Fréttir
24. ágúst 1999
SFR og norrænt samstarf
Norræn ráðstefna og aðalfundur NSO – Nordiske Statstjenestemænds Organisation (Samtök ríkisstarfsmanna á Norðurlöndunum) var haldin á Hótel Íslandi 18. – 21. ágúst sl. SFR hefur gegnt formennsku og framkvæmdastjórn í NSO frá því í ágúst í fyrra.
19. júní 1999
Afmælishátíð SFR í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
Í tilefni af 60 ára afmæli SFR bauð félagið félagsmönnum sínum og öðrum góðum gestum til fjölskylduhátíðar þann 19. júní síðastliðinn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal og var garðurinn opinn frá kl. 10 til 18.
15. maí 1999
Stjórn SFR lýsir undrun sinni á niðurstöðu Kjaradóms
Stjórn Starfsmannafélags ríkisstofnana lýsir undrun sinni á niðurstöðu Kjaradóms við ákvörðun á hækkun launa til þingmanna, ráðherra og æðstu embættismanna ríkisins. Þessar hækkanir eru ekki í neinu samræmi við það sem gerst hefur hjá almennu launafólki.
30. apríl 1999
Fyrsti fundur í styrktar- og sjúkrasjóði SFR
Stjórn styrktar- og sjúkrasjóðs hélt sinn fyrsta fund fimmtudaginn 29. apríl sl. þar sem hún skipti með sér verkum.
27. apríl 1999
Fundur trúnaðarmannaráðs
Fundur var haldinn í trúnaðarmannaráði 27. apríl sl. Á dagskránni var m.a. erindi um áhrif vinnutímatilskipunar ES á íslenskan vinnumarkað.
5. mars 1999
Hæstiréttur staðfestir dóm í héraði
Hæstiréttur staðfestir dóm um rétt starfsmanns Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra á Suðurlandi til skaðabóta.

