Fræðslusetrið Starfsmennt
Nám fyrir félagsmenn SFR
Félagsmenn SFR eru hvattir til að nýta sér það góða námsframboð sem Starfsmennt stendur fyrir. Vefsíðan hjá Starfsmennt er www.smennt.is og síminn er 525-8395.
Almenn námskeið
Viltu efla þig í starfi, auka samskiptahæfni, hækka launin, efla sjálfstraustið og samskipti við vinnufélagana? Kíktu þá hérna á fjölbreytt úrval almennra námskeiða.
Tölvunámskeið – fjarnám / netnám
Viltu læra á tölvu eða auka við tölvuþekkingu þína? Vinsæl netnámskeið Fræðslusetursins Starfsmenntar kenna byrjendum og lengra komnum m.a. á stýrikerfið, ritvinnslu (e.word), töflureiknir (e.excel), internetið, tölvupóstinn og upplýsingatækni. Einnig er nú boðið upp á framhaldanámskeið í ritvinnslu og töflureikni og námskeið í myndvinnslu (e.photoshop).
Starfstengd námskeið
Viltu verða betri í því sem þú ert að fást við í vinnunni? Eða koma með nýja þekkingu og reynslu inn í vinnuhópinn? Starfstengd námskeið Starfsmenntar miða að því að auka sérstaka og almenna færni starfsmanna ríkisins, þeirra á meðal eru læknaritarar, fangaverðir, félagsliðar, hjúkrunar- og móttökuritarar og stuðningsfulltrúar. Lögð er áherslu á lifandi og gagnlegt nám sem eykur hæfni og starfsánægju. Er eitthvað hér sem gæti hentað þér?
Ráðgjafi að láni
Verkefnið Ráðgjafi að láni er hugsað til að veita stofnunum faglega ráðgjöf við að koma á laggirnar endur- og símenntunarkerfi fyrir starfsmenn. Markmið kerfisins er skýrt; að auka enn frekar færni starfsmanna í verkefnum sínum og efla stofnanir heildrænt til að veita þá þjónustu sem þeim er ætlað. Leiðin til þess er að veita starfsfólki aðgang að aukinni menntun sem hefur það að markmiði að auka persónulega færni þess sem og færni í starfi. Vegna jákvæðra viðbragða og frábærs árangurs af verkefninu hefur það nú fest sig í sessi og kemur til með að standa stofnunum til boða í nánustu framtíð. Sjá nánar hér um Ráðgjafa að láni.
Farandfyrirlestrar
Starfsmennt býður upp á fjölbreytt úrval farandfyrirlestra þar sem stofnanir geta valið áhugavert viðfangsefni á tíma sem þeim hentar best. Farandfyrirlestrarnir eru oftast smærri í sniðum en námskeið og geta nýst vel á starfsdögum og fræðslufundum stofnana. Lengd fyrirlestranna er 2 - 4 klukkustundir. Markmiðið með farandfyrirlestrunum er að efla símenntun og starfsþróun starfsmanna með því að gefa þeim kost á utanaðkomandi sérfræðingum til að fjalla um það sem er efst á baugi hverju sinni á vinnustaðnum. Stofnanir geta kallað eftir þessari þjónustu að því gefnu að félagsmenn Starfsmenntar njóti fræðslunnar og að hún sé liður í hæfnisuppbyggingu þeirra.



