Beint á leiðarkerfi vefsins

SFR.is

SFR.is

Fræðsla

SFR leggur áherslu á að vinna markvisst að símenntunarmálum félagsmanna. Starfsmenntunarsjóður komst á laggirnar 1980 þegar BSRB samdi fyrir aðildarfélög sín um starfsmenntunarsjóð, þar á meðal fyrir SFR. Árið 1993 var síðan samið um að SFR myndi halda utan um sjóðinn fyrir sína félagsmenn. Einnig kom SFR, það sama ár, að því að koma af stað starfsnámi stuðnings- og meðferðarfulltrúa.

Í samningunum 1995 var síðan samið um að efla fræðslustarf með gagnkvæman hag stofnunar og starfsmanns í huga og hleyptu aðilar í kjölfar þess af stokkunum námskeiði sem fékk heitið Rekspölur. Markmiðið með námskeiðinu var skilgreint vítt með hag bæði starfsmanna og atvinnurekenda í huga. Námskeiðið er 60 stundir og hefur verið keyrt frá því 1995 við miklar vinsældir.

SFR samdi 1997 um þróunar- og símenntunarsjóð  sem ætlað er að styrkja starfsmenntun inni á vinnustöðum. Þetta auðveldar atvinnurekendum að bjóða upp á námskeið þar sem þessi sjóður er sérstaklega ætlaður námskeiðahaldi inni á vinnustað. Í síðustu samningum var enn lögð áhersla á símenntun og var framlag til starfsnáms og símenntunar aukið


Á döfinni

Til félagsmanna

3. September 2010

Náms- og starfsráðgjöf fyrir alla félagsmenn

Fræðslusetrið Starfsmennt býður félagsmönnum aðildarfélaga BSRB upp á náms- og starfsráðgjöf, þeim að kostnaðarlausu. Ráðgjöfin nýtist fólki á öllum aldri til að viðra hugmyndir sínar um nám og starfsþróun. Sjá nánar HÉR.

8. Júní 2010

Fræðsla um svepparíkið

Skráning hafin á námskeið um svepparíkið sem haldið verður síðsumar 2. og 4. september...

12. Maí 2010

Jónsmessuferð Lífeyrisþegadeildar SFR

Uppbókað er í Jóns-messuferð LSFR, en að þessu sinni verður farið til Stykkishólms og í siglingu...

 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré English