Velkomin á vef SFR
Fréttir
3. febrúar 2012
Lokað eftir hádegi á mánudag vegna jarðarfarar
Skrifstofa SFR verður lokuð frá kl. 12 mánudaginn 6. febrúar vegna jarðarfarar Guðlaugar Sigurðardóttur, fyrrum starfsmanns SFR.
2. febrúar 2012
Fékkst þú eingreiðslu 1. feb.?
SFR vekur athygli á því að samkvæmt kjarasamningum SFR við Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga eiga félagsmenn SFR sem starfa hjá borginni eða sveitarfélögum að hafa fengið 25 þúsund kr. eingreiðslu nú 1. feb. "Starfsmenn sem eru við störf þann 1. febrúar 2012 fá greidda sérstaka eingreiðslu, kr. 25.000,- miðað við fullt starf. Starfsmenn í hlutastarfi fá greitt hlutfallslega miðað við starfshlutfall 1. febrúar 2012."
Útgáfa
SFR - STRV BLAÐ STÉTTARFÉLAGANNA
Gefið út af SFR stéttarfélagi í almannaþjónustu og Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar
_______________________________________________________________________________________
SFR blaðið er gefið út reglulega og dreift til allra félagsmanna.
Það er einnig aðgengilegt hér á vefnum.
_______________________________________________________________________________________

Veffréttarit SFR er sent út reglulega til félagsmanna.
Mikilvægt er að félagsmenn gefi skrifstofu félagsins upplýsingar um rétt netföng til að auðvelda rafrænar sendingar.
__________________________________________________________________________________________
Upplýsingabæklingur um einelti:
Samstaða gegn einelti á vinnustöðum
Félagið þitt - kynningarbæklingur um félagið.
Greinar
26. september 2011
Hugleiðing um launaleynd
Eftirfarandi grein birtist í 4. tbl. Blaðs stéttarfélaganna.
Á Jafnréttisstofu fáum við símtöl frá konum sem uppgötva að eftir áralangt starf hjá vinnuveitanda hefur karl á næstu skrifstofu allt að helmingi hærri laun en þær, fyrir sama starf. Baráttan fyrir sömu launum fyrir sama starf hefur staðið í yfir 100 ár og undanfarna áratugi hefur árangurinn látið bíða eftir sér. Lög um sömu laun fyrir sömu störf voru samþykkt á Alþingi 1961 og þá var talið að það yrði frekar létt verk að jafna launin. Í dag vitum við betur.
21. september 2011
Afnema óverðtryggð lán verðtrygginguna?
Eftirfarandi grein eftir Hilmar Ögmundsson, hagfræðing BSRB, birtist í Fréttablaðinu 21. september 2011.
Á Íslandi hefur lengi verið litið svo á að húsnæðisöryggi sé einn af hornsteinum samfélagsins. Það að eiga öruggt húsaskjól á ekki að falla undir forréttindi heldur sjálfsögð mannréttindi. Efnahagsþrengingar síðustu missera hafa hins vegar valdið því að húsnæðisöryggi Íslendinga er í dag ógnað.
BSRB hefur áður talað fyrir því að auka verði valkosti þegar kemur að því að velja sér búsetuform. Fram til þessa hefur aðeins tvennt staðið til boða - annars vegar séreignarstefna með verðtryggðum lánum frá fjármálastofnunum og hins vegar ófullkominn leigumarkaður. Frá efnahagshruni hefur það bersýnilega komið í ljós hversu ófullkomin bæði búsetuformin eru. Höfuðstólar verðtryggðra lána hafa tekið stökk upp á við og leiguverð á þeim fáu leiguíbúðum sem á markaðnum eru hefur hækkað upp úr öllu valdi.
Á döfinni
8. febrúar 2012
Trúnaðarmannaráðsfundur
8. febrúar 2012
Fræðslumorgunn trúnaðarmanna - Vaktavinna
9. febrúar 2012
Fundur starfsmenntunarsjóðs
8. mars 2012
Fundur starfsmenntunarsjóðs
Til félagsmanna
1. febrúar 2012
Skráning í Gott að vita námskeið og fyrirlestra

Nú er dagskrá fyrir námskeið og fyrirlestra Gott að vita á vorönn tilbúin og hófst skráning 1. febrúar kl. 9. Ef þú ert að skrá þig inn í fyrsta sinn í námskeiðsskráningarkefi SFR þá velur þú flipann Nýskráning og skráir inn umbeðnar upplýsingar, hugar vel að því að netfang sé rétt stafsett og býrð til þitt eigið lykilorð. Þá færðu tölvupóst með tengli sem þú verður að smella á til að skráning verði virk. Ef þú hefur áður skráð þig inn og gleymt lykilorðinu þá geturðu óskað eftir því að fá það sent til þín í tölvupósti neðst undir flipanum Þegar skráður notandi.
30. janúar 2012
Aðalfundur SFR verður haldinn 22. mars 2012
27. janúar 2012
Gott að vita - skráning hefst 1. febrúar
Leit
Trúnaðarmannafræðsla
Skráning stendur yfir í nám trúnaðarmanna. Bæði nám SFR/St.Rv. og nám BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu.
Atvinnuleitendur
Atvinnuleitendum innan félagsins hefur fjölgað undanfarið og því er búið að koma upp upplýsingasíðu fyrir félagsmenn hér á vefnum. Félagið hvetur atvinnuleitendur og þá sem missa vinnu til þess að huga að réttindum sínum og að skrá sig í stéttarfélag.

















