Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

3. febrúar 2012

Lokað eftir hádegi á mánudag vegna jarðarfarar

Skrifstofa SFR verður lokuð frá kl. 12 mánudaginn 6. febrúar vegna jarðarfarar Guðlaugar Sigurðardóttur, fyrrum starfsmanns SFR.

2. febrúar 2012

Fékkst þú eingreiðslu 1. feb.?

SFR vekur athygli á því að samkvæmt kjarasamningum SFR við Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga eiga félagsmenn SFR sem starfa hjá borginni eða sveitarfélögum að hafa fengið 25 þúsund kr. eingreiðslu nú 1. feb. "Starfsmenn sem eru við störf þann 1. febrúar 2012 fá greidda sérstaka eingreiðslu, kr. 25.000,- miðað við fullt starf. Starfsmenn í hlutastarfi fá greitt hlutfallslega miðað við starfshlutfall 1. febrúar 2012."

1. febrúar 2012

Tómstundafræðinemar í heimsókn

tomstudnafrædinemar1Nemar  við Tómstunda- og félagsmálabraut nutu fræðslu um stéttarfélög, uppbyggingu þeirra og hlutverk hjá Þórarni Eyfjörð framkvæmdastjóra í salarkynnum Félagamiðstöðvarinnar í morgun. Miklar og góðar umræður spunnust um hlutverk stéttarfélaga, velferðarkerfið og samtryggingu yfirleitt og voru nemarnir afar áhugasamir. Með þeim í för var kennari þeirra, Árni Guðmundsson lektor og fyrrverandi formaður Starfsmannafélags Hafnarfjarðar. 

1. febrúar 2012

Trúnaðarmenn á námskeiði

trunadarmannanamskeid-feb2-Í morgun hófst 3ja daga námskeið fyrir trúnaðarmenn, en námskeiðið er samstarfsverkefni SFR og St.Rv. Námskeiðið er ætlað nýjum trúnaðarmönnum og er góður grunnur fyrir starf trúnaðarmannsins. Á námskeiðinu verður farið yfir starfssemi stéttarfélaganna, kjarasamningana og lífeyrismál. Auk þess er lögð áhersla á leiðtogaþjálfun þar sem Þórkatla Aðalsteinsdóttir og Einar Gylfi Jónsson sálfræðingar leiðbeina og þjálfa fulltrúa. Næsta grunnnámskeið verður haldið 13., 29. og 30. mars 2012. Hægt er að skrá sig hér.

31. janúar 2012

Færeyska velferðarkerfið í hættu

Anna-johannssen-færeyjarFrændur okkar og frænkur í Færeyjum hafa staðið í ströngu undanfarnar vikur og mánuði og hafa mótmæli verkalýðsfélaga og almennings á götum úti í Þórshöfn m.a. verið í fréttum. Ástæðan er sú að í  október síðast liðnum tók þar við völdum hægri stjórn sem hefur m.a. lagt til breytingar á skatta- og lífeyrissjóðskerfinu. Anna Johannesen frá Starvsmannafélaginu í Þórshöfn var hér á ferð í síðast liðinni viku á fundi framkvæmdastjóra NSO og gaf sér tíma fyrir stutt spjall, en hún telur aðgerðir stjórnarinnar vera harða aðför gegn færeyska velferðarkerfinu. Síðustu daga hefur verið útlit fyrir langt og strangt verkfall Starvsmannafélagsins og fleiri félaga í Færeyjum, en í dag, 31. janúar bárust loks þær fréttir að Starvsmannafélagið muni skrifa undir samkomulag til eins árs. Ekki er enn ljóst hvað samningurinn felur í sér fyrir opinbera starfsmenn í Færeyjum.

31. janúar 2012

Ögmundur biðst afsökunar

ögmundur-Jonasson-netEins og kunnugt er fór Ögmundur Jónasson mikinn í ræðustól alþingis í síðast liðinni viku, þar sem hann sagðist m.a. hafa áhyggjur af því að stofnanaveldið, eins og hann orðaði það, hafi ánetjast Evrópusambandinu. Opinberir starfsmenn tóku orðum hans ekki vel, eins og eðlilegt er, og tjáðu bæði Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri og Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB auk fulltrúa frá BHM sig um málið. Í Fréttablaðinu í dag biður Ögmundur Jónasson hlutaðeigendur afsökunar á orðum sínum.

27. janúar 2012

Verðandi heilbrigðisritarar í heimsókn hjá SFR

heilbrigðisritara-a-vefVerðandi heilbrigðisritarar í námi í FA komu í heimsókn á skrifstofu SFR í dag og fengu þar fræðslu um stéttarfélög og vinnumarkaðinn. Nemarnir eru í áfanganum Vinnan og vinnumarkaðurinn og voru að því virtist bara nokkuð ánægðar með heimsóknina. Það var Guðrún Halldóra sérfræðingur á kjarasviði sem sá um fræðsluna, en með nemunum var kennari þeirra hún Kristrún Sigurðardóttir.

27. janúar 2012

Framkvæmdastjórar funda

framkvæmdastjorar-NSONorrænir framkvæmdastjórar aðildarfélaga NSO funduðu á Grettisgötunni á skrifstofu SFR í gær, og létu veðrið lítið hafa áhrif á ferðir sínar. Þar voru mættar þær Hanne Johannessen frá OAO (Offentligt Ansattes Organisationer) í Danmörku Karin Brunzell frá Fackförbundet ST í Svíþjóð, Ingunn Bråten frá YS Stat í Noregi og Anna Johannesen frá Starvsmannafelaginu Færeyjum. Meðal þess sem rætt var á fundinum var fyrirhuguð ráðstefna NSO sem haldin verður í Kaupmannahöfn í haust.

26. janúar 2012

Ólga meðal starfsmanna Vinnumálastofnunar

Á félagsfundi SFR stéttarfélags sem haldinn var í gær að frumkvæði starfsmanna Vinnumálastofnunar kom fram mikil óánægja meðal fundarmanna vegna fyrirhugaðs tilraunaverkefnis sem felur í sér að hluti starfsemi stofnunar muni færist yfir á skrifstofur stéttarfélaga. Starfsmenn hafa þungar áhyggjur af fyrirhugaðri framkvæmd og segja m.a. í ályktun sem fundurinn sendi frá sér með öllu óskiljanlegt hvernig hægt er að setja aukafjármuni upp á 300 milljónir í slíkt tilraunaverkefni í stað þess að efla starf stofnunarinnar og starfsfólk hennar.

25. janúar 2012

Opinberir starfsmenn að ánetjast ESB?

Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri BSRBÖgmundur Jónasson innanríkisráðherra sagðist á alþingi í gær hafa áhyggjur af því að stofnanaveldið, eins og hann orðaði það, hafi ánetjast Evrópusambandinu. Opinberir starfsmenn harma þessi ummæli, enda eru þau forkastanleg í ljósi stöðu Ögmundar. Á vef BSRB er haft eftir Helgu Jónsdóttur framkvæmdastjóra BSRB að bandalaginu þyki miður hvernig Ögmundur tali um opinbera starfsmenn úr ræðustóli Alþingis. "Að halda því fram að embættismenn hins opinbera séu að ánetjast ferðalögum og sæki það hart að komast sem oftast út fyrir landssteinana til þess eins að fá greidda dagpeninga er mjög ómaklegt," segir Helga Jónsdóttir.


Slóðin þín:

Fréttir
Gott að vita - skráning hefst 2. feb. kl. 9
Jafnrétti