór fram í marsmánuði 2000 og var gerð símleiðis. Tilgangurinn var að félagið gæti bætt starfsemi sína og þjónað betur þörfum félagsmanna. Rætt var við 100 félagsmenn sem valdir voru af handahófi úr félagaskrá SFR. Fyrirtækið Lausnir sá um framkvæmd könnunarinnar.

25. mars 2000

Stjórnarkjör 2000

Stjórnarkjör fer fram í SFR á tveggja ára fresti. Að þessu sinni er sjálfkjörið til formanns. Til meðstjórnenda barst hins vegar eitt framboð fyrir utan þau sem trúnaðarmannaráð gerði tillögu um.


Slóðin þín:

Fréttir