NTV tölvunám
BSRB og NTV standa í sameiningu að Office tölvunámi fyrir félagsmenn aðildarfélaga BSRB. Námskeiðin eru styrkt af starfsmenntunar-sjóðum félaganna samkvæmt áunnum réttindum og þurfa félagsmenn að sækja um styrk til síns sjóðs.
Markmið námsins er að þátttakendur öðlist hagnýta þekkingu í tölvuvinnslu sem nýtist jafnt í starfi sem öðru. Kennt erá Office 2007 og þær breytingar sem orðið hafa á Office umhverfinu. Námið byggir á kennslu og verkefnum og er góður kostur fyrir þá sem vilja fá betri innsýn í notagildi PC tölvunnar og Office 2007.
Sjá nánar námskeið í boði HÉR.
Einnig veitir NTV félagsmönnum aðildarfélaga BSRB 15% afslátt af öllum námskeiðum og námsbrautum sem NTV býður upp á. Ef NTV býður upp á önnur sérstök afsláttarkjör (t.d. fyrir þá sem skráðir eru atvinnulausir hjá Vinnumiðlun) þá dragast þau afsláttarkjör frá þ.e.a.s. ekki geti orðið um samanlagðan afsátt að ræða.
Fréttabréf SFR
Á döfinni
Til félagsmanna
2. Mars 2010
Staðreyndir um hamingju - glærur
1. Mars 2010
Orlofsblað SFR í vinnslu
27. Janúar 2010
Komdu í kór!
Maí kórinn er kór BSRB félaga og er opinn öllum félögum í aðildarfélögum BSRB, vinum þeirra og vandamönnum. Kórfélagar hittast einu sinni í viku á þriðjudagskvöldum kl. 20:15 í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, og syngja saman fjölbreytt lög undir styrkri stjórn Svövu Kristínar Ingólfsdóttur. Í hópnum er vant söngfólk og óvant, bæði karlar og konur. - Allir eru velkomnir.



















