Framvegis - miðstöð um símenntun
Framvegis, miðstöð um símenntun er sjálfstætt fræðslufyrirtæki í eigu BSRB, SFR - stéttarfélags í almannaþjónustu, Sjúkraliðafélags Íslands, Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Tölvuskólans iSoft Þekkingar. Framvegis vinnur í nánu samstarfi við framangreinda aðila sem og Fræðslusetrið Starfsmennt og símenntunarmiðstöðvar landsins.
Framvegis var stofnað árið 2001 og hefur frá upphafi lagt höfuðáherslu á símenntun stétta í heilbrigðis- og félagsþjónustu, en þjónusta við aðrar starfsstéttir eins og starfsfólk í skrifstofu- og þjónustustörfum er vaxandi þáttur í starfsemi Framvegis.
Þjónustusvæðið er allt landið. Framvegis sendir námskeið út í fjarfundi, býður upp á fjarnám í gegnum Web CT fjarvinnslukerfið og í auknum mæli "sendir" miðstöðin námskeið út á land.
Sjá nánar á www.framvegis.is.



