Félagsmálaskóli alþýðu
Námskeið á vegum Félagsmálaskóla alþýðu
Félagsmálaskóli alþýðu er starfræktur af Alþýðusambandi Íslands og BSRB. Á hverri önn eru sérhæfð námskeið í boði fyrir alla talsmenn stéttarfélaga. Á þeim er lögð áhersla á hefðbundna félagslega fræðslu. Jafnframt er boðið upp á námskeið sem taka á málefnum sem eru í brennidepli hverju sinni. Stéttarfélög geta pantað námskeið til að móta starf og stefnu og styrkja talsmenn sína.
Nánari upplýsingar um námskeiðin er hægt að fá á www.felagsmalaskoli.is eða í síma 53 55 600.



