Liðsmenn Jerico
Liðsmenn Jerico eru Landssamtök foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda.
- Samtökin eru hagsmunasamtök foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda, stofnuð 6. október 2008.
- Liðsmenn Jerico eru frjáls félagasamtök sem starfa óháð stjórnmálaflokkum eða trúfélögum.
- Markmið samtakanna er að vekja athygli á afleiðingum eineltis ásamt því að vera athvarf fyrir þolendur og aðstandendur þeirra.
- Samtökin eru vettvangur ráðgjafar, vinna að fræðslu og miðla þekkingu um málefni tengd einelti.
- Liðsmenn Jerico blása til leiks í meistaradeildarkeppninni gegn einelti. Keppendur í deildinni eru þjóðin sjálf.
Samtökin eru með vefsíðuna www.jerico.is.

