Beint á leiðarkerfi vefsins

SFR.is

SFR.is

Kjarasamningur við ríkið 2009

Kjarasamningur SFR og ríkisins sem undirritaður var 3. júlí síðastliðinn var samþykktur 14. ágúst, en atkvæðagreiðslu lauk á hádegi. Á kjörskrá voru 6391 og var svarhlutfall 17.94%. Alls sögðu 54,06% þeirra sem greiddu atkvæði já, nei sögðu 39,04% en 6,90% skiluðu auðu.

_______________________________________________________________________________________

Kjarasamningur        
Ný launatafla         
Samkomulag um helgidagafrí 
Framkvæmdaráætlun           
Stöðugleikasáttmáli

______________________________________________________________

Atkvæðagreiðsla um samninginn
Kjarasamningur við ríkið var undirritaður 3. júlí síðast liðinn en vegna sumarorlofa hjá ríkinu var ákveðið að atkvæðagreiðsla vegna samningsins fari fram 4.-14. ágúst þegar, almennum sumarleyfum starfsmanna er sem næst að ljúka. Atkvæðagreiðsla vegna samningsins verður rafræn eins og við gerð síðasta kjarasamnings og mun standa yfir frá kl. 12:00 þann 4. ágúst til 12:00 þann 14. ágúst 2009. SFR félagar munu fá sent bréf þann 4. ágúst með ítarlegum upplýsingum um framkvæmd atkvæðagreiðslunnar ásamt lykilorði. Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér efni samningsins hér á síðunni.  

Kjörfundur verður opinn á skrifstofu SFR meðan atkvæðagreiðslan stendur yfir. Félagsmenn sem ekki hafa aðgang að tölvum geta komið og greitt atkvæði á opnunartíma á skrifstofu SFR að Grettisgötu 89, fram að lokum atkvæðagreiðslu. Nauðsynlegt er fyrir félagsmenn að taka með sér heimsent lykilorð þegar kosið er á skrifstofunni. Einnig er hægt að fá aðstoð gegnum síma við atkvæðagreiðsluna ef félagsmenn þurfa aðstoð, en geta ekki komið við á skrifstofunni. Síminn er 525 8340.

Þegar þið hafið kynnt ykkur kjarasamninginn, smellið þá á tengilinn hér að neðan til að greiða atkvæði.

 

 


Á döfinni

Til félagsmanna

2. Mars 2010

Staðreyndir um hamingju - glærur

Hér má nálgast glærur af vel sóttum fyrirlestri Páls Matthíassonar geðlæknis þar sem hann sagði frá nokkrum staðreyndum um hamingjuna.

1. Mars 2010

Orlofsblað SFR í vinnslu

Starfsmenn SFR leggja nú nótt við dag að klára orlofs-blað SFR. Stefnt er að því að blaðið berist félagsmönn-um í annarri viku mars en umsóknarfrestur fyrir sumar-úthlutun er til 25. mars.

27. Janúar 2010

Komdu í kór!

Maí kórinn er kór BSRB félaga og er opinn öllum félögum í aðildarfélögum BSRB, vinum þeirra og vandamönnum. Kórfélagar hittast einu sinni í viku á þriðjudagskvöldum kl. 20:15 í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, og syngja saman fjölbreytt lög undir styrkri stjórn Svövu Kristínar Ingólfsdóttur. Í hópnum er vant söngfólk og óvant, bæði karlar og konur. - Allir eru velkomnir.


 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré English